Spássían - 2010, Blaðsíða 25

Spássían - 2010, Blaðsíða 25
25 Að eiga sér rödd Í anda Ágústínusar fullyrðir Jón Ásgeir Jóhannesson að grein sín sé ekki skrifuð með það fyrir augum „að tíunda í smáatriðum neinar útskýringar, rök eða afsakanir“ sér „til málsbóta, né varpa sök og ábyrgð á aðra“. Markmið hennar sé af öðrum toga eins og hann voni að sér „auðnist að gera lesendum ljóst“. Jón Ásgeir segir reyndar hvergi „afsakið“ fullum fetum eins og Björgólfur Thor en iðrun og von um yfirbót má lesa úr lokaorðum hans: Fyrstur manna skal ég sjálfur viðurkenna, hversu margt mátti betur fara í þessu ferli. Í von um að geta bjargað fyrirtækjunum lagði ég allt undir í tilraunum sem þó reyndust alls ófullnægjandi, og ég sé glöggt að ég missti iðulega sjónar á góðum gildum og mörgu því sem mestu skiptir í lífinu. Því verður ekki með orðum lýst, hvernig mér líður vegna mistaka minna og afleiðinga þeirra. Þær yfirsjónir verða ekki aftur teknar. Við það verð ég að lifa. Fjármuni í felum á aflandseyjum á ég enga. En ég heiti íslensku þjóðinni því að gera allt sem í mínu valdi stendur til að bæta fyrir mistök mín og leggja mitt af mörkum til að byggja Ísland upp að nýju. Enn gerir útrásarvíkingur ráð fyrir því að hann hafi ekki einungis rödd í umræðunni heldur sé honum ætlað áframhaldandi hlutverk við uppbyggingu íslensks samfélags, eftir að hafa viðurkennt óvarfærni sína og andvaraleysi. Það virðist hins vegar enginn vera að hlusta. Tilraunin til að endursegja söguna í viðurkenndu játningaformi hefur mistekist. Í Ufsagrýlum eftir Sjón, í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar, voru útrásarvíkingarnir formlaus, andlitslaus og mállaus skrímsli í búrum sem örguðu eitthvað óskiljanlegt. Þótt skrímslin hafi gert tilraun til að smokra sér inn í mannlegt samfélag aftur var það dæmt til að mistakast. Í hetjusögum fá skrímsli ekki annan séns. 1 Ágústínus, Játningar, þýð. Sigurbjörn Einarsson, Reykjavík, Bókaútgáfa Menningarsjóðs, 1962, 46. 2 Kristín Loftsdóttir hefur fjallað um það hvernig markvisst var sótt í þjóðernislegt myndmál víkingahefðarinnar á tímum uppsveiflunnar í samfélaginu. Sjá t.d. „Kjarnmesta fólkið í heimi. Þrástef íslenskrar þjóðernishyggju í gegnum lýðveldisbaráttu, útrás og kreppu“, Ritið. Tímarit Hugvísindastofnunar, 9 (2-3), 2009. 3 Sigurbjörn Einarsson, „Inngangur“, Játningar, 7. 4 Sama rit, 18. 5 Bjarni Ármannsson, „Horfst í augu við bankahrunið“, Fréttablaðið, 5. janúar 2009. 6 Sigurbjörn Einarsson, 18-19. 7 Björgólfur Thor Björgólfsson, „Ég bið ykkur afsökunar”, Fréttablaðið, 14. apríl 2010. 8 Jón Ásgeir Jóhannesson, „Missti sjónar á góðum gildum”, Fréttablaðið, 22. apríl 2010. 9 „Ekki afsökun heldur afneitun”, Vísir.is, 14. apríl 2010. 10 Ágústínus, 24-25. Auður Aðalsteinsdóttir

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.