Spássían - 2010, Blaðsíða 37
37
Ég eldaði út frá eigin maga og eftir
mínu höfði. Smám saman virtust
bragðlaukarnir sækja í nýtt bragð, þá
var þannig komið að ég þurfti að mata
hana. Hún horfði fólskulega á mig
reka skeiðina eða gaffalinn fólskulega
að henni. Mig langaði að koma
hnossgætinu af pönnunni ótuggðu
í vélindað á henni, kæfa hana með
góðum mat. Hún brást við á lævísan
hátt, kvikindislegan. Þetta gerði hana
ekki seka, hún beitti mig engu ofbeldi,
hún virtist bara njóta þess að sulla ofan
á sig, láta matinn leka eins og gums
niður á höku. Ég þurfti þá að „skeina“
á henni trantinn eins og hún komast
að orði við börnin á meðan þau voru
lítil. „Mamma, skeina munn og höku,“
sögðu krakkarnir, ánægð yfir að
vera kámug niður á háls. Börnunum
fannst sniðugt að mamma skeindi
á þeim trantinn. Fyrst fór hún með
skeiðina út í munnvikin, síðan undir
neðrivörina og niður á höku og lét svo
„allan kúkinn“ fara upp í munninn.
Þegar kúkurinn var kominn heilu og
höldnu á sinn stað smjöttuðu börnin
ánægjulega. Ég varð ekki jafn hrifinn
að hafa komið kúknum af skeiðinni
upp í konuna mína. (81-82)
Gróteska konuskrímslið sýnir ekki einu
sinni þakklæti. Þegar maðurinn þarf
að fara inn á sjúkrahús í smá aðgerð
á nára bíður hún eftir að hann komi
heim og eldi ofan í hana. Hann gerir
sitt besta en sárið byrjar aftur að blæða
þarna við eldavélina. Enga samúð
er að finna hjá konunni „Mér finnst
það ekkert merkilegt. Þetta verðum
við konur að þola mánaðarlega.“
Hálfvanaður og kvengerður með öllu
lyppast mannauminginn á sjúkrahúsið
til að láta sauma sig en eiginkonan
tekur varla eftir fjarveru hans.
Í Missi má finna gegnumgangandi
togstreitu milli hins gróteska líkama
konunnar og hins lokaða líkama
sögumannsins. Í bók sinni, Rabelais
and His World, sagði Mikhail
Bakhtin að sú gróteska sem finna
mátti í endurreisnarbókmenntum
hafi ei skilað sér í nútímann. Hinn
klassíski gróteski líkami er opinn,
flæðandi og margræður. Hann ögrar
samfélagsgildum og skellihlær að
tepruhætti. En nútíma líkaminn hefur
lokað sig af. Hann er vandræðalegur
og ófrumlegur. Ólíkt hinum klassíska,
sem finnur sér leið út fyrir gröf og
dauða, hefur hann endapunkt á sinni
tilveru.2
Ástand mannsins ónefnda í Missi
er sjálfhverft og hann veit ekki
hvernig á að höndla gróteskuna sem
hrörnun ellinar hefur þröngvað upp
á hann. Hann reynir að fjarlægjast
þennan gróteska líkama og ástand
eftir bestu getu með því að halda við
aðrar konur. En hann sækist ekki eftir
nýju sambandi og því verða þessir
ástarfundir innantómir og aflokaðir
og líkami hans jafn sjálfhverfur og
endanlegur og fyrr.
Á síðustu blaðsíðum sögunnar
er komið að endalokum. Maðurinn
pantar far með Norrænu til Færeyja
(þangað sem konuna dreymdi um
að fara) og tekur með síðustu ögnina
af ösku hennar. Áður en hann stígur
aftur upp í skipið eftir stutta dvöl fær
hann sér kaffi með öskuleifunum.
Stuttu eftir að skipið leggur úr höfn
stekkur hann útbyrðis.
Ketillinn slekkur loks á sér. Á
meðan konan fær að lifa áfram í manni
sínum, bæði í endurminningum hans
og í teformi í líkama hans, miðast öll
umgjörðin í kringum dauða mannsins
að hinu endanlega. Lokastundinni.
Því þannig upplifir hver einstaklingur
dauða sinn. Þegar aðrir eiga í hlut getur
hrörnunin og dauðinn orðið partur af
karnivalísku leikhúsi gróteskunnar
sem nær út fyrir landamæri hins
lifandi heims. Upplifunin sjálf er hins
vegar af allt öðrum toga. Heimurinn
heldur leik sínum áfram en þú, og þinn
líkami, fáið ekki lengur að taka þátt.
Ásta Gísladóttir
1Guðbergur Bergsson, Missir, JPV útgáfa, Reykjavík, 2010, 110.
2Mikhail Bakhtin, Rabelais and His World, þýðandi Hélène Iswolksy,
Indiana University Press, Bloominton, 1984, bls. 321-322.
www.mp.is • 540 3200 • Ármúla 13a • Borgartúni 26
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og örugg
vinnubrögð skipta öllu máli fyrir fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Netgreiðsluþjónusta
Gjaldeyrisreikningar
Sparnaðarreikningar
Yfirdráttur
Debetkort
Launareikningur
Kreditkort
Netbanki
Yfir 70% viðskiptavina okkar mæla
með MP banka við ættingja sína
og vini. Það eru ánægjuleg meðmæli.
Svanhvít Sverrisdóttir
viðskiptastjóri Ármúla
*skv. þjónustukönnun MP banka febrúar 2010
*