Spássían - 2010, Qupperneq 12
12
ann 7. júlí næstkomandi verður frumsýnd
ný íslensk kvikmynd sem ber heitið Boðberi.
Segir þar frá ungum manni sem fer skyndilega
að upplifa vitranir í svefni um lífið eftir
dauðann. Í kjölfarið fer hann að taka eftir
annarlegum hlutum í kringum sig þegar hann
er í vökuástandi. Í ljós kemur að víða er pottur
brotinn í samfélaginu og djöflar og alls kyns
illvættir leika lausum hala.
Hjálmar Einarsson, leikstjóri myndarinnar,
segir kvikmyndina að miklu leyti hafa sprottið
upp úr hans eigin reynslu þegar hann kom aftur
til Íslands eftir fimm ára fjarveru í Tékklandi.
Segir hann myndina fjalla í hnotskurn um
mann sem er utanveltu í íslensku samfélagi á
góðæristímum, en þannig leið honum sjálfum
við heimkomuna.
„Ég var útlendingur í eigin landi. Hérna voru
allir eins og uppblásnir hanar, gegnsýrðir af
vinnusýki. Þetta var ekki sama landið og ég fór
frá. Í staðinn hafði mótast hér plastkúltur
þar sem allt gekk út á að meika það á
heimsmælikvarða.“
Hann líkir Íslendingum fyrir hrun við
gjammandi Chihuahua hunda, blinda á eigin
smæð. Þannig er Boðberi lýsing á því ástandi
sem var þegar djöflaskarinn í myndinni er
borinn saman við þær aðstæður sem ríktu. Nú
eru englar og djöflar ekki algengt viðfangsefni í
íslenskum kvikmyndum og viðurkennir Hjálmar
að talsvert sé af amerískum áhrifum í myndinni.
„En hellingur af Bergmann líka. Það má segja
að Evrópa og Ameríka mætist í myndinni. Það
er mikil ádeila á stjórnvöld, samfélagið og mína
eigin kynslóð. Því maður mígur jú kannski mest
á sjálfan sig.“
Myndin var gerð án allra styrkja og segir
Hjálmar að mikil átök hafi átt sér stað í ferlinu.
„Ég missti 8 kíló meðan á tökum stóð.“
Um 130 manns leika í myndinni en með
aðalhlutverk fer Darri Ingólfsson. Í henni eru 50
tæknibrellur og vandað var til hljóðrásarinnar.
Tónlistin spilar veigamikið hlutverk og er hún í
höndum Karls Pestka. Það tók eina 9 mánuði
að fullvinna sinfónísku útsetninguna sem er í
myndinni. Einnig eru þar lög með hljómsveitum
á borð við Feldberg, Brain Police og Lights on
the highway.
Boðberi nýrra tíma
Viðtal við Hjálmar Einarsson, leikstjóra kvikmyndarinnar Boðbera
Þ