Spássían - 2010, Side 39
39
hljómsveitum sem þær höfðu verið
að spila með hafði þótt það hálfgerður
brandari að þær fengju yfirhöfuð að taka
þátt. Hljómsveitin In Memoriam spilaði
meira að segja grínútgáfu af Vögguvísu
sem dauðarokk með breyttum texta á
porthátíð á Tryggvagötu þá um sumarið
en náði þó ekki að ljúka laginu þar sem
Birgitta trommari kippti mögnurunum
úr sambandi.
Ýmislegt breyttist hjá þeim eftir
sigurinn í Músíktilraunum. Tilboðum
um spilamennsku rigndi inn og þar sem
hljómsveitin hafði aðeins 5 lög tilbúin
á þeim tíma var henni ekki til setunnar
boðið og tók við að semja fleiri lög.
Segjast þær hafa fundið fyrir því að nú
þyrftu þær að fara að standa sig þar sem
pressan var miklu meiri. Næstu mánuði
tók svo við spilamennska næstum
hverja helgi. „Við ferðuðumst bara á
puttanum með hljóðfærin” segja þær og
hlæja.
Stelpurnar segja að draumar um að
hasla sér völl erlendis hafi fyrir alvöru
byrjað eftir að hljómsveitin kom fram
á Eldborgarhátíðinni árið 1992 ásamt
flestum lykilhljómsveitum landsins á
þeim tíma. Í kjölfar hátíðarinnar birtist
mikil lofgrein um Kolrössu Krókríðandi
í hinu virta tónlistartímariti Melody
Maker og var þeim hampað sem afli
sem gæti brætt jökla. „Í rauninni var
þetta aldrei spurning um einhverja
heimsfrægð”, segir Bíbí, „heldur miklu
frekar um lífsstíl. Framtíðarplönin
voru ekkert það fastmótuð, það átti
bara að vera gaman í dag og svo gaman
aftur á morgun.” Eftir að hafa farið á
Reading hátíðina í Englandi sama ár,
þar sem þær voru kynntar fyrir fólki úr
bransanum, fundu þær að þetta var það
sem þær vildu gera.
Næstu átta árin gaf hljómsveitin
út fjölda geisladiska, bæði hér heima
og erlendis. Jafnframt urðu nokkur
mannaskipti. Karl Ágúst Guðmundsson
tók við trommunum af Birgittu árið
1993, Anna Margrét Hraundal bættist
við á gítar og Kidda Rokk tók við
bassanum af Bíbí árið 1999. Erlendis
spilaði hljómsveitin undir nafninu
Bellatrix. „Við fórum út um allt. Við
spiluðum allsstaðar á Norðurlöndunum,
í Bandaríkjunum og rosalega mikið í
Englandi”, segir Sigrún, „en stefnan
var mest tekin á England. Þetta var
rosalega skemmtilegur en erfiður tími.
Við upplifðum ótrúlega hluti og lærðum
mjög margt en það var líka rosalega
erfitt að vera í svona nánu samstarfi við
vini sína. Það lá við að það þyrfti að bera
skeiningar undir hvert annað”.
Bellatrix lagði upp laupana í desember
árið 2000. Plata þeirra, Its all true,
stóð ekki undir þeirra eigin væntingum
og voru móttökurnar ekki þær sem
búist hafði verið við, þrátt fyrir næga
umfjöllun breskra fjölmiðla. Sigrún
segir að það hafi í raun verið röð
rangra ákvarðana sem varð til þess að
hljómsveitarmeðlimum fannst þeir
komnir aftur á byrjunarreit og voru
frekar tilbúnir að gera eitthvað nýtt en
að endurtaka sig.
Kolrassa Krókríðandi hefur fengið
fjölmargar fyrirspurnir um endurkomu-
tónleika en alltaf hafnað því. „Höfum
bara aldrei fengið réttu tilfinninguna
fyrr en nú og svo er líka einhvern
veginn nógu langt liðið”, segir Sigrún.
Ástæður þess að þær ákváðu að taka
tilboði um að spila á Eistnaflugi segja
þær að tilhugsunin hafi verið fyndin
og skemmtileg, sérstaklega þar sem
hljómsveitir á borð við In Memoriam og
Sororicide sem þær spiluðu mikið með
hér áður fyrr verði einnig að spila. Ekki
spillir heldur að hafa Napalm Death
sem spilafélaga.
Þetta verða einu tónleikarnir í endur-
komu Kolrössu Krókríðandi og er
áhugasömum bent á að rokkbrjálæðið
á Eistnaflugi fer fram á Neskaupsstað
helgina 8.-10. júlí.
Katrín Guðmundsdóttir
Sigrún og Bíbí fyrir utan æfingahúsnæði Kolrassanna