Fréttablaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is MÉR FINNST EINS OG SÁLIN MÍN HAFI LOKSINS NÓG PLÁSS TIL AÐ BREIÐA ÚR SÉR. Peugeot 3008 GT Line Plug in hybrid 6.630.000 kr. 127353 Greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti 1.000.000 kr. 15208 110016 121029 Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun að verðmæti 100.000 kr. 2164 3258 4190 7673 8617 8768 9054 9859 10483 11196 11877 12070 12363 13394 13960 14247 15841 16044 16476 16538 19272 19508 20339 20347 23011 24007 24537 26456 27327 27468 28485 30120 30763 32391 33045 33808 33963 34246 35624 38416 40177 40865 40962 42918 44472 44686 44872 45526 48663 50734 51600 53482 54144 55195 55619 55904 56361 56857 58116 58235 58962 59110 60063 60091 61319 61544 62531 62548 63017 63340 64428 64799 65642 66703 70324 70335 71586 74804 74923 74959 75129 77616 78209 78438 81845 83105 84444 85216 86503 86775 89889 91484 93120 94046 95095 96252 96356 98097 99577 102171 103284 106174 106271 107316 113774 115559 116603 121280 124272 125419 125551 126233 126561 126565 126684 127067 128546 131680 131874 132637 132679 133234 133632 135162 137014 137903 139566 142375 143189 143646 144355 144573 144877 145290 145724 146508 146727 147086 148878 150003 150600 151145 152028 154112 154189 154815 154933 155812 156382 157148 157234 158746 Bi rt án á by rg ›a r Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun að verðmæti 200.000 kr. 1547 3584 4290 5921 6424 7836 7979 9038 12319 13895 13964 17655 18496 20506 21016 24566 24660 25285 25933 26036 26701 28381 28707 35214 39800 41003 43991 44991 45088 47533 49537 49555 50117 50398 52130 52853 54202 54403 56210 56932 57778 65717 68247 72359 73361 75214 76792 76985 77705 80195 80660 80949 81495 83315 84325 84949 86134 86929 87753 88081 89110 89183 89320 89614 94155 94916 96863 99347 104178 104222 105083 106098 109014 109181 110041 111598 114383 114988 116002 117197 118062 118580 118973 119449 119748 121360 121978 125846 126520 128860 128862 129027 131352 133096 133137 133856 136029 141264 142632 144288 144471 145419 145958 146939 148404 150609 150791 152907 153912 155698 Krabbameinsfélagi› þakkar landsmönnum veittan stu›ning. Sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins VINNINGAR útdráttur 17. júní 2020 Handhafar vinningsmi›a framvísi þeim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins a› Skógarhlí› 8, sími 540 1900. Byrja› ver›ur a› grei›a út vinninga þann 2. júlí nk. Lífið er ljúft, hamingjan er hér í Hveragerði, ekki handan næsta áfanga eða viðburðar, bara hérna innan um vínyl-plötutónana, á verönd- inni og innan um barnadótið. Þess vegna er svo gott að vera til. Það er annað tempó hér einhvern veginn. Mér finnst eins og sálin mín hafi loksins nóg pláss til að breiða úr sér. Það sést á hamingjunni sem skín úr augum barnanna minna í þessari paradís. Ég er samt mikið í Reykjavík líka og finnst ekkert mál að keyra á milli. Frekar skemmti- legt, bara. Fæ smátíma fyrir sjálfa mig og dagdrauma mína í bílnum,“ segir söngkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir. Þórunn segist fá mikinn innblást- ur frá nærumhverfinu í Hveragerði. „Kyrrðin og þokan sem myndast oft á kvöldin, og plássið. Ég söng ekki mikið hástöfum í litlu fjöl- býlisíbúðinni minni á Seljaveginum í Reykjavík, þótt stemningin hafi verið góð,“ segir hún. Meðan á samgöngubanninu stóð var Þórunn með ungbarnið son sinn, og dóttur sína mest heima fyrir. „Þannig að ég henti bara tram- pólíni inn í stofu, þakti allt með jógadýnum og breytti húsinu í eins konar leiktækjasal þar sem allt mátti um stund. Þetta var gaman og setti áhersluna á það eina sem skiptir raunverulega máli, heilsu manns og ástvina og að eiga stundir með fjölskyldunni. Ég held að þessi tími verði mjög dýrmætur í hugum barnanna í framtíðinni,“ segir hún. Gott samstarf Í dag kemur lagið Flugdreki með Þórunni á allar helstu streymisíður. „Það fjallar um að taka allan kraftinn sinn aftur og svífa. Þrátt fyrir allt það slæma sem á hefur gengið. Lagið er um ástarsorg og of beldi, það fjallar um að standa upp aftur og aftur og halda áfram að dansa, við sinn eigin hjartslátt. Láta ekki buga sig, þrátt fyrir allt. Að lífið er fallegt og gott, þrátt fyrir áföll og sorgir,“ segir hún. Lagið er samstarfsverkefni Þór- unnar og Agga Friðbertssonar. „Hann er algjör snillingur og mikill vinur minn. Ég setti innlegg á Facebook-síðuna Hljóðnördar án landamæra. Þar er fullt af alls konar tónlistarsnillum, bæði stelpum og strákum. Ég óskaði eftir undirspil- um og töktum og Aggi hafði sam- band. Ég féll strax fyrir hans hljóð- heimi og við vinnum vel saman.“ Þangað til hafði Þórunn aðallega samið lög á ensku. „Fyrir utan tónsmíðar mínar í æsku, sem voru allar einhver ljóð um hunda og ketti og visnandi blóm og þannig,“ segir Þórunn og hlær. „Það var ágætt og kærkomið að tengjast móðurmáli sínu aftur og fara að semja, ég er nefnilega mjög mikið að semja ljóð, hef alltaf gert, en leyfi fáum að heyra,“ bætir hún við. Unnið með stórstjörnum Þórunn segjast eiga heilan haug af óútgefnu efni sem liggur bara í tölvunni hennar. „Bæði falleg, róleg lög og popp- smelli. Ég nefnilega elska að semja, en ekki jafn mikið að gefa út, eða að plögga sjálfa mig. Ég óska hér með eftir umboðsmanni sem nennir því,“ segir hún og hlær. Þórunn hefur unnið með heims- þekktu fólki innan geirans í gegnum tíðina, lagahöfundum, tónlistar- fólki og pródúsentum. „Ég er til dæmis búin að vera að vinna samstarfsverkefni með Fred Ball, sem pródúseraði nýjustu Beyoncé-plötuna og vinnur mikið með Jay-Z og alls konar stórstjörn- um. Hann bauð mér í stúdíóið sitt fyrir stuttu og við sömdum tvö lög. En ég er alltaf til í að vinna með nýju fólki, sérstaklega í texta- og laga- smíðum, ég elska það f læði sem getur myndast. Einnig þyrfti ég að fara að dusta rykið af áhugaleik- konunni sem fékk seinast að skína í Steindanum okkar og Borgríki. Það er svo gaman að leika,“ segir hún brosandi. Raunveruleikinn er sexí Fyrir stuttu vakti Þórunn athygli fyrir að benda á ofnotkun margra á svokölluðum filterum á samfélags- miðlum. „Já, það var nú bara eitthvað mjög óplanað atriði sem ég henti í loftið út frá svipuðum pælingum á sam- félagsmiðlum. Þar á meðal frá Ernu Ernuland, vinkonu minni, Andreu Eyland, sem er með Kviknar, og Tinnu Sverrisdóttur leikkonu. Pæl- ingin var að sýna sitt raunverulega sjálf, frekar en að fela sig á bak við filtera. En allt er gott í hófi og raun- veruleikinn er sexí. Ég lofaði samt ekki því að nota aldrei aftur filtera, því ég á stundum daga þar sem ég nenni ekki að sýna öllum allt. Það má líka. En nei, það rignir ekkert inn verkefnum eftir það, en þegar maður málar upp glansmyndina er maður ákjósanlegri í alls konar. Fólk elskar að láta plata sig með ein- hverjum göldrum,“ segir hún. Er eitthvað annað á döfinni? „Milljón verkefni og sjálfsvinna. Börnin mín og bara ástin og lífið.“ Hvernig ætlar þú að verja sumr- inu? „Ég ætla einfaldlega að njóta.“ steingerdur@frettabladid.is Dansar við sinn eigin hjartslátt Í dag kemur út lagið Flugdreki, samstarfs- verkefni Þórunnar Antoníu og Agga Frið- berts. Það fjallar um að rísa upp þrátt fyrir erfiðleika og læra að svífa á eigin vængjum. Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is Þórunn Antonía nýtur lífsins í Hveragerði með börnunum sínum tveimur. MYND/ ERNA ERNULAND OG BRANTLEY GUTIERREZ 1 9 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.