Fréttablaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 21
Framkvæmda- stjórn fyrirtækis- ins er fjölbreytt, hvort sem litið er til starfs- aldurs, menntunar eða reynslu. Ása Jóhannesdóttir, fram-kvæmdastjóri Stoðar, tók við starfinu síðastliðinn mánudag. Hún er hjúkrunarfræð- ingur að mennt og hefur einnig lokið meistaragráðu í heilbrigðis- vísindum og MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. „Þetta er frábær vika til að hefja nýja vegferð með þjóðhátíðar- degi og kvenréttindadegi til að fagna,“ segir Ása, sem starfaði sem viðskiptastjóri og deildar- stjóri um skeið áður en hún hóf að mennta sig í stjórnun. „Ég var búin að vinna hjá MEDOR í 10 ár, leið mjög vel í starfi, verkefnin krefjandi og mjög áhugaverð, en ég fann að mig langaði að bæta við mig þekkingu til að taka næsta skref svo ég hóf MBA-nám við Háskólann í Reykjavík haustið 2018. Námið gefur samt svo miklu meira en góða menntun, mér fannst ég verða sérfræðingur í þrautseigju og að vinna undir miklu álagi. Þetta gerist auð- vitað með frábærum kennurum og einstökum samnemendum. Veritas festi kaup á fyrirtækinu Stoð á svipuðum tíma og ég hóf námið. Mér finnst menntun mín sem hjúkrunarfræðingur og núna með MBA-gráðu, vera mjög góður bakgrunnur til að stýra fyrirtæki eins og Stoð. Ég á samt mikið eftir ólært og hlakka hvað mest til í nýju starfi að læra af starfsfólkinu í Stoð.“ Stoð er framleiðslu- og þjón- ustufyrirtæki á heilbrigðissviði sem framleiðir og selur gervilimi, spelkur, bæklunarskó, og aðrar stuðningsvörur. Auk þess selur Stoð hjálpartæki fyrir hreyfihaml- aða, hjólastóla og göngugrindur. Stoð býður upp á göngugreiningu, selur íþróttaskó og þrýstings- sokka. Markmið Stoðar er að bjóða upp á heildarlausnir fyrir einstaklinga til að hreyfa sig án hindrana. Okkar viðskiptavinir eru aldraðir einstaklingar, fólk með fötlun, áverka og sjúkdóma sem valda skertri færni í daglegu lífi. Hjá Stoð starfa um 35 manns í Hafnarfirði og á Bíldshöfða. Ása telur að Veritas vinni að kvenréttindum með því, meðal annars, að velja konur í stjórn- unarstöður. „Ég held að Veritas sé ekki endilega að taka ákvarðanir um að setja konur í stjórnenda- stöður af því það sé mikilvægt fyrir konur, heldur út frá því sem er best fyrir fyrirtækið. Markmið- ið er að velja þá sem taka góðar og réttar ákvarðanir og koma fyrirtækinu áfram með framsýni, áreiðanleika og hreinskiptni að leiðarljósi. Jafnrétti kynjanna hefur alltaf verið ofarlega á dag- skrá hjá Veritas, sem og jafnvægi í starfsmannahópnum, bæði milli kynja en líka eftir aldri, menntun og bakgrunni. Rannsóknir sýna að þetta jafnvægi gefur besta raun í rekstri fyrirtækja og styrkir stöðu í samkeppni þeirra um hæft starfsfólk.“ Hún segir að hvað varðar jafn- rétti þá séu réttindi fatlaðs fólks henni ofarlega í huga. „Að fá rétt hjálpartæki eða stoðtæki er mjög valdeflandi fyrir þann sem í hlut á. Í kvenréttindabaráttu er búið að ryðja burtu mörgum hindrunum og leiðin á Íslandi greiðari en áður var. Nú þarf að ryðja burtu hindrunum fyrir allar konur, líka fatlaðar. Við þurfum að stíga miklu f leiri skref þannig að marg- breytileiki samfélags okkar fái notið sín. Við verðum að breyta og bæta samfélagið svo að allir ein- staklingar geti notið réttar síns.“ Þarf að ryðja burtu hindrunum Ása Jóhannes- dóttir, fram- kvæmdastjóri Stoðar. Hákonía J. Guðmundsdóttir, deildarstjóri upplýsinga-tæknideildar og yfirmaður upplýsingatæknimála hjá Veri- tassamstæðunni. Hún útskrifaðist sem tölvunarfræðingur árið 1986 og tók MBA gráðu frá Edinborgar- háskóla árið 1993. Hákonía gegndi stjórnunarstöðum í upplýsinga- tæknideildum ýmissa fjármála- fyrirtækja áður en hún hóf störf hjá Veritassamstæðunni 2017. Eftir Verslunarskólann langaði mig frekar að fara í raungreinanám heldur en í viðskiptafræði, þar sem mér hafði bæði gengið vel í raungreinum í Versló og mögu- leiki var á þessum tíma að tvinna saman val úr viðskiptafræðideild HÍ með tölvunarfræðinni,“ segir Hákonía. „Á þessum tíma, níunda áratugnum, voru fáar konur í tölvunarfræði og námið tiltölulega nýtt í kennsluskrá HÍ. Mér fannst spennandi að prófa þetta nám án þess að ígrunda nokkuð djúpt hvert það myndi leiða. Ég fann það síðan fljótt í náminu að mér fannst hrikalega gaman að hanna og forrita lausnir sem skiluðu síðan þeirri útkomu sem til var ætlast,“ heldur hún áfram. „Ég gat tekið þátt í að skapa eitthvað sem skilaði ákveðinni útkomu og árangri. Það er síðan ekki fyrr en ég er búin að vinna í nokkur ár sem forritari að áhuginn kviknaði á stjórnun tölvu- mála, sem varð til þess að ég bætti við mig MBA-gráðunni og fór að feta mig inn á stjórnunarbrautina.“ Hákonía segir áhugann á stjórnun tölvumála stafa af löngun til að taka þátt í og móta lausna- mengi verkferla- og gæðamála, sem og rekstrarumhverfi kerfa hjá fyrirtækjum, sem leiðir til meiri skilvirkni. „Auk þess er gaman að taka þátt í að bæta þjónustu- stig fyrirtækja með möguleikum upplýsingatækninnar og almennt koma með lausnir fyrir starfsem- ina sem leiðir til betri árangurs.“ Hún segist ánægð með jafn- réttisstefnu Veritas. „Við erum með jafnlaunavottun og hlutfall kvenstjórnenda er hátt innan sam- stæðunnar. Kvenréttindi eru jafn- réttindi og jafnréttindi í mínum huga eru þegar manneskja er metin að verðleikum og allir hafa sömu tækifæri, réttindi og skyldur. Vel er stutt við starfsmenn,bæði konur og karla hjá Veritas, með möguleikum á starfsframa innan samstæðunnar, fræðslu, upp- lýsingagjöf og stuðningi ýmiss konar. Við erum með margar mjög góðar kvenfyrirmyndir hjá sam- stæðunni sem eru í stjórnunar- stöðum, stýra verkefnum eða eru í forsvari.“ Hún segir upplýsingatæknigeir- ann henta öllum kynjum. „Fagið er virkilega áhugavert og hver og einn getur sérhæft sig innan tækninnar, eins og færni og áhugi segja til um og gefur tækifæri til að kynnast starfsemi alls fyrir- tækisins. Hingað til hefur kynja- skiptingin verið frekar ójöfn, þar sem karlmenn hafa verið í miklum meirihluta. En ég held að bæði HÍ, HR og til að mynda verkefnið Stelpur og tækni, hafi tekist að auka áhuga kvenna og sýna mögu- leikana sem standa þeim til boða í tölvunarfræði og tækni, sem er frábært. Framtíðarsýn mín er því jákvæð um að hlutur kvenna innan geirans muni halda áfram að vaxa og að við fáum enn fleiri öflugar og klárar konur til liðs við okkur. Upplýsingatæknigeirinn hentar öllum Hákonía J. Guðmundsdóttir, deildarstjóri upplýsingatæknideildar og yfir- maður upplýsingatæknimála hjá Veritas-samstæðunni. Júlía Rós Atladóttir, fram-kvæmdastjóri Distica, er lyfja tæknir að mennt, en hefur síðan bætt við sig meðal annars meistaragráðu í viðskiptafræði og býr yfir fjölbreyttri stjórnunar- reynslu. „Ég byrjaði á að mennta mig sem lyfjatæknir og hóf í framhaldinu störf í lyfjaiðnaði, fyrst hjá Actavis. Ég hef tvisvar starfað utan lyfja- iðnaðarins, eitt ár hjá Icelandair og eitt ár hjá Coca-Cola en hugurinn leitaði aftur í lyfjaiðnaðinn svo það er fullreynt. Innan Actavis fékk ég tækifæri til að stýra teymum og þá kviknaði áhuginn á stjórnun. Þegar ég hóf störf hjá Distica árið 2009 sett ég mér það markmið að stýra fyrirtækinu og það tókst,“ segir Júlía Rós sem tók við stöðu framkvæmdastjóra Distica í maí síðastliðnum. „Ég er leiðtogi og ég brenn fyrir að sjá fólkið í kringum mig vaxa. Ég er mjög metnaðarfull og árangurs- drifin, þegar tækifærin eru víða í starfi mínu þá getur jafnvægi milli vinnu og einkalífs raskast aðeins, sem er í lagi í einhvern tíma, svo kemur jafnvægið aftur.“ Distica sérhæfir sig í vörustjórn- un fyrir fyrirtæki á heilbrigðis - markaði og dreifir m.a. lyfjum, rannsóknatækjum, rekstrarvörum Pláss fyrir konur við borðið Júlía Rós Atla- dóttir, fram- kvæmdastjóri Distica. og neytendavörum til sjúkrahúsa, hjúkrunarheimila, tannlækna, dýralækna og verslana. „Hjá Distica starfa 78 starfsmenn, starfsaldur er hár og kynjahlutfall er nokkuð jafnt. Framkvæmdastjórn fyrir- tækisins er fjölbreytt, hvort sem litið er til starfsaldurs, menntunar eða reynslu. Rannsóknir sýna að fjölbreyttur hópur tekur betri ákvarðanir en einsleitur hópur,“ segir Júlía og bætir við að innan Veritas-samstæðunnar séu jöfn réttindi. „Það á ekki bara við um kynjajafnrétti heldur er einnig jafnrétti milli starfsmanna. Eigandi Veritas, Hreggviður Jónsson, og forstjórinn, Hrund Rudólfsdóttir, ganga á undan með góðu fordæmi og tala fyrir jöfnum réttindindum og því kemur ekkert annað til greina.“ Júlía er bjartsýn þegar kemur að jafnréttismálum. „Það er fullt af flottum kvenfyrirmyndum út um allt samfélag og það er pláss fyrir konur við borðið. En við eigum enn töluvert í land þar sem karl- menn stýra enn þá flestum stór- fyrirtækjum landsins. Líklega eru nokkrar ástæður sem liggja þar að baki, konur þurfa að vera sýnilegri svo við komum upp í umræðunni þegar það er verið að leita að hæfi- leikaríku fólki til að leiða stórfyrir- tæki. Það tekur tíma að byggja upp stórt og öflugt tengslanet og stund- um er það á kostnað tíma með fjölskyldunni og það eru ekki allir til í þá fórn.“ Hún segir að konur þurfi að sleppa takinu á heimilinu. „Það getur verið erfitt að vera bæði framkvæmdastjóri í vinnunni og á heimilinu. Alla jafna hafa konur sterkari skoðanir á barnaupp- eldi og heimilisrekstri og eiga því erfitt með að sleppa takinu af því. Almennt vilja karlmenn taka meiri þátt heima fyrir en kröfur okkar kvennanna eru oft það miklar að erfitt er að standa undir þeim. Við konur þurfum að hafa meiri trú á okkur og stökkva á tækifærin þegar þau gefast. Svo þurfum við að muna að það þarf ekki að gera allt 100%.“ XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXKYNNINGARBLAÐ 7 F Ö S T U DAG U R 1 9 . J Ú N Í 2 0 2 0 KVENRÉTTINDABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.