Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1935, Blaðsíða 4

Íþróttablaðið - 01.12.1935, Blaðsíða 4
2 IÞRÓTTABLAÐIÐ Fyrsta skíðaförin. Þaö er sjalclgæft, aö við Reykvíkingar getum tekið skiðin okkar og hrist af þeim sumarrykiö uppi á fjöllum.áöur en vetur er genginn í garö. Þetta tækifæri gafst þó á jnessu ári, því hinn 20. okt., viku fyrir fyrsta vetrardag, fór Skíöafélagiö hina fyrstu skíðaför sina. Lagt var af stað kl. 9 árd. frá Austurvelli í 3 átján manna bílum, sem allir voru fullskipaölir glööu og árrisulu skíðafólki. Þegar Miiller hafði gengiö úr skugga um aö allir væru komnir inn og alt væri í lagi, var ekið af stað og eigi staðnæmst fyr en komið var upp að Skiðaskála, þessum nýja og prýðilega vetrarskemtistað Reykjavíkurbúa. Fæstir höfðu komið þangað áður og var þeim öll- um forvitni á að sjá hvernig „vetrarheimilið“ þeirra liti út. Strax og bílarnir námu staðar var hurðum hrundið upp og hlaupið upp að skála. I anddyrinu stóð unglingspiltur og spurði: — Eruð þér í Skíða- Polyfoto er eina polyfotomyndastofan í Reykjavík. Einkaréttur J. Kaidal. PQ LITFQTO hefir gert byltingu á sviði ,,portræt“ myndagerSarinnar. PQLYFOTO er eina myndatökuaðferðin hér, sem getur tekið áframhaldandi svipbrigði, likt og þegar kvik- myndað er. Þessvegna verða polyfoto myndirnar eðli- legar og óþvingaðar. KALDAL. félaginu ? Og auðvitað voru allir í Skíðafélaginu. Inn úr anddyrinu gengur karlmannaskálinn. Þar er vítt til veggja og hátt til lofts. Málverk furðu stór þekja veggina, og eru þau öll af skíðafólki. Andspænis dyrunum er arininn og snarkar þar i viðarkubbum. Gæti ég trúað að þar yrði einhvern- tíma setinn bekkur á síðkvöldum. Einskonar sval- ir liggja meðfram skálanum móti suðri, og virtist skíðafólkið fljótt ætla að taka ástfóstri við þann stað. Inn úr karlmannaskálanum gengur svo kvenna- skálinn, rómantískur og þrunginn af leydardómum svo sem vera ber. Þegar stúlkurar höfðu litast þar um, sögðu tvær þeirra í einu: O hvað hér er yndis- legt. Verður sú lýsing látin duga að sinni. Nú var eftir að svipast um niðri í kjallara og uppi á lofti. Var það gert í skyndi, og kom mönnum saman um að hér væri öllu mjög haganlega fyrir komið. Þá var skálinn kvaddur í bili og haldið á fjöll. Flestir fóru inn í Insta, dal, enda búist við mest- um snjó þar. Færðin var yfirleitt góð þótt nokkuð þunt væri á. Upp úr hádeginu moraði alt af skíða- fólki í dalnum. Sumir sátu að snæðingi, aðrir voru á fleygiferð niður brekkur og bala og enn aðrir þrömmuðu föstum skrefum með pokana á bakinu. Eftir að menn höfðu skoðað sig um og kannað dalinn, var haldið heimleiðis, það er að segja niður að skála. Voru flestir komnir þangað um fjögvir leytið, sumir æriÖ þrej'ttir og allir sveittir, enda var veðrið óvenju rnilt. Nú var þægilegt að setjast inn og fá sér hress- ingu. Varð nú svo mikið að gera í eldhúsinu, að Jörgensen hafði varla við, og er hann þó nokkuð snar í snúningum. Þó fór svo að lokum að allir fengu j)að, sem jjeir báðu um. Var nú hvílst um stund og skrafað saman. Voru menn mjög ánægðir með þessa fyrstu skíðaför og hétu j)vi að fleiri skyldu á eftir fara. Kl. 5 var stigið í bílana og ekið heim á leið. Áður en að skálinn hvarf sýnum, litu menn við í sætum sínum og þökkuðu í huganum hinar góðu móttökur. Kaupið íþróttablaðið. Lesið íþróttablaðið. Útbreiðið íþróttablaðið.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.