Íþróttablaðið - 01.12.1935, Blaðsíða 7
IÞRÓTTABLAÐIÐ
5
Bestu stangarstökkvarar í Evrópu.
19 evrópiskir íþróttamenn hafa stokkiö 4 metra
og ]mr yfir í stang-arstökki. Fara hér á eftir nöfn
þeirra og þjóðerni ásamt aíreki hvers um sig:
Hoff, Noregi 4.25 mtr.
Ljungberg, Svíþjóð 4-i5 —
Schneider, Póllandi 4.14 —
Líndblad, Svíþjóð 4.13 —
Wegner, Þýskalandi 4.12
Rajevski, Rússlandi 4.08 —
Ramadier, Frakklandi .... 4.07 —
Osolin, Rússlandi 4.06 —
Larsen, Danmörku 4-05 —
Múller, Þýskalandi 4.05 —
Zsuffka, Ungverjalandi .. 4.04 —
Petersen, Danmörku 4.04 —
Lindroth, Finnlandi 4-03 —
Korejs, Tékkóslóvakíu . . 4.02 —
Andersson, Svíþjóð 4.00 —
Lange, Svíþjóð 4.00 —
Hartmann, Þýskalandi . . 4.00
Schultz, Þýskalandi 4.00
Gustafsson, Svíþjóð 4.00
Heimsmet í stangarstökki setti Bandaríkjamað-
urinn Graber nú á þessu ári. Stökk hann 4.40 mtr.
Næstir honum koma svo landar hans 3, Keit'n
Brown með 4.39, Meadown 4.36 og Sefton 4.35.
Sá 5. í röðinni er Japaninn Nishida með 4.30.
Islenska metið er 3.32, sett af Karli Vilmunds-
syni í sumar.
íþróttakvikmyndin. Þeir Ben G. Waage forseti
í. S. í. og Sigurður Tómasson úrsmiður í Reykja-
vík, hafa undanfarið sýnt íþróttakvikmyndina, á
eftirtöldum stöðum : Hafnarfirði, Stokkseyri, Kefla-
vík, Hvanneyri, Reykholti, Borgarnesi, Tryggva-
skála og oft í Reykjavík.
Hefir íþróttamönnum verið miki! forvitni á að
sjá þessa kvikmynd, enda hefir alls staðar verið
húsfyllir þar sem hún hefir verið sýnd. Ráðgert er
að sýna hana víðar nú á næstunni.
Grein sú, sem hér fer á eftir, um negrann Joe
Louis, hinn heitnsfræga hnefaleikakappa, sem fyrir
skömmu barði Max Baer svo eftirminnilega niður,
er lauslega þýdd úr ,,Idrætsbladet“, og nokkuð
stytt. Greinin er skrifuð áður en bardaginn fór fram.
I
— Hvað leynist á bak við steingervingssvipinn
í andliti Joe Louis, þegar hann gengur upp á hnefa-
leikapallinn eða sýnir sig á opinberum stöðum?
Við skulum snöggvast gægjast undir grímuna og
athuga hvernig þessi svarti sprengjukastari er í
kunningja- og vinahópi, þegar geislar ljóskastar-
anna skína ekki lengur á hann.
Þótt ótrúlegt kunni að þykja, þá er það samt
víst að þessi steingervingssvipur er uppgerð, settur
upp samkvæmt fyrirmælum annara, því að Joseph
Louis Barrow, fæddur í Alabama af fátæku bómull-
arverkafólki, er eins og fólk gerist flest, þegar hann
er innan um kunningja sína. Hann elskar söng og
hljóðfæraslátt, kætist yfir vel sögðum skrítlum og
tekur þátt í veðmálum, þegar veðhlaup fara frarn.
Þrátt fyrir það að hann er harður sem stál og
æðisgenginn sem villidýr, þegar hann er á pallinum,