Íþróttablaðið - 01.12.1935, Blaðsíða 11
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
9
Hvers er krafist af þátttakendum
Olympíuleikanna 1936?
Eins og aö líkindum lætur, er nú þegar inikið
rætt í erlendum íþróttablöSum, um Olympíuleikana
á komandi ári, og allan undirbúning þeirra. Fæst-
ar þjóöir munu þó enn sem komiS er, vera búnar
að ákveða hvaða lágmarksafrek lagt skuli til
grundvallar fyrir þátttöku í leikunum, en að því
fer nú að líða hvað úr hverju.
Idrætsbladet danska, og norska blaðið Sports-
manden hafa nýlega gert uppástungur í þessu efni,
hvort um sig fyrir íþróttamenn sinnar ])jóðar. og
birtíst hér tafla yfir þau lágmarksafrek, sem þau
telja hæfileg.
Um leið skulu sýnd lágmarksafrek þau, sem ís-
lenska Olympíunefndin hefir ákveðið að ganga út
frá, og sem öll eru miSuð við ákveðinn stigafjölda
samkv. finsku afrekstöflunni, sem sé 782 stig.
Til fróSleiks skulu svo sýnd heimsmetin í hverri
íþróttagrein fyrir sig.
ísland Danmörk Noregur Heimsmet
^100 metra hlaup 11.2 sek 10 7 sek. 10 5 sek. 10 3 sek.
200 — — 22.8 — 22 2 — 21.5 — 20.3 —
400 — — 51.7 — 50.0 - 48 4 — 46.2 —
800 - — 2:01 — 1:55.4 — 1:521 — 1:498 —
1500 — — 4:12.5 — 4.00 - 3:54 — ' 3:48.8 —
5000 — — 15.55.2 — 15:00 — 14:45 — 14:17 -
10C00 — — 33:12.3 — 31:45 — 31:00 — 30:06.2 —
110 — grindahlaup 16.0 — 150 — 146 — 142 -
400 — — 57.9 — 56.0 — 53 5 50.6 —
Hástökk 1 80 mtr. 1.88 mtr. 1.95 mtr. 2.06 mtr.
Langstökk 6 92 — 7.15 — 7.50 — 8.13 —
Stangarstökk 3.72 — 3 90 — 4 40 -
Þrístökk 13.99 — 14.40 — 15.10 — 15.82 —
Kúluvarp 13 67 — 14.50 — 15 70 — 17.40 —
Spjótkast 59.99 — 62.00 — 68.50 — 76.66 — !
Kringlukast 42.33 — 44.00 — 49 00 — 53.10 — !
Sleggjukast 45.33 48.00 51 00 56.90
Norska blaSiS sleppir stángarstökkinu úr til-
lögum sínum. Annars getur blaSið þess, að í níu
íþróttagreinum séu til menn, sem hafi náð þeim
árangri, sem lágmarkstillögur þess krefjist.
Iþróttagreinirnar og mennirnir eru sem hér segir:
400 m. hlaup
800 — —
1500 — —
5000 — —
400 — grindahl.
Hástökk
Langstökk
Þrístökk
Kringlukast
Hjalmar Johannesen 48.4 sek.
sami 1152.1 —
Per Lie 3:54.o —
Rolf Hansen 14145.0 —
Holger Albrechtsen 53.5 —
Birger Halvorsen og
Leif Pettersen 1.95 mtr.
Otto Berg 7.50 —
Eugen Haugland 15.10
Reidar Sörlie 49.00 —
Vcrður fróðlegt aS fylgjast meS, hvernig þessir
9 menn standa sig á Olympíuleikunum í Berlín, ef
þeir verða sendir.
Idrætsbladet segir, eftir aö hafa birt tillögur sín-
ar, að meö mikilli bjartsýni megi búast viö aS hægt
sé aS finna 15 íþróttamenn í Danmörku, sem hafi
möguleika til aS ná þessuni lágmarksafrekum, og
álítur blaðiS aS Danir eigi aS senda 10—15 menn
í frjálsum íþróttum á Olympíuleikana.
Hér mun ekki, aS svo komnu máli, verða lagöur
neinn dómur á tillögur hinnar íslensku Olympíu-
nefndar. Aðeins skal þess getiS, að þær munu síst
vægari, miSaS viS okkar íþróttamenn og allar aS-
stæður, heldur en tillögur þær, sem norska og
danska íþróttablaSiö hafa gert til íþróttamanna
sinna þjóöa.