Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1935, Qupperneq 5

Íþróttablaðið - 01.12.1935, Qupperneq 5
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 3 Ben. G. Waage segir frá 20 ára starfl i stjorn I. 8. í. í tilefni af því, aö )Ben. G. Waage hefir á þessu ári setiS í 20 ár í stjórn íþróttasambands Islands, þar af í 9 ár sem forseti, fór ritstj. blaðsins á fund hans, og bað hann um að segja sér eitthvað frá starfinu á þessu tímabili. — HvaS getið þér sagt okkur frá fyrstu árum yðar í stjórn I. S. I.? — Á fyrstu stjórnarárum mínum í I. S. I., var mest áhersla lögð á að gefa út leikreglur og íþrótta- bækur. Má t. d. nefna Glímubókina, Sundbókina, Heilsufræði íþróttamanna, Knattspyrnulögin o. m. fl. í okkar strjálbygða landi er íþróttamönnum fátt nauðsynlegra en íþróttarit og góðar bækur um í- þróttamál. Með stofnun í. S. í. hófst samstarf og skipulagt heildarstarf um íþróttamálin, og hafa í- þróttalög og leikreglub þær, sem gilda um alt land hjá sambandsfélögum í. S. í., haft mikla þýðingu fyrir íþróttafélögin og alla íþróttamenn. — Hvenær urðuð þér forseti í. S. í.? — Hinn 19. júní 1926 var ég kosinn forseti I- þróttasambandsins, og hefi verið það síðan. Fyrst þegar ég kom í sambandsstjórnina, tók ég við gjald- kerastörfum af Matthíasi Einarssyni, lækni, síðar varð ég bréfritari og varaforseti. —• Hvert álítið þér stærsta málið, sem I. S. I. hef- ir til lykta leitt? Það er erfitt að gera upp á milli allra þeirra mála, sem I. S. I. hefir haft með höndum og komið í framkvæmd, því þau eru öll nauðsynleg menningar- og framfaramál. Eg skal þó minnast á nokkur þeirra. Læknisskoðun á íþróttamönnum tel ég vera eitt af allra nauðsynlegustu og merkustu málum í- þróttamanna. Það er ekki eingöngu að læknisskoð- unin fyrirbyggi smithættu, heldur leiðbeinir hún íþróttamönnum um hvaða íþróttagreinir þeim er best að iðka og á hvern hátt beri að iðka þær. Reglu- leg læknisskoðu.n er svo mikið nauðsynjamál, að hún þarf að komast í framkvæmd sem víðast, a. m. k. í öllum kaupstöðum landsins. Þá má minnast á íþróttakvikmyndir þær, sem I. S. I. hefir undanfarið látið taka og heldur áfram með. Geta þær haft meiri áhrif fyrir íþróttastarfið Ben G. Waage. en margan grunar. Því með tímanum verða þær besta frásögnin um gengi og framfarir lílcams- íþrótta hér á landi. Þá hefir I. S. I. skipað íþróttaráð víðsvegar um landið. Hefir þar fundist besta skipulagið fyrir sam- starfinu við aðra hluta landsins. Elst af þessum 1- þróttaráðum er Knattspyrnuráð Reykjavíkur, sem var stofnað árið 1919. Ennfremur skal minst á íþróttasýning-arnar á Al- þingishátíðinni, sem vöktu mikla athygli og fóru fram með hinni mestu prýði, og voru íþróttamönn- um til sóma. Utanfarir ýmissa íþróttaflokka hafa mikið aukíst á seinni árum, og hefir í. S. í. ávalt veitt þeim allan þann stuðning, sem því hefir verið unt. Og þótt á ýmsu hafi oltið um sigra i Slíkum utanförum, þá hafa þær þó gert iþróttamönnum og öllu íþrótta- lífinu hér heima ómetanlegt gagn, enda hafa íþrótta- menn vorir ávalt fengið orð fyrir drengilega og prúðmannlega framkomu, og jtað er meira virði en nokkur sigur. —• Er forsetastarfið ekki erilsamt? — Jú, en nú er langtum hægara um vik en áður, síðan skrifstofa I. S. I. var opnuð. Nú er hægt að boða alla iþróttaforkólfa til funda svo að segja hve- nær sem er. I skrifstofu þessari halda öll íþrótta- ráð bæjarins fundi sína, og j)ar eru geymd öll skjöl og skilríki sambandsins svo og gjafir, sem því hafa

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.