Íþróttablaðið - 01.12.1935, Side 6
4
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
borist frá einstökum mönnum og félögum frá því
fyrsta.
— Hver eru aðalverkefni I. S. I. nú og í nánustu
framtíö?
— Verkefnin eru mörg og skal eg aöeins drepa
á nokkur þeirra. Þaö hefir oft veriö rætt um það,
og kemst vonandi bráðlega í framkvæmd, að í. S. í.
hefji útgáfu á sérstöku ársriti, þar sem í væru fróð-
legar íþróttagreinar og allar uppl. um starf og
stefnu sambandsins. Þá leggur I. S. I. mikla áherslu
á að fá sem allra fyrst góða leikvangi i öllum kaup-
stöðum landsins og allsherjar íþróttavang (Stadion)
í Reykjavík. Ennfremur sundlaugar og sundskála
sem allra víðast. Þá þarf og að starfrækja sérstaka
íþróttaskóla í öllum kaupstöðum og helst víðar og
svo eftir nokkur ár kemur krafan um íþróttahá-
skóla. íþróttanámskeiðin hafa gert mjög mikið gagn
hvarvetna um land og viljum við stuðla að því af
fremsta megni að; þeim fari fjölgandi með ári
hverju.
Eitt mál vil ég ennþá nefnai sem lítið hefir verið
hreyft hingað til, en það er að koma upp sérstöku
íþróttasafni hér í Reykjavík. Á ég þar við safn af
(ocomalt
er vafalanst tlrykkurinn
fyrlr ífróttamenn í þjálfun.
allskonar íþróttatækjum svo sem: Skíði, skautar,
sleðar, glímubelti, íþróttabúningar, verðlaunagripir
og peningar, íþróttabækur og yfirleitt alt, sem nöfn-
um tjáir að nefna og viökemur íþróttum. Væri ekki
óhugsandi að eftirkomandi kynslóðum þætti fengur
í slíku safni, og því frekar, sem það væri eldra.
Væri því garnan að geta byrjað á þessu sem fyrst.
— Væri ekki nægilegt starf fyrir einn mann að
gefa sig eingöngu að íþróttamálum þjóðarinnar og
hafa forystu um þau?
— Jú, efalaust. Það sýnir hið umfangsmikla og
margþætta starf í. S. í. Enda hefir því verið hreyft
áður að skipa þyrfti sérstakan íþróttamálaráðu-
naut.
— Hvaða kaup hefir forseti 1. S. I.?
— Ekkert. Það er að segja nema ánægjuna af
því að vinna að einu rnesta menningarmáli þjóðar-
innar, og í því að sjá árangur af því starfi.
— Óskið þér eftir að blaðið skili nokkru frá yður
til íþróttamanna.
— Já, skilið bestu kveðjum til allra sannra í-
þróttamanna, og þá sérstaklega til allra samverka-
manna minna í stjórn I. S. I. í þau ár, sem ég hefi
starfað fyrir sambandið. Eg vona og óska að í-
þróttamenn og- íþróttafélög um alt land læri að
starfa sem best saman, þá veit ég að íþróttastefn-
unni vex ásmegin, og þá komum við því í fram-
kvæmd, sem við keppurn að, en það er að líkams-
íþróttir verði almenningseign. Það verða þær þegar
þær eru orðnar skyldunámsgrein vil alla skóla lands-
ins. Gleymum ekki að góð íþrótt er gulli betri.
— Að lokum — segir forsetinn — óska ég yður
og öllum íþróttamönnum til hamingju með þetta
nýja íþróttablað, og vona að það verði ekki fyrir
sömu örlögum og önnur íslensk íþróttablöð, en
verði gott blað og þróttmikið og langtlíft í landinu.
Vér þökkum forsetanum fyrir frásögn hans og
hlýjan hug í garð þessa blaðs, og óskum þess að
íþróttamenn megi bera gæfu til að njóta hans sem
lengst, sem forystumanns íslenskra íþróttamála.
Foreldrar! Til þess að börnin yðar verði nýtir og
hraustir þegnar í þjóðfélaginu, þá alið þau upp í
anda íþróttanna. Látið þau lesa íþróttablaðið.