Íþróttablaðið - 01.12.1935, Qupperneq 20
18
ÍÞRÓTTABLAÐÍB
eru þeir nr. 4; og 5 stigum lægri en Sunderland,
sem var nr. 2 í fyrra.
Hér á eftir fara nöfn félaganna og stigafjöldi:
var staðan þannig 23. nóv. s. 1., eftir 16 leiki:
1. Sunderland ............ 24 stig
2. Huddersfield .......... 22 —
3. Derby County........... 21 —
4. Arsenal ............... 19 —
5. Manchester City ....... 18 —
6. Middlesbrough ......... 17 —
7. Birmingham ............ 17 —
8. Chelsea ............... 17 —
9. Liverpool ............. 16 —
10. Stoke City ............ 16 —
11. Leeds Utd............. 16 —
12. Bolton Vans............ 15 —
13. Sheffieid Wed. ........ 15 —
14. West Bromwich ......... 14 —
15. Wolvsrhamton .......... 14 —
16. Blackburn Rovers ...... 14 —
17. Presíon N. E........... 13 —
18. Everton ............... 13 —
19. Portsmouth ............ 12 —
20. Grimsby ............... 12 —
21. Brentford ............. 11 —
22. Aston Villa ........... 10 —
Lesendum skal bent á, að blaðið er að þessu sinni
20 síður í stað 16, eins og ráðgert var. Vegur
aukningin upp á móti auglýsingum þeim, sem eru
inni í blaðinu.
Vinsælasta
glervöru- og búsáhaldaverzlunin
er
Berlín
Austurstræti 7.
fjiróttaliús Jóns Þorsteinssonar.
I sumar hefir verið unnið kappsamlega að bygg-
ingu nýs íþróttahúss við Lindargötu hér í Reykja-
vík.
Hefir mörgum orðið starsýnt á þessa byggingu
og undrast dugnað og áhuga þess manns, sem þorði
aö leggja í slíkt stórræði á þessum erfiðu tímum.
En Jón Þorsteinsson íþróttakennari er bjartsýnn
maður og stórhuga og unir sér illa á láglendinu.
Eru þeir eiginleikar mikilsvirði fyrir Jiann mann,
sem valið hefir sér það hlutskifti í lífinu að ala upp
hraústa og heillirigöa kynslóð, og kenna mönnum að
þekkja hin hollu áhrif líkamsmentar.
Slíkum manni hæfir vegleg höll, og hana hefir
hann nú reist upp á eigin spýtur. Ætti hann skilið
aö fá ríflegan styrk úr bæjar- og ríkissjóði til þess-
arar byggingar.
Iþróttahús Jóns Þorsteinssonar er mesta íþrótta-
hús á Islandi og vafalaust í fremstu röð slíkra húsa
á Norðurlöndum.
Stærð þess er um 425 fermetrar og er ])að bygt
úr járnbentri st.einsteypu. Bæta má einni hæð ofan
á Jiað ef til kemur.
Tveir fimleikasalir eru í húsinu, annar í kjallara
en hinn á fyrstu hæð. Er sá geysistór og svo stíl-
hreinn og þægilegur í litum, að unun er að dvelja
þar. Salirnir eru einangraðir á þann hátt að berg-
máls gætir vart eins og þó oft vill verða í slíkum
sölum, og er það afarmikill kostur. Gólfin, sem eru
úr vönduðum viði, hvíla á grindum og eru þar af
leiðandi fjaðurmögnuð, en J>að er nauðsynlegt við
allar stökkæfingar.
Loftræsting er mjög fullkomin. Fer hún fram á
J.ann hátt að loftdælur soga að sér loftið úr söl-
unum gegnum síur, sem halda rykinu eftir. Hreinu
lofti er mjög auðvelt að veita inn í salina um
þar til gerðar loftrásir.
Báðum sölunum fylgja rúmgóð búningsherbergi,
og haðklefar með steypiböðum, en í kjailara húss-
ins er herbergi fyrir loft- og gufuböð. Yfir stærri
salnum eru svalir, sem áætlaðai* eru áhorfendum. Öll
íjiróttatæki eru ný og hin vönduðustu, og er sér-
stakt geymsluherbergi fyrir J)au.
í þessum húsakynnum tók svo íþróttaskólinn til
starfa 23. nóv. s. 1. Þann dag bauð Jón nokkrum