Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Blaðsíða 22
Sérblað 03. janúar 2020KYNNINGARBLAÐ
LOFTSTOKKAHREINSUNIN K2:
Hreinsun loftræstikerfa í
fjölbýlishúsum mikilvæg
Loftstokkahreinsunin K2 ehf. sérhæfir sig í hreinsun og sótthreinsun loftræstikerfa
og hefur yfir áratuga reynslu af
hreinsun loftræstikerfa á Íslandi.
Magnús Ásmundsson, verkefnastjóri
K2, segir fyrirtækið sinna
einstaklingum sem og fyrirtækjum
og það sé nóg að gera enda
gríðarlega mikilvægt að hreinsa
loftræstikerfi reglulega áður en þau
skaða heilsu fólks.
Stundum er ekki þörf á hreinsun –
þetta getið þið gert sjálf
Það kemur stundum fyrir að
starfsmaður K2 mætir til að skoða
loftræstingu, til dæmis í baðherbergi
í fjölbýlishúsi, og þá kemur í ljós að
ekki er þörf á hreinsun. Stundum
þarf bara að skrúfa túðuna úr og
þrífa. En þetta geta allir gert sjálfir.
Þegar þörf er á hreinsun – hvernig
fer hún fram?
„Loftræsting í fjölbýlishúsum er í
flestum tilfellum á gluggalausum
baðherbergjum og geymslum. Það
er mjög mikilvægt að loftræstingin
nái að losa raka og hita sem safnast
upp því þegar loftstokkar eru skítugir
og ná ekki að loftræsta rýmið þá er
hætta á að raki þéttist í herberginu
sem býður svo upp á skemmdir og
jafnvel myglu.
Hreinsun fer þannig fram að
starfsmenn K2 mæta og fara
annaðhvort upp á þak eða á
lagnaloft sé það til staðar, þaðan
eru loftræstistokkar hreinsaðir frá
þaki niður í hverja íbúð fyrir sig og
í sumum tilfellum sótthreinsaðir.
Einnig er blásari hreinsaður sé hann
til staðar.
Að því loknu þarf að fara inn í
allar íbúðir í húsinu sem tengjast
loftræstingunni og þar er lofttúðan
tekin úr og þrifin, og restin af
loftstokk hreinsuð. Það er lítið ónæði
fyrir íbúa hússins við svona hreinsun
og yfirleitt tekur ekki meira en 10–15
mínútur að klára hverja íbúð eftir að
búið er að hreinsa lagnir og blásara
frá þaki.
Æskilegt er að hreinsa útsogskerfi
frá baðherbergjum á 3–5 ára fresti.“
Magnús bætir við að K2 bjóði
upp á ástandsskoðun loftræstikerfa
og mat á því hvort tími sé kominn á
hreinsun; ekkert er rukkað fyrir þá
þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Þjónustusíminn hjá
Loftstokkahreinsun K2 ehf.
er 775-7770 og 557-7000.
Heimasíðan er: http://k2.is/
Þessi aðgerð er framkvæmd
í þremur skrefum:
1. Þú byrjar á því að skrúfa
miðjuna úr
2. Síðan snýrðu túðunni til að
losa hana frá
3. Loks skolar þú túðuna og
skrúfar hana síðan aftur