Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Blaðsíða 20
Sérblað 03. janúar 2020KYNNINGARBLAÐ
BÓLSTRARINN -
Hágæða gluggatjöld frá
Bólstraranum
Bólstrarinn við Langholtsveg var stofnaður 1944 af Gunnari V. Kristmannssyni. Í dag
er fyrirtækið rekið af syni hans,
Hafsteini Gunnarssyni, og má með
sanni segja að fyrirtækið sé með
landsins mesta úrval af áklæðum,
gluggatjöldum og veggfóðri. „Við
bjóðum upp á gríðarlegt úrval af
ýmiss konar gæðaefnum frá fremstu
framleiðendum heims. Við erum
algerlega óhrædd við að flytja inn
dýrari efni því það hefur komið
á daginn að fólk vill frekar fá
góð efni sem endast vel, og
er tilbúið til þess að borga
aðeins meira til þess að
upplifa alvöru gæði og
góða endingu,“ segir
Hafsteinn.
Veglegt velúr
„Stöðugt eru að
koma nýjar tegundir
bæði af klassískum
efnum og tískuefnum
og hefur velúr til
dæmis verið að
koma sterkt inn í
innanhússhönnun í
dag. Við flytjum inn
ótrúlega áferðarfallegt
velúrefni í hæsta
gæðastaðli frá ROMO sem
er textílfyrirtæki í fremstu röð
með dýr og flott efni,“ bendir
Hafsteinn á. Bólstrarinn býður einnig
upp á fjölbreytt úrval af veggfóðri
frá þekktustu merkjum í Evrópu. Og
að sjálfsögðu, eins og nafnið gefur
til kynna, býður Bólstrarinn upp á
fyrsta flokks bólstrunarþjónustu.
Gluggatjöld í öllum heimsins litum,
stærðum og áferð
Bólstrarinn þjónustar hvort sem
er einstaklinga, arkitekta eða
innanhússarkitekta við innréttingar
og nýbyggingar. „Fólk er mikið til að
velja gluggatjaldaefni sem hefur
góða hljóðdempunareiginleika.
Þetta er orðið sérstaklega mikilvægt
í nýbyggingum þar sem íbúðir eru
hannaðar til þess að vera opnari og
rýmri, gólfteppi og annar textíll eru
mikið til horfinn og harðari gólfefni
eru valin í staðinn. Þetta getur valdið
slæmri hljóðvist í íbúðinni og þá
verður nauðsynlegt að velja
hágæða gluggatjöld sem
minnka bergmál,“ segir
Hafsteinn.
Bólstrarinn býður
upp á fjölmargar
prufubækur sem hægt
er að fá lánaðar heim
þegar velja skal rétta
efnið. „Það er eiginlega
nauðsynlegt að
fara með efnið
heim til þess að
skoða það í þeirri
birtu sem er í
rýminu og sjá það
í samhengi við það
sem er þar fyrir,“ segir
Hafsteinn. Bólstrarinn
býður einnig upp á
þá þjónustu að fá
fagaðila heim til
þess að taka mál,
ráðleggja við val
á gluggatjöldum
og jafnvel
hjálpa til við
uppsetningu
þegar þar að
kemur.
Nánari upplýsingar
má nálgast á www.
bolstrarinn.is
Bólstrarinn er staðsettur
að Langholtsvegi 82
Sími: 568-4545
bolstrarinn@islandia.is
Opnunartími: mán–fös
09.00–18.00