Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Blaðsíða 12
12 FÓKUS - VIÐTAL 3. janúar 2020 Krabbamein og freyðibað Á sama tíma og hann tók þátt í Leitinni að strákunum gekk Fribbi í gegnum erfiðan tíma í einkalífinu. „Þessi áskorun kom á versta tíma fyr- ir mig persónulega, en þegar ég var valinn einn af tíu bestu umsækjendunum þá mættu Sveppi og Auddi heim til mín. Ég var sem betur fer ekki sofandi enda löngu vaknaður og beið áhyggjufullur eftir for- eldrum mínum. Þennan morguninn leið yfir pabba minn og hann þurfti því að fara á spítala. Hann kom ekki aftur heim þenn- an dag. Mér brá þegar ég sá svo mynda- vélina og Sveppa og Audda og Huga þegar þeir bönkuðu upp á heima hjá mér. Svo kom að fyrstu tökunum og pabbi minn var enn á spítalanum, á leið í uppskurð, og ég hafði því meiri áhyggjur af honum en af sjálfum mér.“ Þegar kom að því að draga áskorun upp úr fötu þá kom á daginn að Fribbi þyrfti að fara í freyðibað með einum keppinaut sín- um. „Á sama degi og ég var að gera þessa áskorun þá var komið að því að skera upp pabba minn. Eftir vel heppnaða áskorun fór ég heim, en þá tók við næsta sjokk.“ Læknar höfðu þá fundið krabbamein í föður Fribba. „Ég sagði þá við hann að ég ætlaði að gera hann stoltan af mér. Hann vissi að ég hefði komist áfram í Leitinni að strákunum en ég gat ekki sagt honum frá sjálfri áskoruninni. Það hefði alveg farið með hann þá. Ég var ekki með allan hug- ann á þessum þætti. Ég skammaðist mín það mikið fyrir að hafa tekið þátt. En auð- vitað vildi ég standa við orð mín og reyna að standa mig eins og hetja á meðan ég var í keppninni. Helst langaði mig bara að detta út. En alveg óvænt komst ég áfram. Þá kom að því að gera skets, en þá gat ég loksins sýnt leikhæfileika mína. Pabbi minn var þá nýkominn heim af spítalan- um og þess vegna var ég allur að lifna við í þættinum. En það var um seinan. Ég var ekki með nógu gott atriði fyrir Pétur og Skara skrípó. “ Aðalsprautan Fribbi datt út úr þáttunum í 8. sæti. Aðrir keppendur voru spurðir hver ætti að detta út og voru flestir sammála um að það væri Fribbi. Þetta upplifði Fribbi sem einelti. Honum hafði reyndar ekki samið vel við hina keppendurna, en hann telur að eftir að hann var rekinn úr þáttunum hafi vin- sældir þáttanna minnkað. „Ég virtist vera aðalsprautan í þessum þáttum og sló í gegn í fyrsta þætti. Þá var ég með hugann allan við keppnina og gerði mitt besta til að heilla dómnefndina með látbragði mínu og húmor. Auddi Blö, Sveppi og Pétur grenj- uðu af hlátri og Pétur þurfti oft að þurrka tárin af gleraugunum. Svo komst ég líka að því að hann er með svipaðan athyglisbrest og ég er með. Hann átti það til að detta út og vera með hugann við allt annað. Pabbi minn dó síðan úr krabbameini 2008. En ég náði að fara með honum á fyrstu myndina sem ég birtist í á hvíta tjaldinu, nefni- lega Astrópíu. Ég náði því að gera pabba stoltan af mér.“ Dramadrottning, en ekki nettröll Myndir þú kalla sjálfan þig nettröll ? „Nei, það er ég alls ekki. Þótt ég hafi átt það til að prakkar- ast og vera með aulabrandara í kommentunum og í stríði við suma notendur, þá er ég ávallt mjög prúður og kurteis. Ég á það samt til að vera stríðinn og með smá dass af kaldhæðni, en ég stunda það ekki að áreita neinn eða spamma á netinu. Það má vel vera að ég fari ansi oft í taugarnar á sumu fólki og ummæli mín hljómi eins og algjört þvaður og bull. Ef ég verð sjálf- ur fyrir áreitni á netinu af alvöru nettröll- um reyni ég alltaf að forðast þau. Ég bara hreinlega nenni ekki að lenda í þrasi við nettröll. Ég er meira svona dramadrottn- ing, en alls ekki nettröll. Ég er ekki maður- inn sem býr til leiðindi. Það er hins vegar fólkið sem er með neikvæð viðhorf til mín og reynir að brjóta mig niður.“ Hvað er það sem heillar mest við sam- félagsmiðla? „Afþreyingarefni fyrst og fremst. Það er svo gott að geta látið hugann reika yfir það sem maður hefur mestan áhuga á. Ég heillast mest af tónlistarmyndböndum og skemmtilegum myndböndum, áhuga- verðum skoðunum frá áhugaverðu fólki í „virkum í athugasemdum“. Og skemmti- legum fréttum, að sjálfsögðu. Þar sem er drama er alltaf gaman!“ Sakaður um karlrembustæla Hvaða áreiti hefur þú helst orðið fyr- ir vegna þátttöku þinnar í opinberri um- ræðu? „Ég gæti nefnt Twitter Elísabetar Ormslev þar sem hún sakaði mig um að vera með karlrembustæla og svona „vict- im-blame“. Þetta gerðist þegar leitin að Birnu Brjáns stóð sem hæst og ég vissi auðvitað ekkert þá um örlög hennar. Ég hafði ansi oft áður séð unglingsstelpur vera að láta sig týnast í borginni viljandi og það var orðið að tísku hjá ungum stelp- um að láta leita að sér. Þegar ég las frétt um Birnu Brjáns um að hún hefði verið ein á ferð þá sagði ég að mér fyndist það ekki sniðugt að stelpur væru einar að þvælast fullar í bænum. Elísabet Ormslev hélt því fram á Twitter-síðu sinni að ég væri með karlrembustæla og fórnarlambsþvætting. Málið er að ég meinti þetta ekki þannig að það ætti að banna konum að vera ein- ar að þvælast á götu óverndaðar. Ég sagði þetta vegna þess að ég hafði áhyggjur af að Birna Brjáns væri þarna á þvælingi alein. Mér þykir afar vænt um allar konur. En hef verið svo oft misskilinn af þeim. Ég þekkti hana Birnu ekki beint, en ég vissi hver hún var. Hún heilsaði mér oft þegar ég mætti henni, en þá var ég að bera út blöðin við heimili hennar á Eyjabakkanum. Hún virk- aði mjög feimin, en mjög róleg og kurteis týpa. Ég var samt aldrei að skipta mér neitt af henni. Enda þekkti ég hana ekkert beint.“ Fribba var ekki skemmt þegar tíst Elísabetar hlaut mikla athygli. „Mér finnst þetta enn full harkalegt einelti. En eftir þessa áreitni Elísabetar hafa flestar konur á Twitter stimplað mig sem mannleysu og fávita og fleira viðurstyggilegt sem ég á ekki skilið. Þetta ýtti mér aftur að sjálfsmorðs- hneigð sem ég er að berjast við enn í dag við. Einelti getur alltaf haft alvarlegar af- leiðingar. Því fékk ég að kynnast á hugi.is þegar einn notandi þar svipti sig lífi. Það hafði jú vissulega áhrif á mig og ég hef einmitt varast að láta þessa gerendur ein- eltis hafa þessi illu áhrif á mig. Þess vegna er ég á lífi enn í dag. Það má jú bæta við, að ég hef orðið fyrir mikilli áreitni frá vin- konum hennar og vinum eftir þetta. Ég hef margreynt að fá hana Elísabetu til að taka þetta tíst til baka, en án árangurs. Ég reyndi jafnvel að hafa samband við móður henn- ar, Helgu Möller. En hún blokkaði mig og heldur með dóttur sinni. Það var svo sem vitað að það myndi gerast. En ég er engin karlremba. Mér þykir vænt um allar konur. Þrátt fyrir að ég hafi oft átt í basli með sam- skipti við konur og að fá þær til að skilja mig.“ Hvernig myndir þú lýsa sjálfum þér í 10 orðum eða færri? „Töffari, listrænn, umdeildur, húmoristi, ógleymanlegur, dramadrottning, virkur í athugasemdum, snillingur, prakkari og einstakur.“ Hvað heldur þú að kæmi fólki, sem þekkir þig eingöngu af samfélagsmiðlum, mest á óvart ef það fengi að kynnast þér? „Það mun komast að því að ég er með gleraugu og án filters og ekki eins svalur og skemmtilegur og ég er á netinu. Það kemst að því líka að ég er bara leiðinlegur maður sem það ætti ekki að vera að eyða miklum tíma í að spjalla við.“ Hvað þyrfti helst að bæta í menn- ingunni á samfélagmiðlum í dag? „Samskiptin þarf helst að laga. Mér finnst áberandi hve margt fólk sem er virkt í athugasemdum leyfir sér oft að vera dónalegt og er oft ausandi ógeðslega ljót- um, ofbeldisfullum orðum á þann sem er til umtals í fréttum. Fólk þarf að fara að taka meira til hjá sjálfu sér og fara meira út og anda að sér meira súrefni til að hafa meiri stjórn á reiði sinni. En það sem ég hef lært af öllum þeim samskiptamiðlum sem ég hef verið á er að fólk á víst mjög erfitt með að hafa hemil á skapinu og eys oft úr sér óþarfa reiðilegum ummælum á netinu. Það virðist hafa sjúka þörf fyrir að láta oft vel í sér heyra. Þetta gerir fólk aðallega til að vekja meiri athygli á sjálfu sér. Sjálfur hef ég oft fengið að kenna á því þegar ég eys minni reiði í kommentakerfunum. En ég er samt alltaf mjög rólegur yfirleitt þegar ég kommenta. Maður verður samt alltaf að ná að hafa hemil á sjálfum sér áður en maður ýtir á ENTER-takkann. Annars þarftu að taka afleiðingunum. Fólk á það til að hafa gaman af því að at- ast í litla manninum á netinu. Þótt ég sé 179 sentímetrar á hæð þá er ég oft lítill í mér á netinu og því oft verið mjög auðvelt skotmark fyrir einelti. Þess vegna segi ég aftur; samskipti og hegðun á netinu þarf að laga. Ég þarf líka að sjálfsögðu að bæta mína hegðun. Maður er sífellt að þrosk- ast. Eigum við ekki bara að segja að batn- andi manni er best að lifa?“ Hvernig eru samskiptareglur á netinu ólíkar þeim reglum sem gilda í raun- heimi? Myndir þú segja að öðruvísi sið- ferði ríki í samskiptum fólks á internetinu? „Já, fólk er opinskárra á netinu en í raunheimi. Þú segir ekki alltaf sömu hlutina og þú segir á netinu. Netheim- ur birtir oft falska mynd af raunveruleik- anum. Ég þyki oft svalur töffari og mik- ill húmoristi og snillingur á netinu. En í raunheimi er ég eins og skjaldbakan sjálf. Dreg mig inn í skel og loka mig al- veg frá umheiminum. Ég eyði líka mest- um hluta lífs míns í tölvuleikjum og þvæl- ing á netinu. Er algjör slóði. Ég þarf jú svo sannarlega að taka mig á í þessu og fara breyta þessum lífsstíl á næsta ári.“ n Langvarandi atvinnu- leysi getur hreinlega gert út af við mann. Maður verður miklu félagslega einangraðri og upplifir meiri depurð, jafnvel lífsleiða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.