Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Blaðsíða 25
FÓKUS 253. janúar 2020 B jö rgvin Franz G ísa ls o n Stína Ágústsd ót tir Sigurður Flosa so n KK STJÓRNANDI & KYNNIR: Sigurður Flosason NÝÁRSTÓNLEIKAR Í ELDBORG 5. JANÚAR KL. 20.00 Taktlaus „kattarstrófa“ K vikmyndina Cats þarf nánast að sjá til þess að trúa, þótt sennilega sé vænlegast að sleppa því að sjá hana. Hér er um að ræða mynd sem legg- ur allt undir, með ómælda einlægni að vopni og vilja til að setja nýstárlegan svip á eitthvað gamalt. Útkoman er einstak- lega mislukkuð, makalaust súr, löðrandi í blætis kenndum yfirtónum, einhæfum dansnúmerum, predikunum og áferð sem snýr hvorki upp né niður. Myndin er þar af leiðandi allt sem umtalið hefur lofað og meira til, sem og miklu minna. Það segir sig reyndar sjálft að nota- gildi kvikmyndar sem samanstendur aðal- lega af söng stendur og fellur svolítið með þeim fjölda laga sem falla í kramið hjá að- dáendum. Cats, eins og margir vita, kem- ur úr smiðju hins virta söngleikjahöfundar Andrews Lloyds Webber (sem hefur einnig getið af sér Superstar, Evítu og Óperu- drauginn, svo dæmi séu nefnd) og er því nokkuð gefið að ágætis púður hafi verið lagt í stærsta aðdráttarafl þessarar kvik- myndar. Þar að auki er um að ræða lang- lífasta Broadway-söngleik allra tíma og ljóst að verkið á sér dygga aðdáendur. Með umræddri bíóaðlögun hafa að- standendur þó krukkað í upprunalega verkið með alls konar skáldaleyfi, bæði í sögu- og dansuppsetningu, og tekst myndinni þá bæði að útiloka sinn stærsta kjarnahóp og megnið af nýgræðingum – fyrir utan það að vera einfaldlega útlitslega eintómt martraðarfóður, efnislega úti á þekju og sjarmalaus fyrir allan peninginn. Og aldeilis hefur peningum verið dælt í þessa „kattarstrófu.“ Þó er óneitanlega já- kvæðan punkt að finna í sviðsmyndum og hönnun þeirra, en það hrós gæti stafað af því hversu mikil pína er að fylgjast með út- liti og förðun leikaranna sem eigna sér for- grunninn. Tómt punt í stórum haug Oft er sagt að það þurfi mikla hæfileika til að framleiða almennilega bitastætt sorp og hér sinnir enginn sínu verki af hálfum hug; frá leikstjóra myndarinnar (og það er sami maður og ber ábyrgð á því að leyfa Russell Crowe að góla tímum saman í Vesalingun- um) til framleiðsluteymis og að sjálfsögðu þeirra skemmtikrafta sem tjaldið prýða í hinum ljótustu kattargervum. Þess vegna má spyrja sig hvort betri nálgun hefði ekki verið að fara alla leið með stílinn og dressa verkið upp sem tölvuteiknimynd, fyrst hún er þegar með hálfan fótinn þar inni hvort sem er, föst á einhverjum undarlegum millivegi eins og enn eigi eftir að klára alla fínslípun. Á þeim nótum er orðið víðfrægt núna að aðstandendur reyndu sitt besta til að lagfæra heildarsvipinn eftir eitruð við- brögð við fyrstu stiklu myndarinnar, en þú getur endalaust skreytt hvaða úrgang sem er með punti og kallað það gjörning án þess að hægt sé að fela þá staðreynd hvað um ræðir – burtséð frá því að þú losnar aldrei við lyktina. Gífurlegt fagfólk á borð við Jennifer Hudson, Idris Elba, Ian McKellen og Judi Dench kemur án efa skást út úr þessari háfleygu djöflasýru, að því gefnu að hægt sé að komast yfir truflandi og gervilegt út- lit, sem er blanda af vandaðri búninga- vinnu og ferlegum tölvubrellum. Hudson á heiðurinn á því að tileinka sér lagið Memory, þekktasta einsöng verksins, sem hún skilar af sér með prýði, en sögunni tekst aldrei að vinna sér inn þann hápunkt sem lagið táknar. Framvindan er geysilega þunn og samanstendur mestmegnis af trúarrausi, misskýrum allegóríum og fígúr- um sem koma og fara með þeim eina til- gangi að kynna sig og hverfa síðan á brott. Hver fígúra er mikill karakter en annað hvert númer er meira eins og uppfylling. Sagan reynir að segja það beint út undir lokin að kattardýr og mannfólk eigi meira sameiginlegt í sínu eðli en mætti ætla, en út frá táknfræðilegu gildi er lítið í inni- haldinu sem styðst við það. Að mynda samantekt á klúðri eins og Cats býður ekki upp á neitt annað en ara- grúa af kattartengdu orðagríni. Þó liggur við að um meira slíkt sé að ræða í sjálfri myndinni en í samanlagðri slæmri gagn- rýni. Þetta gefur þá lúmskt í skyn að að- standendur hafi ekki aðeins verið með- vitaðir um eigin fáránleika, heldur búnir undir skítkastið. Það er gott að þeir undir- bjuggu sig vel, þótt gjarnan hefði mátt nota sambærilega undirbúningsvinnu í af- ganginn af innihaldinu. Metnaðinn vant- ar svo sannarlega ekki í verkið frekar en sálina, en hvort tveggja týnist gjörsam- lega innan um taktlausu fíflalætin og fram- setningu sem er lapþunnum farsa líku- st. Þó væri hægt að afsaka helstu brotin ef myndin væri ekki fyrst og fremst hund- leiðinleg. Þetta kemur frá einstaklingi sem er bæði mikill aðdáandi söngleikja og kattar dýra, en að áhorfi loknu þarf undir- ritaður mögulega að endurskoða ást sína á hvoru tveggja. Í stuttu máli: Mjá, nei. Sjáðu Cats ef þú kannt að meta … N in e Li ve s (2 0 16 ) Ca ts a nd D og s (2 0 0 1) G lit te r ( 20 0 1) Ca tw om an ( 20 0 4) Tómas Valgeirsson tomas@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.