Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Qupperneq 20
Sérblað 03. janúar 2020KYNNINGARBLAÐ BÓLSTRARINN - Hágæða gluggatjöld frá Bólstraranum Bólstrarinn við Langholtsveg var stofnaður 1944 af Gunnari V. Kristmannssyni. Í dag er fyrirtækið rekið af syni hans, Hafsteini Gunnarssyni, og má með sanni segja að fyrirtækið sé með landsins mesta úrval af áklæðum, gluggatjöldum og veggfóðri. „Við bjóðum upp á gríðarlegt úrval af ýmiss konar gæðaefnum frá fremstu framleiðendum heims. Við erum algerlega óhrædd við að flytja inn dýrari efni því það hefur komið á daginn að fólk vill frekar fá góð efni sem endast vel, og er tilbúið til þess að borga aðeins meira til þess að upplifa alvöru gæði og góða endingu,“ segir Hafsteinn. Veglegt velúr „Stöðugt eru að koma nýjar tegundir bæði af klassískum efnum og tískuefnum og hefur velúr til dæmis verið að koma sterkt inn í innanhússhönnun í dag. Við flytjum inn ótrúlega áferðarfallegt velúrefni í hæsta gæðastaðli frá ROMO sem er textílfyrirtæki í fremstu röð með dýr og flott efni,“ bendir Hafsteinn á. Bólstrarinn býður einnig upp á fjölbreytt úrval af veggfóðri frá þekktustu merkjum í Evrópu. Og að sjálfsögðu, eins og nafnið gefur til kynna, býður Bólstrarinn upp á fyrsta flokks bólstrunarþjónustu. Gluggatjöld í öllum heimsins litum, stærðum og áferð Bólstrarinn þjónustar hvort sem er einstaklinga, arkitekta eða innanhússarkitekta við innréttingar og nýbyggingar. „Fólk er mikið til að velja gluggatjaldaefni sem hefur góða hljóðdempunareiginleika. Þetta er orðið sérstaklega mikilvægt í nýbyggingum þar sem íbúðir eru hannaðar til þess að vera opnari og rýmri, gólfteppi og annar textíll eru mikið til horfinn og harðari gólfefni eru valin í staðinn. Þetta getur valdið slæmri hljóðvist í íbúðinni og þá verður nauðsynlegt að velja hágæða gluggatjöld sem minnka bergmál,“ segir Hafsteinn. Bólstrarinn býður upp á fjölmargar prufubækur sem hægt er að fá lánaðar heim þegar velja skal rétta efnið. „Það er eiginlega nauðsynlegt að fara með efnið heim til þess að skoða það í þeirri birtu sem er í rýminu og sjá það í samhengi við það sem er þar fyrir,“ segir Hafsteinn. Bólstrarinn býður einnig upp á þá þjónustu að fá fagaðila heim til þess að taka mál, ráðleggja við val á gluggatjöldum og jafnvel hjálpa til við uppsetningu þegar þar að kemur. Nánari upplýsingar má nálgast á www. bolstrarinn.is Bólstrarinn er staðsettur að Langholtsvegi 82 Sími: 568-4545 bolstrarinn@islandia.is Opnunartími: mán–fös 09.00–18.00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.