Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Side 6
6 FRÉTTIR 5. JÚNÍ 2020 DV
„Í dag eru 210 nöfn á þeirri
skrá. Elsta málið á þeirri
skrá er frá 1930. Sökum þess
að staðfestar upplýsingar og
rannsóknargögn liggja ekki
fyrir í öllum eldri manns-
hvarfsmálum, má álykta sem
svo að málin séu mun fleiri,
ef horft er til áranna fyrir
1930. Öllum þessum málum
er haldið opnum, því undan-
farin ár hafa komið upp mál
þar sem hægt hefur verið
að loka gömlum málum með
DNA-rannsókn og veita fjöl-
skyldum kærkomnar stað-
festar upplýsingar. Auk þess-
arar skrár um mannshvörf
á Íslandi er kennslanefndin
með upplýsingar um 10 ein-
staklinga sem hafa horfið
erlendis og erlend lögreglu-
yfirvöld stjórnað rannsókn á.
Elsta málið þar er einnig frá
1930,“ segir hann.
Ástæður hvarfa misjafnar
Ástæður mannshvarfa eru
misjafnar. Þau getur borið
að þannig að einstaklingur
lætur sig hverfa, í lengri eða
skemmri tíma. Þau geta einn-
ig komið til vegna slysa eða
sjálfsvíga og verða þau þá
með þeim hætti að einstakl-
ingur fellur í sjó, vatn eða
gjótu. Þá geta mannshvörf
einnig stafað af mannavöldum
og hafa að minnsta kosti fimm
óupplýst mannshvörf verið
rannsökuð sem manndráps-
mál á Íslandi.
L ögreglan fær reglulega tilkynningar um horfna einstaklinga. Þegar lög-
reglan hefur eftirgrennslan að
þessum einstaklingum koma
þeir yfirleitt í leitirnar ein-
um til tveimur sólarhringum
eftir að tilkynning berst. Í
einhverjum tilfellum ber eftir-
grennslan ekki árangur.
Aðstoð frá
björgunarsveitum
Runólfur Þórhallsson, for-
maður kennslanefndar og
aðstoðardeildarstjóri í grein-
ingardeild ríkislögreglustjóra,
segir að þegar lögreglu berst
tilkynning um mannshvarf
hefjist rannsókn, sem er á
forræði lögreglustjóra þess
umdæmis sem fær tilkynn-
inguna.
„Aðstæður geta auðvitað
verið mjög mismunandi en í
upphafi hvers máls er unnið
með þær vísbendingar sem
berast og eins stundar lögregl-
an sjálfstæða upplýsingaöflun.
Iðulega er leitað aðstoðar
björgunarsveita sem bætast
þá við mannafla lögreglu og
hafa björgunarsveitarmenn í
gegnum árin aflað sér bæði
mikillar reynslu við leit að
týndu fólki, og eins menntað
sig á því sviði. Á þessu stigi
málsins kemur kennslanefnd-
in ekki að rannsóknum mála,
nema þá til að veita upplýsing-
ar og ráðleggingar um fram-
vindu hvers máls fyrir sig
hvað varðar staðfest kennsl,“
segir Runólfur.
Tannlæknar og
DNA-sérfræðingar
„Eitt af því sem lögreglan
gerir í mannshvarfsmálum
er að fylla út samræmt, al-
þjóðlegt form sem er útbúið
af Interpol. Það er gert því
sum mannshvarfsmál teygja
anga sína til annarra landa.
Eyðublaðið er mjög ítarlegt
og markmiðið er að safna sem
bestum upplýsingum. Það er
þá fyrst sem kennslanefnd
ríkislögreglustjóra kemur
sem stoðdeild inn í rannsókn
lögreglu.
Þegar líkamsleifar finnast
aðstoðar kennslanefnd lög-
regluembættin við að rann-
saka það sem finnst, með
það að markmiði að staðfesta
kennsl viðkomandi. Innan
kennslanefndarinnar eru
réttarlæknir, tannlæknar og
DNA-sérfræðingar og sér-
fræðikunnátta þessara aðila
nýtist vel við þessar rann-
sóknir,“ segir Runólfur.
Elsta málið á skrá frá 1930
Runólfur segir að eitt af verk-
efnum kennslanefndarinnar
sé að halda utan um svo-
kallaða horfinnamannaskrá.
210
MANNS
HORFNIR
Mannshvarf er skilgreint sem
atvik þar sem einstaklingur
hverfur, með óútskýrðum hætti.
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
Framhald á síðu 8 ➤
Gjarnan er leitað að týndu fólki í hrauni og gjótum. Til að mynda var snemma leitað að Guðmundi
Einarssyni, sem Guðmundar- og Geirfinnsmálið var kennt við, í gjótu í Hafnarfjarðarhrauni. MYND/EYÞÓR
Sean Bradley
Fréttablaðið greindi frá því 1. maí
síðastliðinn að fiðluleikarinn Sean
Bradley hefði horfið sumarið 2018.
Hann hafði spilað með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í áratugi, ásamt
því að kenna við Tónlistarskólann í
Hafnarfirði um árabil.
Hvarf Seans bar til með vægast
sagt dularfullum hætti. Samkvæmt
heimildum Frét tablaðsins hafði
hann mælt sér mót við vinkonu sína
í júní 2018. Þau ætluðu að keyra
saman til Reykjavíkur og fara í
kirkju. Hann mætti hins vegar ekki
og þrátt fyrir ítrekuð símtöl náði hún
ekki í hann. Ekkert spurðist til hans
um tíma og kom sonur hans meðal
annars til Íslands til að heimsækja
hann. Sonurinn fann hins vegar
föður sinn hvergi. Sean sagði síðan
við vini sína á samfélagsmiðlum að
hann væri kominn til Spánar. „Það
fannst okkur öllum mjög skrýtið því
hann var ekki fyrir að fljúga. Hann
vildi helst ekki fara upp í flugvél,“
segir vinkonan. Sean er að sögn
vina það flughræddur að það hafi
haldið honum frá því að heimsækja
fjölskyldu sína á Bretlandseyjum.
Sean er með gigt og hreyfiskertur
sökum þess. Hann gat einungis
gengið stut tar vegalengdir án
stuðnings. „Svo hvarf hann bara af
Facebook og við höfum ekki heyrt
neitt,“ segir hún. Rannsókn á hvarfi
hans stendur enn yfir. FRÉTTABLAÐIÐ 1. MAÍ 2020
Hann vildi
helst ekki
fara upp í
flugvél.