Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Qupperneq 22
S ólborg Guðbrandsdóttir er 23 ára Keflvíkingur. Ásamt því að halda úti
Instagram-síðunni Fávitar
er Sólborg er tónlistarkona,
starfar sem fyrirlesari og er
í lögfræðinámi við Háskóla
Íslands. Hún stefnir að því að
gefa út bókina Fávitar fyrir
næstu jól.
„Fávitar er fræðslubók sem
svarar þeim mörg hundruð
spurningum sem ég hef fengið
sendar til mín á síðunni sjálfri
og á fyrirlestrunum mínum
um allt land síðastliðin ár frá
börnum og unglingum. Spurn-
ingarnar snúast meðal annars
um kynlíf, ofbeldi, samskipti,
mörk og fjölbreytileika. Ég var
búin að vera með þessa hug-
mynd í kollinum í smá tíma og
ákvað að láta verða af þessu,
þar sem eftirspurnin eftir
aukinni kynfræðslu meðal
unglinga er gríðarleg, og hefur
verið í allt of langan tíma.
Viðtökurnar við verkefninu
hafa verið framar vonum.
Söfnunin á Karolina Fund er
„all or nothing“ fjármögnun-
arverkefni sem hefur ákveð-
inn tímaramma, svo að annað-
hvort tekst mér að safna fyrir
útgáfu bókarinnar þar inni
eða ekki. Söfnunin er komin
upp í 31 prósent á nokkrum
dögum og ég er gríðarlega
þakklát fyrir það. Á Karo-
lina Fund er hægt að styrkja
útgáfu bókarinnar með því
að forpanta bók eða bækur,
panta fyrirlestur hjá mér, eða
styrkja með frjálsum framlög-
um. Allt saman er vel þegið,“
segir Sólborg.
„Það skiptir máli að við sem
samfélag leitum allra leiða til
að reyna að koma í veg fyrir
ofbeldi og ein af þeim leiðum
er aukin fræðsla.“
Orðin þreytt á áreitninni
Sólborg byrjaði með Fávita-
síðuna þegar hún var nítján
ára gömul.
„Ég var hreinlega orðin
þreytt á því hversu oft ég og
aðrar stelpur í mínu lífi urðu
fyrir kynferðislegri áreitni á
netinu og mig langaði að reyna
að fokka aðeins upp í þessu.
Það hefur heldur betur tekist
með þessari gríðarlegu sam-
stöðu, en það eru 27 þúsund
manns sem fylgja síðunni í
dag,“ segir Sólborg.
„Það sem drífur mig áfram
í þessu er að verða vitni að
árangri í þessum málum og að
heyra það að ég hafi hjálpað
fólki með erfiða hluti, eins og
það að leita sér hjálpar eftir
kynferðisofbeldi, eða að koma
Sólborg Guðbrandsdóttir sýnir hvaða raunveruleiki blasir gjarnan við konum á netinu. MYND/AÐSEND
Hér má sjá sýnishorn af því sem Sólborg deilir á Instagram. SKJÁSKOT/INSTAGRAM @FAVITAR
út úr skápnum. Það er ómetan-
legt.“
Síðustu fjögur ár hafa verið
viðburðarík hjá Sólborgu en
það eru nokkur atvik sem eru
henni sérlega minnisstæð.
„Að fá viðurkenningu frá
forseta Íslands og JCI Ís-
land fyrir vinnuna mína, er
stærsta klapp á bakið sem ég
hef nokkurn tímann fengið og
ég mun aldrei gleyma því,“
segir Sólborg.
Gott að hafa í huga
Við spurðum Sólborgu hvað
væri gott að hafa í huga varð-
andi samskipti á netinu.
„Ég held að það sé tvennt
sem mikilvægt er að velta
vöngum yfir áður en maður
ýtir á „senda“ á netinu. Það
er annars vegar: „Myndir þú
segja þetta við manneskjuna
ef hún stæði við hliðina á þér?“
og hins vegar: „Hvernig myndi
þér líða ef þú fengir þessi
skilaboð send til þín?“ Það eiga
ekkert að gilda neitt öðruvísi
reglur um samskipti á netinu
en samskipti sem eru augliti til
auglitis,“ segir Sólborg.
Hvað geta foreldrar gert?
„Varðandi foreldra, þá held
ég að það sé mjög mikilvægt
að ungt fólk viti af því að það
geti leitað til foreldra sinna,
að foreldrar upplýsi börn sín
um að þeir séu til staðar, séu
tilbúnir til að hlusta og veita
leiðbeiningar, ef börnin vilja fá
svör við einhverju, eða treysta
þeim fyrir einhverju. Ég held
að fræðsla sé mun árangurs-
ríkari leið heldur en nokkurn
tímann bönn eða skammir. Í
stað þess að foreldrar fylgist
með hverju skrefi barna sinna
á netinu er mikilvægt að upp-
lýsa þau um þeirra réttindi og
hvað séu eðlileg samskipti og
hvað ekki,“ segir Sólborg og
bætir við:
„Annars varðandi almenna
kynfræðslu frá foreldrum,
þá mæli ég með bók Siggu
Daggar kynfræðings, sem
heitir Kjaftað um kynlíf. Hún
er leiðarvísir foreldra fyrir
kynfræðslu barna sinna og
ótrúlega upplýsandi.“ n
Sólborg ætlar að gefa út bókina
Fávitar fyrir jólin.
22 FÓKUS 5. JÚNÍ 2020 DV
SÓLBORG SAFNAR FYRIR FÁVITUM
Aktívistinn Sólborg Guðbrandsdóttir safnar fyrir útgáfu á bókinni Fávitar. Hún heldur
úti samnefndri Instagram-síðu, sem er átak gegn stafrænu og öðru kynferðisofbeldi.
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is