Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Qupperneq 28
28 MATUR 5. JÚNÍ 2020 DV Una í eldhúsinu Lambaspjót 600 g lambafillet-bitar (èg keypti sítrónumaríneraða bita hjá Kjötkompaníi) 1 gul paprika 1 rauð paprika 1 appelsinugul paprika 1 rauðlaukur 1 hvítlaukur 1 kúrbítur 1 askja sveppir Saxið grænmetið allt saman niður og reynið að hafa bitana frekar í stærri kantinum. Þræðið grænmeti og kjöt að vild á spjót. Setjið á grillið og gefið ykkur góð- an tíma til að snúa spjótunum svo allar hliðar verði jafn vel eldaðar. Berið fram með góðri sósu. Bananar með púðursykri 4-6 bananar 4-6 msk. púðursykur Vanilluís eða þeyttur rjómi Kljúfið hvern banana í tvennt og takið miðjuna úr hvorum bita, eða myndið pláss til að fylla bananann af púðursykri. Setjið um eina matskeið af púður- sykri í miðjuna, pakkið inn í ál- pappír og grillið í um 10 mínútur. Setjið bananann í skál og berið fram með ís eða þeyttum rjóma. Verði ykkur að góðu. Ofnbakað eggaldin 1 meðalstórt eggaldin 15 ólífur Fetaostur í kryddolíu Handfylli af ferskri steinselju Byrjið á að skera eggaldin í meðal- þykkar sneiðar og setjið á grillið. Saxið ólífur smátt og setjið yfir eggaldinsneiðarnar ásamt feta- osti. Setjið í eldfast mót og inn í ofn við 180 gráður í um 10 mínútur, eða þar til fetaosturinn hefur bráðnað. Setjið sneiðarnar á fat, klippið niður ferska steinselju og stráið yfir til að bragðbæta. Hérna er uppskrift að góðu grill- kvöldi. Lambaspjót með alls kon- ar girnilegu grænmeti, ofnbakað eggaldin með ólífum og fetaosti og í eftirmat grillaðir bananar með púðursykursfyllingu. MYNDIR/AÐSENDAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.