Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Page 38
A lex Þór Hauksson er íslenskur knattspyrnu-maður sem landsmenn
eru farnir að kannast við eftir
fjögur góð ár í efstu deild með
Stjörnunni.
Alex spilaði sinn fyrsta
meistaraflokksleik fyrir
Stjörnuna aðeins 17 ára gam-
all, eftir að hafa byrjað feril-
inn á Álftanesi og vakti þar
verðskuldaða athygli.
Það kom kannski mörgum á
óvart þegar nafnið Alex Þór
Hauksson var á leikskýrslu og
jafnvel í byrjunarliði Stjörn-
unnar fyrir fyrsta leik í Pepsi-
deildinni árið 2017.
Alex lék heila 17 deildarleiki
það tímabil og vakti verulega
athygli fyrir frammistöðu
sína. Síðan þá hefur Alex
haldið sæti sínu sem lykilmað-
ur í sterku liði Garðbæinga.
Við fengum þennan stór-
efnilega miðjumann til að
rifja aðeins upp ferilinn til
þessa og hvað gerði hann að
þeim leikmanni sem hann er
í dag.
„Ég var í Álftanesi í yngri
flokkum og þar var ég algjör
meðaljón, ég var bara ágætur,
alltaf í A-liði, en aldrei bestur
eða neitt þannig. Það var ekki
fyrr en í fimmta flokki sem ég
byrjaði að fá brennandi áhuga
á þessu og var alltaf úti á velli.
Það var í fimmta flokki sem
ég áttaði mig á því að þetta
væri það skemmtilegasta sem
ég geri. Síðan þá hef ég verið
með hrikalega mikla ástríðu
fyrir þessu.“
12 ára með meistaraflokki
Það eru ekki allir knatt-
spyrnumenn, í raun mjög
fáir, sem geta montað sig af
því að hafa spilað meistara-
flokksleik aðeins 12 ára, Alex
fékk óvænt tækifæri árið
2012 þegar Álftanes spilaði í
3. deildinni.
Alex kom inn á sem vara-
maður þegar örfáar mínútur
voru eftir, en Álftanes tapaði
þeim leik 5-1 gegn Hugin. Við
fengum hann til að fara aðeins
yfir hvað gekk á og af hverju
12 ára gutti væri að spila leik
í meistaraflokki.
„Ég var 12 ára og Þór-
hallur Dan var þá þjálfari í
meistaraflokki. Álftanes var
í þriðju deildinni og það var
þunnt í mannskapnum á þeim
tíma og enginn 2. eða 3. flokk-
ur. Þetta var næsti flokkur á
eftir og það vantaði nafn til
að fylla upp í skýrslu. Valið
stóð á milli mín og Magga Bö,
vallarstjóra KR, og Þórhallur
treysti mér fyrir því hlutverki
að vera á bekknum, sem ég
skil enn þá ekki í dag.
Þeir sem hafa séð Magga Bö
í strikernum vita að hann skil-
ar alltaf mörkum! Ég hef ekki
lagst í neina rannsóknarvinnu
til að finna út hvort þetta sé
met eða ekki en ég efa það.
Mér finnst það alveg hæpið!
Þetta var hvað, 2012, ég var
12 ára að verða 13.“
Alex er aðeins tvítugur
að aldri og á svo sannarlega
framtíðina fyrir sér. Það er þó
ekki óalgengt að leikmenn séu
farnir út á því aldursári.
Blaðamaður spurði Alex út
í áhuga að utan og einfaldlega
af hverju hann væri enn að
spila á Íslandi.
„Það er nú bara þannig að
þetta er flókið og þú þarft að
vera á réttum tíma á réttum
stað og það hefur ekki gerst
hingað til, en það hefur ekki
mikið verið að gerast ef við
tökum þessi fjögur ár. Þetta
hefur verið eitthvað hér og þar
en ekkert alvöru áþreifanlegt.
Núna fór allt í stopp út af CO-
VID, en við sjáum hvað gerist.
Það er klárlega mitt markmið
að fara út og ég vona að ég nái
því fyrr en seinna.“
Tveir aðalþjálfarar
Það verður öðruvísi kerfi hjá
Stjörnunni á þessu tímabili,
enda verða tveir aðalþjálf-
arar á hliðarlínunni: Ólafur
Jóhannesson og Rúnar Páll.
Óli Jó, eins og hann er kall-
aður, var síðast þjálfari Vals
og vann Íslandsmeistaratitil-
inn tvö ár í röð.
Hvernig tekur Alex í þessa
breytingu og horfir hann á
annan þeirra sem aðalþjálf-
ara?
„Rúnar hefur alltaf verið
við stjórnvölinn með góðan
aðstoðarmann, en við höfum
breytt um aðstoðarmann á
hverju tímabili, þeir komu
með sínar áherslur og hafa
allir verið frábærir. Ég
treysti honum 100 prósent
fyrir því að finna einhvern
traustan í starfið og svo kem-
ur þetta, tveir aðalþjálfarar,
Óli Jó og Rúnar. Ég varð um
leið mjög spenntur. Maður
hefur heyrt af færni Óla
og ég veit hvers megnugur
Rúnar er.
Fyrir mér eru þetta bara
tveir aðalþjálfarar og mér
finnst þeir skipta þessu vel
á milli sín. Þetta virkar sem
einn maður og fyrir mér er
enginn undir eða yfir. Ég
vorkenni persónulega línu-
verðinum sem verður okkar
megin!“
Draumaliðið
Á léttu nótunum báðum við
Alex um að velja sitt fimm
manna draumalið skipað leik-
mönnum Stjörnunnar – enda
hefur miðjumaðurinn leikið
með ófáum góðum spilurum í
Garðabæ.
Alex fær sjálfur pláss á
miðjunni og valdi hann fjóra
góða til að fylla upp í stöð-
urnar.
„Vá, þetta er spurning, ég
hef aldrei hugsað út í þetta. Ég
tek Halla [Harald Björnsson]
í markið, hann er semi auto.
Hann er kominn í skepnu-
form með Rajko [Stanisic]
sem markmannsþjálfara og
verður svakalegur. Við erum
að tala um Danna Lax [Daníel
Laxdal] í miðverðinum. Danni
er með besta leikskilning sem
ég veit um, hann les leikinn
fáránlega vel og er með þessi
villtu hlaup fram á við, sem
brjóta upp varnir andstæðing-
anna. Þá tek ég Hilmar Árna
[Halldórsson] með mér á miðj-
una. Það er frekar sjálfgefið,
hann skorar og leggur upp
mörkin. Ætli við tökum ekki
bara villidýrið Guðjón Bald-
vinsson frammi til að þjösn-
ast. Hann í ham og Guð blessi
þig. Fótbolti er skemmtun og
eitt af því sem ég myndi borga
mig inn á til að horfa á er
ungstirnið Sölvi Snær [Guð-
bjargarson]. Ég set hann sem
svona X-faktor í liðinu. Hann
er frábær í fótbolta og mjög
efnilegur.“
Við fengum Alex til að ræða
aðeins betur um Óla Jó og
hvernig áhrif hans áherslur
hafa haft á Stjörnuliðið.
Óli býr sjálfur yfir gríðar-
legri reynslu og var til að
mynda landsliðsþjálfari Ís-
lands frá 2007 til 2011 áður en
hann tók við Haukum, Val og
færði sig svo í Stjörnuna.
Alex er gríðarlega ánægður
með komu hans í liðið og hafði
lítið annað en frábæra hluti að
segja um hans áhrif hingað til.
„Óli Jó er mjög skemmti-
legur og líflegur karakter.
Það sem Óli Jó er frábær í
eru þessi maður-á-mann sam-
skipti við leikmenn. Það sem
ég hef kynnst af honum er að
hann veit nákvæmlega hvað
hann vill frá leikmönnum.
Ef hann fengi að ráða væri
hann á æfingasvæðinu alla
daga, alltaf! Hann algjörlega
lifir fyrir þetta og er mjög líf-
legur og frábær á æfingum.“
Þrátt fyrir ungan aldur á
Alex að baki þrjá landsleiki
fyrir Ísland. Hans síðasti
landsleikur var gegn El Salva-
dor þann 19. janúar síðast-
liðinn. Hinir tveir voru gegn
Kanada og Eistlandi.
Alex er að sjálfsögðu stoltur
af þessum leikjum hingað til
og stefnir hærra og vill meira
í framtíðinni.
„Ég er mjög þakklátur fyrir
þessa þrjá landsleiki sem ég
hef spilað og ég hef lært fullt
í þeim ferðum. Það er reynsla
sem mun pottþétt skila sér.
Það sem peppar mig oft og
hefur gert í gegnum tíðina
hjá Stjörnunni er að horfa í
kringum mig og sjá þá sem
ég er með. Þá hugsa ég bara
að á góðum degi tekur enginn
neitt af okkur.
Auðvitað er það gott fyrir
sjálfstraustið og mótíverandi
að maður sé inni í myndinni
og að það sé kannski ekki al-
veg fjarlægur draumur að það
geti verið framtíðin.“ n
UNDRABARNIÐ AF ÁLFTANESINU
Alex Þór Hauksson spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Stjörnuna aðeins 17
ára gamall eftir að hafa byrjað ferilinn á Álftanesi og vakti þar verðskuldaða athygli.
Alex er fæddur árið 1999 og því rétt liðlega tvítugur. MYND/ANTON BRINK
Victor Pálsson
dv@dv.is
38 SPORT 433 5. JÚNÍ 2020 DV