Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1943, Page 6

Íþróttablaðið - 01.04.1943, Page 6
2 IÞRÓTTABLAÐIÐ mistök urðu þó á flutningi Akureyr- inganna, svo að þeir fóru landveg suður, en líklegt þykir mér, að eftir ó munu þeir vel við það una, að ferðalag þeirra varð tilbreytingarík- ara fyrir bragðið. Stjórn mótsins, sem mest erfiði hvíldi á vegna undirbúning'sins, skip- uðu þeir form. Skíðafél. Reykjavikur Kristján Ó. Skagfjörð, stórkaupmaður, Kjartan Hjaltested, fulltrúi og Magnús Andrésson, fulltrúi. Um hina teknisku framkvæmd keppninnar sáu þeir Steinþór Sig- urðsson, mag'. scient. og Einar B. Pálsson, verkfræðingur. Skiðaganga. Fyrsti dagur mótsins, föstudagur- inn 12. marz, rann upp, •— ekki bjart- ur og heiður, — lieldur með dimrn- viðri og snjókomu. Útlitið var ekki gott, en hreyfing kom brátt á liðið, þegar farið var að koma fyrir flögg- um við skíðaskálann. Brátt lagði brautarstjórinn, Steinþór Sigurðsson, upp með menn sína og kompás bund- inn um hálsinn og varð nú öllum Ijóst að þetta var rammasta alvara, og fóru keppendur að pukra við göngu- skíði sín, mjög leyndardómsfullir á svip. Nokkru seinna birti upp og gerði hið fegursta veður. 16 kílómetra Göngubraiitirnar. 1—2—3 = fíraut eldri flokka. 1—2 = fíraut yngri flokks. göngubrautin var svipuð smárablaði í lögun. Ræsimark og endamark var heima við Skíðaskálann, en brautin lá í þrjá hringi út frá honum og fóru keppendur þvi tvisvar fram hjá skál- anum á leiðinni. Áhorfendum gafst þess vegna gott tækifæri til þess að fylgjast með göngunni og er sú til- högun til fyrirmyndar. Fyrsti hringurinn lá í vesturátt, niður af heiðinni, annar hringurinn suður undir Meitil og Hverahlíð, en sá þriðji austur með Hellisheiðarvegi og niður Flengingarbrekku á heim- leið. Skíðafærið var þurr laus snjór. Ég lield að flestir keppendanna hafi smurt með „Mix“ ofan á undirlag úr skaraklístri. Keppendur voru alls 22, þar af 8 í A-flokki, en 14 í B-flokki. — Það var þegar Ijóst, að búast mætti við harðri keppni, því að nú átti að keppa um Thulebikarinn, sem Siglu- fjarðarfélögin höfðu áður unnið tvisv- ar sinnum hvort. Ef annaðhvort þeirra ynni hann nú, þá hafði það unnið hann til eignar og töldu flestir, að svo mundi fara nú. En þá voru aðrir, sem minntust þess, að siðast þegar Vestfirðingar kepptu við Sigl- firðinga (á Akureyri 1940), þá unnu Vestfirðingar sveitakeppnina, svo að ýmsir möguleikar virtust vera til. Og nú voru samankomnir hinir gömlu keppinautar, Magnús Kristjánsson (Í.R. V.F.), Guðmundur Guðmundsson (Sk.Sf.) og Jónas Ásgeirsson (Skb.). Þá hafði frétzt að Jón Þorsteinsson (Sk.Sf.) væri i góðri gönguþjálfun nú, en það hefir liann vist ekki verið i mörg ár. — Keppnin hófst stundvíslega kl. 15. Magnús var svo óheppinn að leggja af stað/ sem fimmti maðúr, og ekki bætti það úr skák, að nr. 7 var Jónas og nr. 8 Jón Þorsteinsson. Magnús fór brátt fram úr þeim, sem á undan honum voru, og varð þá fremstur í röðinni, — en von bráðar voru þeir Jónas og Jón komnir á liæla honum. Varð nú Magnús að ganga brautina á undan þeim og þreyttist meira en Iiinir, þar sem nokkuð skóf í hana. Skömmu áður en kom að marki, fóru þeir Jónas og Jón svo fram úr Magnúsi. Heimsins laun eru vanþakklæti. S4, sem ekki þurfti að kvarta yfir rásnúmerinu, var Guðmundur Guð- mundsson. Hann lagði af stað næst- siðastur (nr. 23), en var sjöundi mað- ur er kom í mark. Fór hann því fram úr fjórtán keppinautum sínum á leið- inni (tveir komu ekki til leiks). Guð- mundur varð fyrstur í göngunni og var nærri þrem mín. á undan næsta manni. Afrek hans var ágætt, enda voru það engir skussar, sem liann keppti við. Þessi úrslit komu engum á óvart, er til þekkti. Guðmundur er flestum þeim kostum búinn, sem nauðsynlegir eru góðum skíðagöngumanni. Hann er líkamlega vel að sér, kjarkmikill og þrautseigur og hefur ágæta göngu- tækni og síðast en ekki sízt; hann þjálfar sig og keppir með skilningi og viti. — Það er sómi að slíkum íslandsmeistara. Guðmundur Guðmundsson. Svo fór, að Skíðafjelag Siglufjarðar vann sveitakeppnina með talsverðum vfirburðum, og þar með Thulebik- inn fræga til eignar. Keppnin um þennan bikar hefur staðið síðan 1937 og verið með fádæmum hörð, — svo að segja mátti stundum, að gengi næst öfgum. Engin vafi er á þvi, að þessi keppni á sína hlutdeild í því, hve skíðagangan stendur á háu stigi á Siglufirði. Hinsvegar má einnig líta á það frá öðru sjónarmiði, hvort slíkt keppnisform sé heppilegt í fram- tíðinni. Skyldu Siglfirðingar ekki vera fegnir. að þessari keppni er nú lokið?

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.