Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1943, Blaðsíða 14

Íþróttablaðið - 01.04.1943, Blaðsíða 14
10 IÞRÓTTABLAÐIÐ Skiðaiþróttin: Nokkrar leiðbeiningar fyrir byrjendur eftir Steinþór Sigorðsson Beygjur þær, sem nú liafa ver- ið æfðar, eru allar miðaðar við lítinn liraða. Hafi beygjur þessar verið vel æfðar, er búið að æfa undirstöðuatriðin — þungaflutn- inginn, stöðu líkamans, lyftingu, niðurfall, bolvindu og það, bvernig skíðunum er beitt. Þegar hraðar er farið, 20 km. á klukkustund (hraði víðavangs- hlaupara) eða meira, nefnum við beygjurnar sveiflur. Einföld- ust þeirra er stemmukristjanían. 6. æfing. Stemmukristjanía (til bægri handar). Stemmukristjanía er í aðalat- riðum eins og stennnubeygjan, en vegna hraðans eru allar lireyf- ingar fljótari. Gættu þess að vera mjúkur, gera breyfingarnar á- kveðið, en án allra rykkja. Ein breyfing á að renna jafnt yfir i þá næstu. Plógsetning er minni en í stemmubeygju, og þunga- flutningurinn yfir á vinstra skíði kemur hér fyrr, því fyrr, sem hraðinn er meiri. Yfirlit yfir stemmukristjaníu til hægri handar. 1. mynd. Runnið skáhalt nið- ur brekku. 2. mynd. Dalskíðið lítið eitt í plógstöðu. Þunginn á dalskíðið. — Því næst skal setja brekkuskíðið lítið eitt í plógstöðu — því meira, sem brekkan er brattari en brað- inn minni. Bolvinda til vinstri. 3. mynd. Rétt úr líkamanum. — Síðan hefst þungaflutningur á vinstra skíði ásamt bolvindu til bægri. Framhalli. 4. mynd. Bolvindan beldur á- fram. Þú ert að byrja að beygja júg niður. 5. mynd. Þunginn er allur kom- inn á vinstra skíði, sem er farið að renna nokkuð út á blið. 6. mynd. Þú liefur dregið hægra skíði að því vinstra og beygt þig meira niður. 7. mynd. Beygjunni er að verða lokið. Skíðin renna nokkuð blið- ballt í brekkunni. Framballi. Veldu svo langa æfingabrekku, að þú getir tekið a. m. k. þrjár beygjur i röð án þess að stað- næmast — til bægri, til vinstri, til liægri o. s. frv. Reyndu að draga sem minnst lir hraðanum þegar þú beygir. (Meinlegar villur slæddust inn í Skíðakennsluþætti Steinþórs Sigurðs- sonar i síðasta tbl. íþróttablaðsins. M. a. sneri ein myndin öfugt. Til að leiðrétta þetta verða leiðréttingar prentaðar á 5. auglýsingasíðu íþrótta- blaðsins, og er þess æskt að leiðrétt- ingarnar verði klipptar út og límdar á rétta staði í 3ja tbl.).

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.