Íþróttablaðið - 01.04.1943, Blaðsíða 9
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
5
Sveit Íþróttafélags Kvíkur er vann Svigbikar II.
í sveitinni eru: Einar Egfells, Haraldur Árnason
og Ólafur B. Guðmundsson.
C = C-flokkur, K = svig kvenna.
Iiliðarhalla undir hengjubrún nokk-
urri, runnu síðan upp á brúnina og
fóru þar eftir krákustíg („vertikal")
á blá-brúninni, en settu sig síðan fram
af hengjunni 'og runnu í mark.
Þessi keppni varð mjög spennandi.
Eftir fyrri umferðina stóð leikurinn
þannig, að fyrst var Skíðafélag Siglu-
fjarðar með 131,8 sek., en næst í-
þróttaráð Akureyrar með 135,0 sek.
Var þá líklegt að milli þeirra mundi
slagurinn standa og fór það líka svo.
í seinni umferðinni dró nú Í.R.A. á
Sk.Sf., svo að þegar síðasti maður
var eftir í livorri sveit, hafði Sk.Sf.
tveim sekúndum betri tíma. Vallt nú
allt á síðustu mönnunum, þeim Magn-
iisi Brynjólfssyni Í.R.A og Guðmundi
Guðmundssyni Sk.Sf. Magnús, svig-
meistari Akureyringanna, fór nú
brautina á 5,4 sek. betri tíma en Guð-
mundur og töldu því allir víst, að
Í.R.A. hefði unnið.
En öll kurl höfðu ekki komið til
grafar ennþá. Magnús hafði áunnið
sér vítatíma, með því að fara með
annan fótinn utan við eitl hliðið; við-
bótin var 4 sekúndur og fór þvi svo,
að Skíðafélag Siglufjarðar vann keppn
ina með 0,6 sek. betri tíma en Í.R.A.
1. Skíðafélag Siglufjarðar 272,0 sek.
2 íþróttaráð Akureyrar .. 272,6 —
3. fþróttaráð Vestfjarða . . 302,8 —
4. íþróttafélag Háskólans 305,7 —
5. íþróttafélag Reykjavíkur 310,2 —
C Glímufélagið Ármann . . 314,6 sek.
7 Skíðaborg .............. 317,4 -—-
8. Knattspyrnufélag Rvikur 317,6 —
í sveit Skíðafélags Siglufjarðar voru:
llaraldur Pálsson, Ásgrímur Stefáns-
son, Jón Þorsteinsson og Guðmundur
Guðmundsson.
Sveit Skíðafélags Siglufjarðar er vann ,,Slalombikar Litla skíðafélagsins“:
Guðmundur Guðmundsson, Jón Þorsteinsson, Ásgrímur Stefánsson og
Haraldur Pálsson.