Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1943, Page 13

Íþróttablaðið - 01.04.1943, Page 13
tÞRÓTT ABL AÐIÐ 9 Ég býst við að skíðamönnunum verði þessi dagur minnisstæður, — sjálfur hefi ég aldrei verið á jafn á- r.ægjulegu skíðamóti. Veðrið var alveg makalaust, stiiiilogn og bjart, en snjór yfir öllu landi. Fyrst var farið i K.R.- skálann, sem er i miðju Skálarfelli, 576 m. yfir sjó; þar var hvílst, mat- ast, smurð skíði, nafnakall, skeið- klukkur bornar saman o. s. frv. Síðan gengið í einuin hóp á háhnúk Skálar- fells (771 m. yfir sjó) og brunbrautin merkt á leiðinni. — Þegar upp kom, blasti við hið fegursta útsýni yfir allt Suðvesturland, hvort sem liorft var til Langjökuls, Garðsskaga, Vestmanna- eyja eða Heklu. Gleymdist nú á svip- stundu allt sem bét keppni og eng- inn mundi lengur eftir vesalings tíma- vörðunum, sem biðu niðri við mark- ið, mörg hundruð metrum neðar. (Síðar fréttist þó, að þeir hefðu látið krók koma á móti bragði og notið lífsins í sólskininu). Þarna uppi var tilvalið tækifæri fyrir Norðanmenn- ina til að rifja upp löngu gleymda lexíu úr landafræðinni — og var það óspart notað — en við Sunnanmenn fundum ekki svo litið til okkar yfir því að geta sýnt okkar horn af land- inu í slíkum skrúða. Vitum við vel að þeir nyrðra kalla ekki allt ömmu sína i þeim efnum. Loksins rankaði einhver við sér, —- að það væri víst skíðamót, — og þá kom nú heldur líf í tuskurnar. Ræs- arnir settu upp mcrkissvip, undanfar- arnir brunuðu af stað — og svo hófst keppnin. — keppendurnir, — alls 53, — voru ræstir með % mín. millibili. Brautin var um 2 km. á lengd og' hæð hennar um 400 m. Lá hún suðaustur af fellinu. Eitt skylduhlið var í braut- inni, um 200 m. vestan við K.R.-skál- ann og stóðu þar allir áhorfendurnir, — tveir að tölu. — Færið var mis- jafnt, foksnjór, sumstaðar allþéttur, en laus á köflum. Flestir notuðu sömu skíðaslóðirnar, og þóttust sumir hagn- ast á því, en aðrir tapa, — a. m. k. er það siður keppendanna að kenna færi og smurning um, ef illa gengur. Það var nógu gaman að vera við markið og sjá alla þessa landsins frægustu skíðamenn renna í mark í langri halarófu, allt frá Nonna Þor- steins og Badda Júníusar til Stebba kalda og Stjána Ford. En þeir máttu vera fegnir, að ekki sáu margir til jjeirra og að ekki er gefið fyrir stíl í bruni. Sumir voru orðnir stifir eins og trjádrumbar af þreytu, og böðuðu út öllum öngum, en nokkrir komu í mark snjóugir upp fyrir haus af góð- um og' gildum ástæðum. Þessir urðu fyrstir: fíísli Ólafsson. A-flokkur: Mín. Sek. 1. Gísli Ólafsson .... . . Í.H. 2 06,8 2. Júlíus B. Magnússon l.R.A 2 07,1 3. Jónas Ásgeirsson . . Skb. 2 10,4 B-flokkur: Mín. Sek. 1. Haraldur Pálsson Sk.Sf. 1 54,7 2. Ólafur Guðm.ss. Í.R.V.F. 1 57,4 3. Gunnar Karlsson . . Í.R.A. 2 05,1 C-flokkur: Mín. Sek. 1. Björn Röed K.R. 1 58,1 2. Sigurjón Sveinsson Í.II. 2 00,7 3. Sveinbj. Kristj.ss. Í.R.V.F. 2 04,2 Þetta er í fyrsta sinn sem brun- keppni fer fram á skíðalandsmóti. Höfðu margir Norðlendinganna al- drei tekið þátt i slíkri keppni áður, og reynsla liinna er enn mjög af skornum skammti á þessu sviði. Leik- stjórnin taldi því réttmætt, að brun- brautin væri hvorki löng né vanda- söm. Hinsvegar er sjálfsagt að gefa keppendunum þyngra verkefni, er kunnáttan vex. 'Ber að keppa að því, að brunbrautir á meiriháttar mótum nái 800 m. hæð. — Að sjálfsögðu hef- ir skíðaáburðurinn talsverða jjýðingu í bruni sem öðrum greinum og frek- ar í auðveldri braut sem þessari. En hvað sem því líður, þá getur það varla verið nein tilviljun að Reykja- víkurmeistarinn Gísli Ólafsson skyldi nú verða íslandsmeistari og að tveir íyrstu menn í C-flokki á Reykjavík- víkurmótinu skyldu aftur verða fyrst- ir á Landsmótinu. Brun er talið sem ein af fjórum höfuðgreinum skíðaíþróttarinnar. Sum- staðar erlendis, t. d. í Alpafjöllum og Ameríku er það vinsælasta greinin, — en er nú óðum að ryðja sjer til rúms á Norðurlöndum. Má vænta þess, að svo verði einnig hér á landu A mánudagskvöldið hélt Skíðafélag- jð skíðamönnunum samsæti. Meðan setið var undir borðum, afhenti for- seti I.S.Í., Benedikt G. Waage, sigurveg- urum mótsins verðlaun þeirra. Marg- ar ræður voru fluttar, en eftir að borð höfðu verið tekin upp, var stiginn danz. Þar með var Skíðalandsmótinu 1943 lokið. Haraldur Pálsson.

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.