Íþróttablaðið - 01.04.1943, Page 16
12
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Skíðamót Þingeyinga.
SkíSamót Þingeyinga fór fram 27.
og 28. marz s.l. Keppt var í skíða-
göngu, svigi og stökki.
Skíðagangan fór fram á Fljótsdals-
heiði og úrslit urðu sem liér segir:
1. Jón Jónsson (íþróttafél. Þingey-
inga) 38. mín. 11 sek.
2. Reynir Kjartansson (U.M.F. Geisli)
45 mín. 04 sek.
3 Steingrímur Birgisson (íþróttafél.
Völsungar) 48 mín. 37 sek.
Gangan var flokkakeppni um bikar,
sem Kaupfélag Þingeyinga gaf. Sveit
íþróttafélags Þingeýinga vann bikar-
inn og átti það 1., 4. og 7. mann.
Svigið og stökkin fóru fram hjá
Húsavík. í svigi urðu úrslit þessi:
1 Ásgeir Torfason (U.M.F. Ljótur)
120,4. sek.
2. Ivarl Hannes Jakobsson (íþr.f.
Völsung'ar) 125,0 sek.
3. Steingrímur Birgisson (íþr.f. Völs-
ungar) 125,7 sek.
Svigbikar Þingeyinga vann sveit
Völsunga, átti 2., 3., 4. og 5. mann.
Urslit stökkkeppninnar urðu þessi:
1. Birgir Lúðvíksson (íþr.f. Völsung-
ar) 229,2 st.
2. Steingrímur Birgisson (-Íþr.f. Völs-
ungar) 219,9 st.
3. Reynir Kjartansson (U.M.F. Geisli)
165,3 st.
Keppni i samanlagðri göngu og
stökki vaun Steingrímur Birgisson
með 308,9 stig og hlaut þar með
Kappahornið og titilinn Skíðakappi
Þingeyinga.
í svigi drengja urðu hlutskarpastir
Haukur Bjarnason, Guðnnindur Há-
konarson, Vilhjálmur Pálsson og Bald-
ur Bjarnason, en í stökki drengja
Vilhjálmur Pálsson, Hreinn Melstað,
Haukur Bjarnason og Þórður Ásgeirs-
son.
Innanfélagsskíðamót Í.R.
íþróttafélag Reykjavíkur hélt inn-
onfélagsskiðamót dagana 28. marz og
4 apríl s.l. að Kolviðarhóli.
í svigi karla var keppt i tveimur
flokkum, fullorðinna og unglinga. í
flokki fullorðinna voru 14 þátttak-
endur.
Úrslit:
1. Ólafur B. Guðmundsson 103,2 sek.
2. Hörður Björnsson .... 107,9 —
3. Páll Jörundsson ....... 117,6 —
Keppni unglinga fór fram á annari
braut. Keppendur voru 7 og varð
Haraldur Árnason fyrstur á 35,0 sek.
í stökkkeppni fullorðinna voru 8
keppendur.
Úrslit:
1. Páll Jörundsson ....... 201,7 stig
2. Gunnar Hjaltason .... 157,5' —
3. Ólafur Finsen ......... 136,2 —
I stökkkeppni unglinga voru 10
keppendur og bar Þórarinn Gunn-
arsson sigur úr býtum, hlaut 192,0 st.
í skíðagöngu (ca: 12—14 km.)voru
(i þátttakendur.
Úrslit:
1. Hörður Björnsson .... 56,08 mín.
2 Gunnar Hjaltason .... 58,09 —
3. Ólafur B. Guðmundsson 58,39 —
í svigi kvenna voru 5 þátttakendur.
Úrslit:
1. Sigrún Sigurðardóttir . . 53,3 sek.
2. Erla Kjartansdóttir ... 64,0 —
3. Didda Þorkelsdóttir .... 81,5 —
Iþróttamót U.M.F.I.
Stjórn U.M.F.Í. hefur ákveðið að
halda íþróttamót að Hvanneyri dag-
ana 26. og 27. júní n.k. fyrir sam-
bandsfélög sin. Sýndir verða fimleik-
ar og keppt í glíinu, sundi, köstum,
stökkum og hlaupum.
Skólasýningar.
Eigi var hægt vegna húsnæðisskorts
og vegna þess hve seint Páskarnir eru
að stofna til skólasýninga í Reykja-
vík, eins og gert var í fyrra. Margur
saknar þessa, því að skólasýningarnar
tókust þá vel. Þær voru sannkall-
aðar hátíðir fegurðar og æsku. Marg-
ir fimleikakennarar létu nemendur
sína bjóða foreldrum sínum i sein-
asta fimleikatímann og á þann hátt
hafa skólasýningarnar farið fram i
ár. Skólasýningar þessar bera vott um
áhuga kennaranna. Þeir láta ekki ó-
nóg húsakynni hefta sig í þvi að
kynna almenningi fimleikanám skóla-
nemenda. Kennararnir eiga miklar
þakkir fyrir þessar sýningar, þvi að
með þeim auka þeir áhuga nemend-
anna fyrir íþróttum og kynna þær
jafnfrámt almenningi um leið og nem-
endur venjast við að temja sjer fagra
framkomu.
íþróttanámskeið og íþróttamann-
virki, Yopnafirði.
Undanfarnar vikur hefur farið fram
íþróttakennsla í Vopnafirði í ýmsum
íþróttum, þó aðallega leikfimi. Kenn-
ari var Guttormur Sigurbjörnsson
iþróttakennari. Þátttakendur voru um
70 auk skólabarna. Vopnfirðingar hafa
í hyggju að gera við sundlaug þá,
sem þeir byggðu fyrir nokkrum árum
við heita uppsprettu í gljúfrum Selár.
Áin braut hluta af lauginni i vorleys-
ingum. Þessi heita uppspretta er sú
eina, sem til er í byggð á Austurlandi.
Iþróttastarfsemi í
S.-Þingeyjarsýslu.
í engri sýslu, utan kaupstaðanna,
hefur eins mikið íþróttastarf átt sér
stað á líðandi vetri, eins og í S.-
Þingeyjarsýslu.
Kjartan B. Guðjónsson hélt nám-
skeið í glíniu á 3 stöðuin auk Lauga-
skóla. Ivári Sigurjónsson íþróttakenn-
ari hefur frá því um áramót kennt
leikfimi víða um sýsluna og Alfreð
Jónsson hefur haldið skiða-námskeið.
Eftir að skóla lýkur að Laugum fer
jiar fram frjálsra-íþróttanámskeið og
i vor og fyrrihluta sumars er i ráði
að Stefán P. Kristjánsson iþróttakenn-
ari ferðist um og kenni íþróttir.
Flestir hreppar S.-Þing. sendu
skólabörn á sundstaði s.l. sumar, en
í sumar munu allir hreppar senda
minnsta kosti fullnaðarprófsbörn.
Sundaðstaða er sæmileg. Á tveimur
stöðum yfirbyggðar sundlaugar og
bygging einnar opinnar sundlaugar í
undirbúningi.
Húsvíkingar hafa komið sér upp
skóla- og almenningsbaði og' ef bor-
anir eftir heitu vatni takast vel i
Húsavík, þá ris þar upp sundlaug.
Til fróðleiks má benda á tvö forn
íþróttavirki í S.-Þing., sundlaugina í
Stóru-gjá við Reykjalilíð og svitabað-
ið í Jarðbaðshólum.
Colfklúbbur íslands.
Golfklúbbur íslands hefur nýlega
haldið aðalfund. Formaður var kos-
inn Gunnlaugur Einarsson læknir.
F'élagar eru um 140. Félagið á mynd-
arlegt heimili og ágæta æfingavelli
við Öskjuhlíð i Reykjavík. Áhugi er
mikill í félaginu og mun fyrsta golf-
keppnin hefjast í maímánuði.
Tennis- og badmintonfélag
Reykjavíkur.
Tennis- og badmintonfélag Reykja-
víkur hélt aðalfund í byrjun apríl-
mánaðar. Formaður var kosinn Jón
Jóhannesson stórkaupmaður. Félagar
eru 118. Félagið berst um þessar
mundir fyrir að koma upp í Rvík
stærri og fullk-omnari tennisvelli, á-
samt áhorfendapöllum, en áður hafa
verið til hérlendis.