Fréttablaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 23
FÓLK HELDUR BARA AÐ ÉG
SÉ Í ÚTLÖNDUM ÞVÍ ÉG ER
AÐ FELA MIG ÞEGAR ÉG ER
HÉRNA HEIMA.
Björk verður ekki fyrir áhrifum af umhverfinu þegar hún semur tónlist.
Áherslan á
tónleikunum í
Hörpu verður á
hinn órafmagn-
aða hluta tón-
listar Bjarkar.
Tónleikar
Bjarkar eru upp-
lifun og verður
engin breyting
þar á í Hörpu
í mars. Fernir
ólíkar tónleikar
verða í boði
en alls verða
flutt 44 lög, 11
á hverjum tón-
leikum. MYNDIR/
SANTIAGO FELIPE
Björk leggur mikið upp úr sviðsmynd og sviðsframkomu á tónleikum.
„Dóttir mín var að útskrifast
úr skóla í New York og var í fjar-
kennslustundum á netinu átta tíma
á dag. Maður sá þar hvað ástandið
var virkilega átakanlegt. Þar voru
krakkar grátandi á samskiptaforrit-
inu Zoom, vegna þess að þau þekktu
einhvern sem féll frá. Ástandið í
New York er auðvitað mjög slæmt.
Dóttir mín fékk sektarkennd yfir
að segja frá því að hún hefði fengið
sér göngutúr út í fjöru í pásum, á
meðan bekkjarfélagar hennar voru
fastir inni. Við erum svo ótrúlega
heppin hér á Íslandi. Ég hugsa að við
höfum ábyggilega öll upplifað eitt-
hvað svipað á þessum tíma, tekið út
ákveðinn kvíða.“
Alltaf að semja
Björk segist alltaf vera að semja nýtt
efni, en hún geri það hægt.
„Það skiptir eiginlega engu máli
hvað er að gerast í mínu lífi, ég
sem alltaf á sama tempóinu. Ég
náði að halda því síðustu mánuði,
en ég vann með Bergi Þórissyni
tónlistarmanni hér heima. Hann
tók þátt í sóttkvínni með mér og
kom heim til mín tvisvar í viku,
við höfum unnið saman í sex
ár þannig að það var frábært að
geta nýtt tímann með honum á
þessum tíma.“
Hún segist eiga töluvert af nýju
efni, en að plata sé ekki væntanleg
alveg strax.
„Það kemur ekki ný plata á þessu
ári, en kannski verður hún tilbúin á
því næsta, ég þori ekki að lofa neinu.
En stefnum á 2021 eða 2022.“
Einn helsti aðdáandi Arons Can
Björk segist vera mikill tónlistar-
nörd. Hún hlustar á fjölbreytta tón-
list og segir afrobeat frá Nígeríu hafi
komið sér í gegnum kórónaveiruna.
„Ég er alltaf að hlusta á tón-
list og finna eitthvert nýtt dót. Ég
bý til ólíka playlista fyrir ólíka
stemningu. Í augnablikinu hlusta
ég mikið á eistneskt tónskáld sem
heitir Cyrillus Kreek og norsku
R&B söngkonuna Emilie Nicolas.
Ég hlusta líka mikið á Aron Can
og er ábyggilega stærsti Aron Can
aðdáandi á Íslandi.“
Ekki nýlendusinni í áhrifum
Björk segist ekki verða fyrir áhrifum
af umhverfinu þegar hún semur tón-
list.
„Ég er mjög þakklát fyrir það að
þegar ég sem tónlistina mína, þá
verður hún ekki mikið fyrir áhrifum
af því sem ég er að hlusta á hverju
sinni, eða umhverfinu. Á því tíma-
bili sem ég samdi tónlist á Spáni gaf
ég ekki út flamenco-plötu, þegar ég
var í Púertoríkó, þá varð Biophilia
ekki reggaeton-plata, og þegar ég
gerði Homogenic, þá var kærastinn
minn einn af frumkvöðlum drum
and bass, og það var ekki eitt drum
and bass lag á plötunni.
Ég hef alltaf verið mjög vakandi
fyrir því að vera ekki nýlendusinni
í áhrifum, reyni að labba ekki um
kúltúru og „go shopping“.“
Hún segist þó ekki vera alsaklaus
í þeim efnum, enda hafi hún gengið
um í kímónóum og öðru, en tón-
listarlega séð verði hún fyrir meiri
áhrifum frá andanum en tónlistar-
kúltúr.
Með ástinni í Ölpunum
„Ég er að vinna í ýmsu þessa dag-
ana. Í samstarfi við nokkra aðila
hér á Íslandi langar mig að setja
upp gagnagrunn á netinu, þar sem
hægt er að kaupa talrænar nótur af
allavega tónlist. Ég á útgáfur af alls
konar nótum fyrir hljóðfæri. Það
þarf að sameina þetta allt á einn stað
og gera þetta aðgengilegt, en þetta
verkefni er enn í bígerð hjá okkur.“
Í sumar taka við æfingar fyrir tón-
leikaröðina, en fyrst ætlar hún að
heimsækja kærasta sinn í Alpana.
„Kærastinn minn er hálfur Írani og
hálfur Þjóðverji og býr í Ölpunum.
Hann var með mér hér á Íslandi í
gegnum kórónaveiruna, svo núna
ætla ég að reyna að sýna smá lit og
heimsækja hann.“
Ef allt gengur eftir tekur svo við
tónleikaferðalag í Asíu í lok árs.
„Það eru ennþá á dagskrá tónleikar
Cornucopia í Japan í nóvember. Við
vitum auðvitað ekkert hver staðan
verður í heiminum þá, en ef allt
gengur eftir reynum við að halda
tónleika í f leiri löndum í Asíu, en
það verður allt að koma í ljós.”
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23L A U G A R D A G U R 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0