Fréttablaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 86
Þegar maður horfir til baka þá
sáust varla nein tré í bæjum hér
fyrir fimmtíu árum.
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Solveig Thorarensen
lést í faðmi fjölskyldunnar á
Jónsmessu, 24. júní.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í
Reykjavík, fimmtudaginn 2. júlí kl. 15.00
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir yndislega umönnun og
hlýju. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
ABC barnahjálp.
Ingunn Ósk Sturludóttir
S. Rósa Sturludóttir Sigþór Sigurðsson
Óskar Sturluson Þorgerður Jörundsdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Emilía Jónsdóttir,
félagsráðgjafi
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
1835 Vísur Íslendinga – Hvað er svo glatt sem góðra vina
fundur – eftir Jónas Hallgrímsson eru fyrst sungnar opin-
berlega. Það gerist í Hjartakershúsum í Danmörku.
1855 Danska gufuskipið Thor kemur til Reykjavíkur, það
er fyrsta gufuskipið sem kemur til Íslands.
1903 Fyrsta kvikmyndasýning á Íslandi fer fram í Góð-
templarahúsinu á Akureyri.
1921 Rafstöðin við Elliðaár er gangsett.
1930 Skógræktarfélag Íslands er stofnað á Þingvöllum.
Merkisatburðir
V ið æt lu m að stef na nokkrum félagsmönn-um, heiðursfélögum og fyrirtækjum sem hafa stutt fyrirtækið í gegn-um tíðina í Vinaskóg og
gróðursetja 90 trjáplöntur til að fagna
deginum,“ segir Brynjólfur Jónsson
framkvæmdastjóri Skógræktarfélags
Íslands.
Þar verða settar niður birki- og reyni-
viðarplöntur ásamt nokkrum blæösp-
um, ein planta fyrir hvert ár. „Þetta
verður með allt með frekar látlausum
en táknrænum hætti, en við ákváðum
að nálgast daginn þannig þegar COVID
stóð yfir,“ segir Brynjólfur
Aðspurður um helstu afrek félagsins
í sögu þess segir hann að listinn sé of
langur til að hægt sé að tína einhvern
sérstakan viðburð til. „Við getum þó
kannski verið nokkuð stolt af því hve
vel hreyfingin ásamt aðildarfélögum
hefur unnið að útivistarskógrækt um
land allt. Þegar maður horfir til baka
þá sáust varla nein tré í bæjum hér fyrir
fimmtíu árum. Mannlífið í þéttbýlinu
hefur verið bætt til muna og það hefur
tekist vel um allt land,“ segir hann og
nefnir sem dæmi Heiðmörk og Kjarna-
skóg. „Þetta er í rauninni verk skóg-
ræktarfélaganna, það er þessi árangur
skógræktarfélaganna sem er sýnilegur
um land allt.“
Stórafmælinu verður svo sinnt betur
á aðalfundi félagsins sem fram fer í
september.
arnartomas@frettabladid.is
Árangur skógræktarfélaga
sýnilegur um allt Ísland
Skógræktarfélag Íslands fagnar 90 ára afmæli sínu í dag, en það var stofnað 27. júní
árið 1930 á Alþingishátíðinni á Þingvöllum. Farið verður með félagsmenn í Vinaskóg
þar sem táknræn athöfn fer fram en alls verða 90 trjáplöntur gróðursettar.
Rithöfundurinn Helen Keller fæddist
árið 1880 í Alabama-ríki í Bandaríkjun-
um. Aðeins 19 mánaða gömul veiktist
hún af óþekktri veiki sem sem olli
því að hún missti bæði heyrn og sjón.
Keller gat með einhverju móti gert
sig skiljanlega við tveggja ára dóttur
fjölskyldukokksins með einföldum
táknum. Þegar hún var sjö ára gömul
kunni hún 60 tákn til að tjá sig við fjöl-
skyldu sína og gat aðgreint fólk út frá
skrefum þeirra.
Keller var óstýrilátt barn og for-
eldrar hennar leituðu til margra
sérfræðinga áður en þau réðu til sín
kennarann Anne Sullivan sem sjálf var
sjónskert. Sullivan hóf strax að kenna
Keller tjáskipti með snertingu og
notkun stafrófsins. Þrátt fyrir erfið-
leika í upphafi liðu ekki nema nokkrir
dagar þar til hún lærði sín fyrstu orð.
Keller lýsti síðar deginum sem Sullivan
kom í líf sitt sem „afmæli sálar sinnar“.
Þótt margir héldu að Keller væri
einangruð frá umheiminum var hún
í miklum tengslum við hann. Hún
hóf nám við Cambridge-skóla ungra
kvenna árið 1900, en rithöfundurinn
Mark Twain var mikill aðdáandi Keller
og borgaði fyrir nám hennar. Keller
varð fyrsta blinda og heyrnarskerta
manneskjan til að útskrifast með
bach elor-próf.
Keller gaf út ótal bækur og hélt fyrir-
lestraröð um Bandaríkin með hjálp
túlks. Fyrir starf sitt í þágu blindra og
heyrnarlausra var henni veitt frelsis-
orða árið 1968 af Lyndon B. Johnson
Bandaríkjaforseta. Alþjóðlegi Helen
Kellen dagurinn var fyrst haldinn há-
tíðlegur á fæðingardegi hennar árið
1960.
Þ E T TA G E R Ð I S T 27. J Ú N Í Á R I Ð 18 8 0
Helen Keller fæðist
Helen Keller ásamt kennara sínum,
Anne Sullivan, í þá gömlu góðu daga.
Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands, segir að starf félagsins sjáist víða. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT