Fréttablaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 25
ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ FARA
LENGRA EN TIL 2011 TIL
AÐ FINNA EINHVER LÖG
OG TEXTABROT SEM ÉG ER
EKKERT STOLTUR AF. MÉR
FINNST SAMT NAUÐSYN-
LEGT AÐ SKOÐA ÞETTA Í
SAMHENGI VIÐ TÍMANN OG
ÞROSKANN.
MALBIK ER SAMIÐ Á TÍMA
ÞAR SEM MÉR LEIÐ EKKI
SÉRSTAKLEGA VEL, EN
SKILAÐI MÉR SVO FRÁ-
BÆRUM TILFINNINGUM,
OG ÉG ER ÁNÆGÐUR
MEÐ LAGIÐ, SEM HEFÐI
EFLAUST ANNARS EKKI
ORÐIÐ TIL.
Hver er þinn
Ben&Jerry’s?
Oliver og Gauti bregða á leik fyrir ljósmyndarann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
smá tími í að ég hendi í barnaplötu,
ég er ekki viss um að það gerist alveg
strax,“ segir hann og hlær.
Einstakt tjáningarform
Gauti var mikið í kringum tónlist
sem barn og unglingur, en pabbi
hans var upptökustjóri, sem hefur
unnið með mörgum þekktum lista-
mönnum.
„Ég kynntist í raun og veru rapp-
inu þar. Þetta var tjáningarform
sem heillaði mig ótrúlega mikið.
Svo hafði ég líka bara gaman af því
að fylgjast með einhverjum „bad
boys“. Það var einhver spennufíkn í
mér þegar ég var yngri. Hjólabretti,
rapp, öfgar og yfirvaldsmótþrói.
Það heillaði mig mikið að lifa hratt.
Rappið er einstakt tjáningarform.
Þú getur bæði komið frá þér ein-
hverju algjöru bulli, en þú getur
líka notað það til að koma einhverju
mikilvægu til skila. Nefndu mann-
eskju sem hlustar bara á pólitískt
rapp: Það nennir því enginn. Það
nennir enginn að horfa alltaf bara
á fréttir. Á endanum myndi maður
bara grilla í sér heilann.“
Gauti segist hafa verið inntur eftir
því í viðtali fyrir stuttu af hverju
hann kysi að tjá sig ekki um ýmis
flókin mál sem hafa verið í brenni-
depli.
„Mér fannst ég einfaldlega ekki
nógu vel að mér í þessum málum.
Mér finnst alveg ótrúlega skrýtið að
ætlast til þess að aðrir hafi skoðanir.
Auðvitað finnst mér mjög mikil-
vægt að við séum meðvituð um
það sem er í gangi í samfélaginu. En
mér finnst ekki í lagi að skammast
í öðrum fyrir að hafa ekki skoðun
á öllum málum, og þá sérstaklega
fyrir að hafa ekki ekki sömu skoðun
og maður sjálfur,“ segir hann.
Umræðan berst að því að undan-
farið hefur færst í aukana að þekkt
fólk sé dregið til ábyrgðar fyrir orð
sem féllu áður fyrr, eða verk sem
þykja ekki standast tímans tönn, í
ljósi samfélagslegra breytinga.
„Þetta er áhugaverð pæling.
Myndi ég taka eitthvað til baka af
því sem ég hef gert? Nei. Sé ég eftir
einhverri vissri hegðun? Já, algjör-
lega. En ég held að það sé nauðsyn-
legt að gera mistök til að mótast. Til
þess að ég læri rétta hluti, þá þarf ég
að taka nokkrar rangar beygjur. Og
ef ég hefði ekki tekið þessar röngu
beygjur, þá væri ég ekki sama mann-
eskjan og ég er í dag. Þú þarft ekki
að fara lengra en til 2011 til að finna
einhver lög og textabrot sem ég er
ekkert stoltur af. Mér finnst samt
nauðsynlegt að skoða þetta í sam-
hengi við tímann og þroskann. Það
er munur á því að vera nýorðinn tví-
tugur og svo þrítugur,“ segir hann.
Mikilvægast af öllu segir hann að
læra af mistökunum.
„Stundum þarf að feta flóknu leið-
ina til að fá réttu útkomuna. En ég
stressa mig alveg á þessu líka. Held-
ur þú að ég muni stoltur spila: Við
elskum þessar mellur, fyrir börnin
mín einn daginn? Nei. En ég get
kennt þeim að læra eitthvað á því,
alveg eins og ég gerði,“ segir Gauti.
Hann segist meðvitaður um að
hann geti ekki strokað út söguna, en
hann fái þá tækifæri til að útskýra
fyrir þeim að sumt sé ekki í lagi.
„Ég hlustaði, öllu gríni sleppt,
á það í gær og hugsaði: Guð minn
almáttugur! Með þetta „mullet“, að
rífa kjaft í einhverjum kjallara.“
Ekki allt sem sýnist
Hann segir skýringuna að baki
nafni plötunnar vera tvíþætta.
„Ég er á bleiku skýi, en þetta er
líka vísun í birtingarmyndina sem
við setjum upp sem listamenn. Nú
tala ég aðallega fyrir minn geira.
Maður er alltaf að setja upp ein-
hverja glansmynd af því að vera
poppstjarna, sama hvernig manni
líður. Þetta speglast svolítið á plötu-
umslaginu. Þessi bleiki heimur,
þetta herbergi sem þú sérð. En síðan
sér maður glitta út fyrir rammann,
þar sem ljótu ljósatrössin eru og
iðnaðarhúsnæðið, sem er í kringum
myndatökuna. Það er ekki allt eins
og það sýnist,“ segir hann.
Hann segir tónlistarfólk eiga það
til að að skapa einhverja óraunsæja
ímynd í lögum sínum.
„Bleikt ský lýsir í raun bæði hvað
mér líður vel, en minnir líka á að
það er kannski ekki allt eins og það
sýnist. Platan var samin á tveimur
tímabilum. Ég tók einhverja dýfu
í fyrra og samdi þá nokkur lög á
plötunni, þar á meðal Malbik. Mér
finnst mikilvægt að fólk viti að það
skiptir engu máli hversu vinsæll þú
ert, eða vel þér gengur að selja á jóla-
tónleika, ef þú sinnir ekki geðheils-
unni á skynsaman hátt, þá getur þér
liðið illa. Malbik er samið á tíma þar
sem mér leið ekki sérstaklega vel, en
skilaði mér svo frábærum tilfinn-
ingum og ég er ánægður með lagið,
sem hefði eflaust annars ekki orðið
til. Það er bara svo mikilvægt að
leyfa sér að líða.“
Gauti segist byrjaður að prófa sig
áfram með ýmsar aðferðir í vegferð-
inni í leit að vellíðan, þar á meðal að
að hugleiða.
„Núna er ég að prófa mig aðeins
áfram með hausinn á mér, skoða
betur hvernig ég hugsa. Við erum
öll á einhverri vegferð, í leit að ein-
hverju. Afi minn sagði alltaf að
maður ætti að umkringja sig fólki
sem er að leita að sannleikanum, en
forðast fólk sem hefur fundið hann.
Mér finnst það mikilvægt. Að halda
áfram að fræða sig og leitast eftir því
að betra sig. Ég er meira og meira að
fatta það að tilgangur lífsins er að
vera hamingjusamur. Sem ég er,
sérstaklega þegar börnin eru kyrr
og stillt,“ segir Gauti hlæjandi.
Nýtt upphaf
„Ég elska að rappa og klifra upp á
einhverju sviði. Ég elska að gera gott
„show“. Ég hélt síðast tónleika í eigin
nafni 2017, og var síðast með útgáfu-
tónleika árið 2016. Fyrir mér marka
útgáfutónleikar einhvers konar nýtt
upphaf. Þá finnst mér einhvern veg-
inn alveg nauðsynlegt að skila DCC
100 prósent upplifun til áhorfand-
ans. Við ætlum að breyta Gamla bíói
aðeins,“ segir hann.
Þú getur sem sagt aldrei haldið
bara venjulega tónleika?
„Það má ekki,“ segir hann bros-
andi. „Mér finnst ógeðslega leiðin-
legt á venjulegum tónleikum. Ef ég
fer á tónleika og lagið er f lutt bara
alveg eins og það er á plötunni, af
hverju er ég þá ekki bara í einhverju
góðu partíi að hlusta á plötuna? Ef
fólk er að mæta á tónleika með mér,
þá finnst mér ég skulda því ein-
hverja einstaka upplifun.“
Platan Bleikt ský kemur út 3. júlí
á öllum helstu streymisveitum og
tónleikarnir fara fram í Gamla bíói
þann 18. júlí.
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 25L A U G A R D A G U R 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0