Fréttablaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 36
Fyrsta skrefið er
að hugsa út ferða-
plönin, til að minnka
losunina. Næsta skref er
svo að slá á losunina frá
ferðalaginu og velja
mótvægisaðgerð, svo
sem bindingu kolefnis
hjá Kolviði eða önnur
góð verkefni.
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Þegar minna verður um ferða-lög erlendis er þó fyrirséð að fjöldi Íslendinga taki sig
til og ferðist á heimilisbílunum
innanlands í sumar. „Blaðagrein í
Times, sem var í apríl, spáði 38%
samdrætti í losun frá flugi í ár, en
það eru náttúrulega mjög margir
óvissuþættir varðandi það hvernig
flugsamgöngur verða út árið.
Eitthvað af samdrættinum vegna
flugsins mun koma fram aftur,
vegna aukins aksturs í staðinn.
Fólk ekur á áfangastað í stað þess
að fljúga þangað, en sú losun er
þó mun minni. Almennt virðast
horfurnar vera þær að það verði
heildarsamdráttur í ferðalögum,
sérstaklega lengri ferðalögum,
þannig að á heildina litið mun
losunin dragast saman,“ segir
Ragnhildur Freysteinsdóttir hjá
Skógrækt Íslands og hlutastarfs-
maður hjá Kolviði.
Hve mörg tré þarf að gróður-
setja til að kolefnisjafna?
En hver er munurinn á kolefnis-
losun til dæmis miðað við það
að keyra á bensínbíl hringinn í
kringum landið og að ferðast með
flugvél til San Fransisco? „Beint
f lug til SF er um átta og hálfur
tími og kolefnislosun miðað við
hvern farþega, fram og til baka,
er um 1,4 tonn. Á móti kemur að
hringvegurinn er um 1.300 km. Ef
við miðum við að bíllinn eyði um
7 l/100 km, þá brennir hann um
92 lítrum af eldsneyti alla leiðina,
sem samsvarar losun á um 0,2
tonnum af CO2. Þannig að losun
tengd einum farþega með flugi til
SF, samsvarar akstri um sjö bíla
hringinn um landið. Til að binda
1,4 tonn af CO2 þarf af gróðursetja
fjórtán tré hjá Kolviði.“
Ragnhildur segist ekki geta spáð
fyrir hver heildarmismunurinn
geti verið á minni losun vegna
minnkandi flugsamgangna og
þeirri losun sem verður af völdum
aukinna bílasamgangna í sumar.
Minni losun í sumar á heildina litið
Ætla má að plánetan njóti góðs af því að dregið hefur úr flugsamgöngum í kjölfar COVID-19. Þrátt
fyrir það er ennþá mikilvægt að leggja sitt á lóðarskálarnar þegar kemur að umhverfisvernd.
Ragnhildur
Freysteinsdóttir
hjá Landvernd
hvetur fólk til
að kolefnisjafna
ferðalögin í
sumar. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR.
„Hver áhrifin verða fer eftir
akstursvegalengd og bílgerð. Raf-
magnsbílar eru ekki með beina
losun vegna aksturs og dísel-bílar
losa ívið meira en bensínbílar.
Þá losar lengri akstur meira en
skemmri. Almennt gildir það sama
um bíl og flug. Ef þú vilt lágmarka
losunina frá ferðalögum er betra
að velja umhverfisvænni ferða-
máta ef hægt er, ferðast styttri
vegalengdir frekar en lengri og
dvelja lengur á hverjum stað.“
Þó svo losun á gróðurhúsaloft-
tegundum verði líklega minni
í sumar en í fyrra, má lengi gott
bæta og má ýmislegt gera til þess
að lágmarka eða binda kolefnis-
losun af völdum ferðalaga. Mikil-
vægt er að gera sér grein fyrir því
að kolefnisjöfnun er ekki „vottorð
til þess að menga meira,“ heldur
kemur hún ávallt í kjölfar aðgerða
til samdráttar. „Fyrsta skrefið
er að hugsa út ferðaplönin, til að
minnka losunina. Næsta skref er
svo að slá á losunina frá ferðalag-
inu og velja mótvægisaðgerð, svo
sem bindingu kolefnis hjá Kolviði
eða önnur góð verkefni.“
STRÖND
ÍSLENDINGASAGNA
OG GOÐAFRÆÐI
STRÖND
SJÁVARÞORPA
OG STERKRAR
ARFLEIFÐAR
STRÖND
ÓSPILLTRAR
NÁTTURU
ÍSLAND
6 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RÍSLAND KOMDU MEÐ