Fréttablaðið - 27.06.2020, Qupperneq 41
Framkvæmdastjóri
eldvarnasviðs
Vilt þú taka þátt í að byggja upp
framsækinn vinnustað sem leggur
áherslu á nýsköpun, aðgengi
upplýsinga og stafrænar lausnir?
Við leitum að öflugum stjórnanda til að leiða nýtt svið eldvarna
og taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar á sviði húsnæðis-
og mannvirkjamála á Íslandi. Eldvarnasvið verður staðsett á
starfsstöð HMS á Sauðárkróki.
Hlutverk sviðsins er að sinna lögbundnu eftirliti og samræm
ingarhlutverki á sviði eldvarna. Sviðið hefur eftirlit með slökkvi
starfi á Íslandi, samþykkir brunavarnaáætlanir sveitarfélaga,
annast rannsóknir, fræðslu og forvarnir á sviði eldvarna og
sér um útgáfu leyfa. Eldvarnasvið ber jafnframt ábyrgð á
starfrækslu Brunamálaskólans.
hms.is
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Leiða og þróa hlutverk nýs eldvarnasviðs HMS
• Skipulagning og samræming eftirlits með
öryggisþáttum bygginga á sviði eldvarna
• Þátttaka í undirbúningi reglugerða og gerð
leiðbeininga á sviði eldvarna
• Yfirumsjón með úttektum á slökkviliðum og
búnaði slökkviliða
• Yfirumsjón með öllu námi innan Brunamála
skólans og forvörnum um eldvarnir
• Ráðgjöf til stjórnvalda og hagsmunaaðila um
eldvarnir
Hæfnikröfur
• Meistarapróf í byggingarverkfræði, sambærileg
menntun sem nýtist í starfi eða umtalsverð
reynsla af brunamálum
• Forystuhæfileikar og drifkraftur
• Reynsla af stjórnun og rekstri
• Reynsla af stefnumótun og áætlanagerð
• Hæfni til að stýra breytingum og teymisvinnu
• Frumkvæði og ríkir skipulagshæfileikar
• Sjálfstæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Nánari upplýsingar:
Sigrún Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri
gæðastjórnunar og mannauðs
Netfang: sigrun.thorleifsdottir@hms.is
Sími: 440 6400
Um framtíðarstarf er að ræða og fullt starf.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning
ríkisins og viðkomandi stéttarfélaga.
Í ráðningar ferlinu verður óskað eftir að
umsækjendur skili sakavottorði. Hafi
um sækjandi verið fundinn sekur um refsi
verða háttsemi getur það orðið til þess að
viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna
starfinu.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur
karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.
Umsóknir skulu sendar á netfangið:
starfsumsokn@hms.is
Umsóknum skal fylgja:
Starfsferilsskrá
Kynningarbréf
Umsóknarfrestur:
Til og með 30. júní
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið
tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði
frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Olís óskar eftir að ráða tæknimann til starfa. Starfið felur m.a. í sér þjónustu og
ráðgjöf við viðskiptavini félagsins og uppsetningu búnaðar hjá þeim.
Helstu verkefni
• Uppsetning og viðhald á hreinsi-
og þvottakerfum.
• Almennt viðhald á hreinsitækjum
s.s. háþrýstitækjum, gólfþvottavélum
og ryksugum.
• Ráðgjöf og þjónusta við
viðskiptavini félagsins um land allt.
Hæfniskröfur
• Rafvirkja eða rafeindavirkjamenntun
er nauðsynleg
• Góð almenn tölvuþekking
• Forritunarþekking
• Þekking á iðntölvur og iðntölvustýringar
• Sjálfstæð vinnubrögð skipulag og frumkvæði
• Gott vald á íslensku og ensku
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
GOTT STARF Í BOÐI
FYRIR RAFVIRKJA
EÐA RAFEINDAVIRKJA
Viðkomandi starf tilheyrir þjónustuverkstæði fyrirtækjasviðs Olís og er aðsetur í
Vatnagörðum 10, Reykjavík
Umsóknir berist til mannauðsstjóra Olís, merktar „tæknimaður“ á rbg@olis.is
fyrir 5. júlí 2020.
Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, stuðning til náms og
heilsueflingar, heiðarleika í samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára