Fréttablaðið - 27.06.2020, Síða 98
Sjálf hafði ég það nú frekar gott, ég varð ekki lasin, né neinn í fjölskyldunni. En það tók auðvitað á að mega ekki hitta fjölskyld-una og að eiga ömmur og
afa sem eru í áhættuhópi. Búðin
mín var opin meðan á þessu stóð,
með lágmarks opnunartíma svo
að ég hitti fólk allan tímann. En ég
vildi að sjálfsögðu ekki bera neitt
í þau svo ég lokaði mig ansi mikið
af,“ segir Hildur þegar hún er innt
eftir hvernig fordæmalausir tímar
vegna COVID-19 hafa haft áhrif á líf
hennar og rekstur.
Hildur hefur unnið verslunarstörf
frá því hún var unglingur og segir að
það hafi verið ansi furðuleg tilfinn-
ing að aðstoða konur við að finna
sér kjóla án þess að mega koma
nálægt þeim.
Rómantískir bíltúrar
„Í sumum tilvikum stóð ég bara
bak við borð í hæfilegri fjarlægð
og benti á það sem þær vantaði. Ég
er vön að veita lúxusþjónustu og
fannst þetta þess vegna mjög erfitt.
En sem betur fer vorum við komin
með fína netverslun og það versluðu
langflestir á netinu. Við maðurinn
minn vorum í því að skutla hingað
og þangað eða senda út á land.
Áttum rómantíska skutlbíltúra í
úthverfin, nú þekki ég alls konar
hverfi sem ég hafði ekki komið í
áður,“ segir Hildur brosandi.
Hún segist f ljótt hafa gert sér
grein fyrir þeim vandamálum sem
gætu komið upp vegna faraldursins.
„Framleiðslan myndi mögu-
lega stoppa ef ég gæti ekki pantað
efni. Ég var líka komin í pælingar
um gengisbreytingar og alheims-
kreppu. Ég var orðin ansi svartsýn
og tæp á taugum þarna á tímabili,“
segir hún.
Vitundarvakning
Hildur segist hafa fundið fyrir
ákveðinni vitundarvakningu þegar
kemur að stuðningi við íslensk fyr-
irtæki í kjölfar faraldursins.
„Fólk áttar sig á því að ef það
vill að uppáhalds búðin, veitinga-
staðurinn eða hönnuðurinn þeirra
gangi þá þarf að styðja við þetta.
Það er líka eins gott að það gangi
betur núna heldur en í COVID. Þú
getur rétt ímyndað þér hvernig var
að reyna að selja fína kjóla þegar
það voru engin afmæli, fermingar,
frumsýningar, ekkert partí og ekk-
ert stuð,“ segir hún.
Hildur segist að sama skapi hafa
tekið eftir sterkari umhverfismeð-
vitund meðal Íslendinga.
„Fyrir nokkrum árum kvartaði
fólk meira undan verði. Fötin mín
eru ekki ódýr og föt eiga ekki að
vera ódýr. Þetta er fjárfesting og það
á að hugsa vel um þau, hengja þau
fallega upp, laga saumsprettur og
ekki vera að þvo þau of mikið. Við
þurfum heldur ekki að eiga svona
mikið af fötum.
Ábyrgðin liggur hjá framleið-
endum en ekki síður hjá neyt-
endum. Það er algjör friðþæging að
kaupa bol úr lífrænni bómull sem
þú ætlar bara að nota einu sinni og
henda svo. Það er ekkert umhverfis-
vænt við það. Við erum að reyna að
laga og gera betur, en þú verður líka
að kjósa með veskinu þegar vel er
gert,“ segir Hildur.
Hún segist eiga í einstaklega góðu
Var beðin um að
hanna fyrir Cher
Hildur Yeoman er alltaf jafn vinsæl meðal íslenskra
kvenna en fátt gleður hana meira en að sjá konu líða
vel í flík frá sér. Nýjasta línan hennar heitir Cheer up.
og persónulegu sambandi við verk-
smiðjuna sína í Eistlandi.
„Við framleiðum aldrei mikið
af neinu, ég vil ekki sitja uppi með
stóran lager, það er mjög óum-
hverfisvænt. Ég er mjög heppin að
þau leyfa mér að prufa mig áfram
með snið og efni. Eins virða þau
umhverf issjónarmið okkar og
halda upp á minni efnisbúta sem
falla til þegar efnið er klippt. Við
hendum því aldrei efnum og höfum
verið að nýta efnisafgangana í alls-
konar skemmtileg verkefni. Til
dæmis nýttum við afgangs pallí-
ettuefni í toppa til styrktar UN
Women núna á Hönn-
unarMars,“ segir Hildur.
Meira flæði
Segðu mér frá nýjustu línunni þinni,
hvernig varð hún til og hvaðan
fékkstu innblástur?
„Við hönnuðum línuna í vetur.
Við fylltum stúdíóið af sumarinn-
blæstri, vorum með exótísk blóm
og höfðum sankað að okkur efnum
í björtum litum. Ég nota mikið tón-
list þegar ég er að hanna og að þessu
sinni var mikið um suðræna tónlist
en einnig mikið diskó. Skærir litir
og sexí snið.“
Nafnið á línunni, Cheer up, segir
hún vera vísun í bjartari tíma, sól,
sumar og stuð.
„Eftir þennan endalaust erfiða og
dimma vetur þá þurfum við gleði-
bombu, fyrir mér stendur línan
fyrir það. En svo hefur þetta líka
vísun í það að við byrjuðum að
vinna línuna út frá samstarfi við
tónlistarkonuna og íkonið Cher. Við
vorum fengin til að hanna tillögur
að sviðsfatnaði á Cher. Við fengum
því miður ekki verkefnið, þar sem
gamall vinur hennar, Bob Mackie,
ákvað að taka þetta að sér. Það er
erfitt að keppa við þann snilling en
Cher er víst voða ánægð með línuna
og vonandi sjáum við hana í Cheer
up! Það væri nú algjör draumur í
dós.“
Ertu byrjuð að huga að næstu
línu?
„Já, ég er byrjuð að vinna að
næstu línu, það gerist yfirleitt þegar
ég er að hanna línu að önnur fæðist
út frá henni. Svo er ég mikið að huga
að því þessa dagana hvernig ég vil
hafa flæðið í minni vinnu, það er oft
mikill hraði í tískubransanum og
ég er að reyna að finna minn takt.
Við hér heima pössum alls ekki inn
í útlenska módelið af „seasons“,
enda er þetta að mínu mati úrelt.
Mig langar frekar að gera stíla sem
ferðast á milli og eru ekki bundnir
við eina línu.“
Verslun Hildar er við Skólavörðu-
stíg 22b en einnig er hægt að kaupa
línuna á hilduryeoman.com.
steingerdur@frettabladid.is
Nýjasta línan frá Hildi er skreytt skærum og glaðlegum litum og hefur slegið í gegn.
Hildur segir
það hafa reynst
henni afar erfitt
að geta ekki
boðið upp á þá
lúxusþjónustu
sem hún er vön
að gera meðan
á faraldrinum
stóð. MYNDIR/
SAGA SIG
Sumar,
sól og bjartari
tímar voru inn-
blástur Hildar að
nýjustu línunni.
„Ég
nota mikið
tónlist þegar ég
er að hanna og að
þessu sinni var mikið
um suðræna tónlist
en einnig mikið
diskó.“
2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R46 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ