Fréttablaðið - 30.07.2020, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 6 6 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 3 0 . J Ú L Í 2 0 2 0
FJÁRMÁL Hlutdeild lífeyrissjóða
í nýjum húsnæðislánum hefur
hrunið frá byrjun árs í takt við
stóraukna eftirspurn eftir óverð-
tryggðum lánum. „Ef tölurnar fyrir
útlán bankanna í júní eru réttar
gæti hann orðið fyrsti mánuðurinn
í langan tíma þar sem það eru meiri
uppgreiðslur en útlán hjá lífeyris-
sjóðunum,“ segir Ólafur Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Birtu líf-
eyrissjóðs.
Nettó ný útlán lífeyrissjóða til
heimila námu einungis 918 millj-
ónum króna í maí samanborið við
27,5 milljarða útlán bankanna í
júní. Tölurnar fyrir útlán lífeyris-
sjóða í júní hafa ekki verið birtar
en umsvif bankanna gefa til kynna
að töluverður samdráttur sé hjá
mörgum sjóðum.
Harpa Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins, segist hafa merkt tölu-
verðar uppgreiðslur sjóðsfélaga á
allra síðustu mánuðum. Bankarnir
hafi lækkað vexti meira en lífeyris-
sjóðirnir.
„Án þess að hafa séð bækur bank-
anna er mín ágiskun sú að þeir eigi
erfiðara með að koma peningum í
vinnu því samdráttur í hagkerfinu
gerir það að verkum að þeir lána
ekki eins mikið til fyrirtækja en
vextir á húsnæðislánum eru lækk-
aðir til að lána meira til heimil-
anna,“ segir Harpa.
Ný óverðtryggð húsnæðislán
banka til heimila, að frádregnum
uppgreiðslum, hafa á síðustu
þremur mánuðum numið samtals
146 milljörðum króna samkvæmt
gögnum Seðlabanka Íslands. Á
sama tímabili hafa ný verðtryggð
lán verið nettó neikvæð um 5,8
milljarða. Þá hefur hlutfall óverð-
tryggðra lána af húsnæðislánasafni
bankanna hækkað úr 38 prósentum
upp í 43 prósent frá byrjun árs.
„Vægi verðtryggingarinnar verð-
ur ekki neitt ef þetta heldur svona
áfram. Þó að vextir hækki lítillega
í framtíðinni held ég að heimilin
muni áfram sækja í óverðtryggð
lán,“ segir Konráð S. Guðjónsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri Við-
skiptaráðs og bætir við að allar for-
sendur séu fyrir því að vaxtastig
verði lágt til lengri tíma litið. „Ef
lágvaxtaumhverfið verður varan-
legt deyr verðtryggingin drottni
sínum.“ – þfh / sjá síðu 8
Sópa til sín húsnæðislánum
Júní gæti orðið fyrsti mánuðurinn í langan tíma þar sem uppgreiðslur eru meiri en ný útlán lífeyrissjóða.
Hafa tapað mikilli hlutdeild til bankanna á skömmum tíma. Mikil ásókn er í óverðtryggð lán bankanna.
Hlutfall óverðtryggðra
lána af húsnæðislánasafni
bankanna hefur hækkað úr
38 prósentum upp í 43
prósent frá byrjun árs.
ú t s a l a
27.07 – 16.08
sjáðu
öll tilboðin
á elko.is
Þessir glæsilegu reiðskjótar á Fjallabaksleið nyrðri tilheyra hópi hestamanna sem áðu í Hólaskjóli í fyrrinótt áður en leið þeirra lá áfram að Landmannalaugum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
LÍFIÐ Ólafur Arnalds hlaut sína
fyrstu Emmy-tilnefningu fyrr í
vikunni fyrir titillagið í bandarísku
sjónvarpsþáttunum Defending
Jacob.
Ólafur, sem lá veikur heima er
hann frétti af tilnefningunni, seg-
ist vanalega rólegur yfir slíku. Þetta
sé engu að síður skemmtilegt, sér-
staklega ef um stór verðlaun sé
að ræða.
Fr á þv í að
COVID-19 far-
aldurinn braust
út hefur hann
unnið í nýrri
t ó n l i s t
s e m e r
væntan-
leg bráð-
lega. – fbl
/ Sjá síðu
38
Veikur heima er
tilnefning barst