Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.07.2020, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 30.07.2020, Qupperneq 10
Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Súlutindar eru með tignarlegustu tindum landsins en þeir draga nafn sitt af súlulaga klettadrangi sem gnæfir upp af vestan-verðum Skeiðarárjökli, stærsta skriðjökli sunnan úr Vatnajökli. Sjálf Súlan er ekki hæst Súlu tinda, heldur syðsti tindurinn sem úr fjarlægð sýnist illkleifur en er tiltölulega auðveldur uppgöngu úr suðvestri. Af honum er gríðarlegt útsýni yfir Skeiðarárjökul og litrík Skaftafellsfjöllin sem afmarka Skeiðarárjökul austan megin. Enn austar er Öræfajökull með Hvannadalshnjúk, Hrútsfjallstindar og skógi vaxin Austurheiði norðan Skaftafells. Óvíða sést betur hvílíkt f læmi Skeiðarársandur er, en hann þekur næstum 2% af yfirborði landsins og á honum er þétt æðakerfi jökuláa, sem voru miklir farartálmar áður en þær voru brúaðar 1974 og hringvegurinn opnaður. Best er að ganga á Súlutinda úr Núpsstaðar- skógi sem er með fallegustu stöðum á landinu. Eftir að jökuláin Súla breytti farvegi sínum í Gígjukvísl í stað Núpsár, er mun auðveldara en áður að komast í Núpsstaðarskóg því ekki þarf lengur að aka yfir straumhörð og vatnsmikil Núpsvötn, en svo hétu sameinuð Núpsá og Súla. Í staðinn má þræða sein- farinn jeppaslóða austan megin Núpsár, þar sem ekki er yfir neinar ár að fara. Óvíða er fallegra að slá upp tjaldi en á kjarri vöxn- um aurum Núpsstaðarskóga, undir Sniðabrekku inn af Valabjörgum. Þarna er ekkert skipulegt tjaldsvæði, sem eykur á upplifunina. Í vestur blasir Björninn við, sundurskorið fjall og gróið líkt og Lómagnúpur sunnar. Frá tjaldstæðinu er þrætt milli brattra gilja í austur upp Sniðabrekkur, sunnan við fjallið Bunka. Síðan er stefnan tekin á syðsta Súlutindinn sem er 696 m hár. Á leiðinni upp sést í sunnanverðan Vatna- jökul og fjöll í honum eins og Geirvörtur og Þórðar- hyrnu. Áður en haldið er heim er gaman að kíkja í bæði skörðin, sérstaklega það nyrðra. Þar má í návígi virða fyrir sér fagurlega skapaða 60 m háa Súluna og þverhnípta veggi Súlutinda. Súla var fyrst klifin 1990 og þótti mikil frægðarför, enda bergið afar laust í sér. Þetta er með fallegra útsýni á Íslandi, sann- kallaður súlnasalur þar sem rákóttur Skeið- arárjökull er dansgólfið. Skynsamlegt er að halda sömu leið niður Sniðabrekkur, en eftir því sem farið er sunnar eru minni líkur á því að lenda í völundarhúsi snarbrattra gilja. Súlnasalur Skeiðarárjökuls Súla er einhver fallegasti tindur landsins og rís upp af vestanverðum Skeiðarárjökli. MYNDIR/TG Súlutindar séðir úr vestri neðan Bunka, baðaðir kvöldsól með hvönn og eyrarrós í forgrunni. Horft í norður af hæsta Súlutindinum en skuggar af þeim bregða á leik á fallega rákóttum Skeiðarárjökli. 3 0 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.