Fréttablaðið - 30.07.2020, Side 13
AF KÖGUNARHÓLI
Þorsteinn
Pálsson
Á síðustu áratugum hefur norrænt samstarf ekki verið jafn metnaðarfullt og það var fram eftir síðustu öld. Fjölþætt
tengsl landanna hafa eigi að síður
dafnað ágætlega.
Á öllum Norðurlöndum er góð pól
itísk eining um að viðhalda tengsla
netinu þótt þunginn og metnaðurinn
í fjölþjóðasamstarfi þeirra liggi
að mestu í Evrópusambandinu og
Atlantshafsbandalaginu.
Vönduð og hnitmiðuð skýrsla
Fyrir skömmu var birt skýrsla, sem
Björn Bjarnason fyrrum dómsmála
ráðherra vann, um aukið samstarf
Norðurlanda á sviði utanríkis og
öryggismála. Hún er eins og vænta
mátti hnitmiðuð og markviss með
ábendingum um tiltekin verkefni.
Sum málefni geta löndin leyst í
innbyrðis samstarfi. Önnur, einkum
stærri pólitísk og efnahagsleg við
fangsefni, ráðast í samvinnu f leiri
þjóða.
Í þessu ljósi er vert að virða frum
kvæði Norðurlanda að margvíslegu
samstarfi, sem síðar hefur þróast í
stærra samhengi.
Norrænt myntbandalag
verður evrópskt
Norræna myntbandalagið, sem
stofnað var 1873, er trúlega metnaðar
fyllsta og áhrifaríkasta samstarfs
verkefni landanna. Þá urðu til norr
ænar jafngildar krónur. Bandalagið
stóð í nær hálfa öld og var ein helsta
forsenda atvinnulífsbyltingarinnar á
Íslandi í byrjun síðustu aldar.
Áratugum síðar tók Evrópusam
bandið upp þráðinn með mynt
einingu, sem í framhaldi leiddi til
stofnunar myntbandalags um evruna.
Hún er nú ein af þremur öf lugustu og
stöðugustu myntum heimsins.
Norræn lagasamræming
verður evrópsk
Fram eftir síðustu öld fór einnig fram
mikil og metnaðarfull vinna til að
ná fram samræmingu norrænna laga
á fjölmörgum sviðum. Í dag taka öll
Norðurlönd þátt í miklu víðtækari og
markvissari lagasamræmingu, með
aðild að innri markaði Evrópusam
bandsins og þrjú þeirra með fullri
aðild.
Norðurlönd gerðu einnig með sér
samkomulag um gerðardóma til
að útkljá deilumál sín á milli. Segja
má að með Evrópudómstólnum og
EESdómstólnum hafi það verkefni
verið sett í stærra samhengi, þar sem
einstaklingar og fyrirtæki fá skorið úr
ágreiningsefnum, sem snerta reglu
verk Evrópusambandsins.
Norrænt vegabréfasamband
verður evrópskt
Norræna vegabréfasambandið, sem
stofnað var um miðja síðustu öld, var
brautryðjendaverkefni til að tryggja
frjálsa för fólks milli landa.
Hálfri öld síðar var það beinlínis
f lutt inn í Schengensamstarf Evrópu
sambandsins. Sama hugsjón er nú
tryggð í miklu víðtækara samstarfi
innan Schengen og með reglum innri
markaðar Evrópusambandsins um
frjálsa för fólks.
Tvær hliðar á sama peningi
Það metnaðarfulla fjölþjóðasam
starf, sem hófst á norrænum vett
vangi, hefur smám saman þróast yfir í
evrópskt samstarf. Höfuðsvið þeirrar
samvinnu eru þau sömu og áður. En
í samræmi við breytta tíma og nýjar
áskoranir eru verkefnin fjölþættari.
Helstu málum, sem Norðurlönd
þurfa að vinna með öðrum þjóðum,
er nú ráðið til lykta innan Evrópu
sambandsins og á vettvangi Atlants
hafsbandalagsins, sem í raun eru sín
hvor hliðin á sama peningnum.
Þrjú Norðurlanda eiga nú fulla
aðild að Evrópusambandinu en önnur
tvö að kjarna þess, innri markaðnum.
Síðan eiga þrjú landanna fulla aðild
að Atlantshafsbandalaginu en önnur
tvö, sem lengi voru hlutlaus, eiga nú
náið og virkt samstarf við bandalagið.
Lokaskrefið minna en þau
sem tekin hafa verið
Viðbótarskrefin til fullrar aðildar eru
tiltölulega lítil. Þau eru sannarlega
pólitískt viðkvæm í hverju landi. En
það breytir ekki hinu að þau skref,
sem þegar hafa verið stigin, voru
stærri en það sem eftir er í báðum
tilvikum.
Þegar litið er á þau verkefni, sem
tilgreind eru í skýrslu Björns Bjarna
sonar, er engum vafa undirorpið að
samstaða Norðurlanda um mörg
þeirra yrði sterkari og markvissari, ef
löndin ættu öll sæti við borðið í þeim
tveimur fjölþjóðasamtökum, sem
úrslitum ráða um þau.
Vilji menn ríkan metnað í nor
rænt samstarf, gæti næsta skref verið
umræða um möguleika á fullri aðild
allra landanna að þessum tveimur
höfuð fjölþjóðasamtökum Evrópu
ríkja.
Er ekki kominn tími til að taka nor
ræna samvinnu skrefi lengra?
Skrefi lengra
Vilji menn ríkan metnað í nor-
rænt samstarf gæti næsta skref
verið umræða um möguleika
á fullri aðild allra landanna að
þessum tveimur höfuð fjöl-
þjóðasamtökum Evrópuríkja.
LÍKA Á
SUMRIN!
Auglýsing í Fréttablaðinu er
ávallt jafn verðmæt
júní júlí ágúst
88% af lesendum dagblaða* á
höfuðborgarsvæðinu á aldurs-
bilinu 18-49 ára lesa Fréttablaðið
daglega allan ársins hring
*meðallestur þeirra sem lesa bara Fréttablaðið og þeirra sem lesa Fréttablaðið og
Morgunblaðið. Heimild: Prentmælingar Gallup apr. - júní og júlí - sept. 2019.
– mest lesna dagblað landsins, líka á sumrin
Landsmenn lesa Fréttablaðið
allan ársins hring 88%
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 3 0 . J Ú L Í 2 0 2 0