Fréttablaðið - 30.07.2020, Síða 13

Fréttablaðið - 30.07.2020, Síða 13
AF KÖGUNARHÓLI Þorsteinn Pálsson Á síðustu áratugum hefur norrænt samstarf ekki verið jafn metnaðarfullt og það var fram eftir síðustu öld. Fjölþætt tengsl landanna hafa eigi að síður dafnað ágætlega. Á öllum Norðurlöndum er góð pól­ itísk eining um að viðhalda tengsla­ netinu þótt þunginn og metnaðurinn í fjölþjóðasamstarfi þeirra liggi að mestu í Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu. Vönduð og hnitmiðuð skýrsla Fyrir skömmu var birt skýrsla, sem Björn Bjarnason fyrrum dómsmála­ ráðherra vann, um aukið samstarf Norðurlanda á sviði utanríkis­ og öryggismála. Hún er eins og vænta mátti hnitmiðuð og markviss með ábendingum um tiltekin verkefni. Sum málefni geta löndin leyst í innbyrðis samstarfi. Önnur, einkum stærri pólitísk og efnahagsleg við­ fangsefni, ráðast í samvinnu f leiri þjóða. Í þessu ljósi er vert að virða frum­ kvæði Norðurlanda að margvíslegu samstarfi, sem síðar hefur þróast í stærra samhengi. Norrænt myntbandalag verður evrópskt Norræna myntbandalagið, sem stofnað var 1873, er trúlega metnaðar­ fyllsta og áhrifaríkasta samstarfs­ verkefni landanna. Þá urðu til norr­ ænar jafngildar krónur. Bandalagið stóð í nær hálfa öld og var ein helsta forsenda atvinnulífsbyltingarinnar á Íslandi í byrjun síðustu aldar. Áratugum síðar tók Evrópusam­ bandið upp þráðinn með mynt­ einingu, sem í framhaldi leiddi til stofnunar myntbandalags um evruna. Hún er nú ein af þremur öf lugustu og stöðugustu myntum heimsins. Norræn lagasamræming verður evrópsk Fram eftir síðustu öld fór einnig fram mikil og metnaðarfull vinna til að ná fram samræmingu norrænna laga á fjölmörgum sviðum. Í dag taka öll Norðurlönd þátt í miklu víðtækari og markvissari lagasamræmingu, með aðild að innri markaði Evrópusam­ bandsins og þrjú þeirra með fullri aðild. Norðurlönd gerðu einnig með sér samkomulag um gerðardóma til að útkljá deilumál sín á milli. Segja má að með Evrópudómstólnum og EES­dómstólnum hafi það verkefni verið sett í stærra samhengi, þar sem einstaklingar og fyrirtæki fá skorið úr ágreiningsefnum, sem snerta reglu­ verk Evrópusambandsins. Norrænt vegabréfasamband verður evrópskt Norræna vegabréfasambandið, sem stofnað var um miðja síðustu öld, var brautryðjendaverkefni til að tryggja frjálsa för fólks milli landa. Hálfri öld síðar var það beinlínis f lutt inn í Schengen­samstarf Evrópu­ sambandsins. Sama hugsjón er nú tryggð í miklu víðtækara samstarfi innan Schengen og með reglum innri markaðar Evrópusambandsins um frjálsa för fólks. Tvær hliðar á sama peningi Það metnaðarfulla fjölþjóðasam­ starf, sem hófst á norrænum vett­ vangi, hefur smám saman þróast yfir í evrópskt samstarf. Höfuðsvið þeirrar samvinnu eru þau sömu og áður. En í samræmi við breytta tíma og nýjar áskoranir eru verkefnin fjölþættari. Helstu málum, sem Norðurlönd þurfa að vinna með öðrum þjóðum, er nú ráðið til lykta innan Evrópu­ sambandsins og á vettvangi Atlants­ hafsbandalagsins, sem í raun eru sín hvor hliðin á sama peningnum. Þrjú Norðurlanda eiga nú fulla aðild að Evrópusambandinu en önnur tvö að kjarna þess, innri markaðnum. Síðan eiga þrjú landanna fulla aðild að Atlantshafsbandalaginu en önnur tvö, sem lengi voru hlutlaus, eiga nú náið og virkt samstarf við bandalagið. Lokaskrefið minna en þau sem tekin hafa verið Viðbótarskrefin til fullrar aðildar eru tiltölulega lítil. Þau eru sannarlega pólitískt viðkvæm í hverju landi. En það breytir ekki hinu að þau skref, sem þegar hafa verið stigin, voru stærri en það sem eftir er í báðum tilvikum. Þegar litið er á þau verkefni, sem tilgreind eru í skýrslu Björns Bjarna­ sonar, er engum vafa undirorpið að samstaða Norðurlanda um mörg þeirra yrði sterkari og markvissari, ef löndin ættu öll sæti við borðið í þeim tveimur fjölþjóðasamtökum, sem úrslitum ráða um þau. Vilji menn ríkan metnað í nor­ rænt samstarf, gæti næsta skref verið umræða um möguleika á fullri aðild allra landanna að þessum tveimur höfuð fjölþjóðasamtökum Evrópu­ ríkja. Er ekki kominn tími til að taka nor­ ræna samvinnu skrefi lengra? Skrefi lengra Vilji menn ríkan metnað í nor- rænt samstarf gæti næsta skref verið umræða um möguleika á fullri aðild allra landanna að þessum tveimur höfuð fjöl- þjóðasamtökum Evrópuríkja. LÍKA Á SUMRIN! Auglýsing í Fréttablaðinu er ávallt jafn verðmæt júní júlí ágúst 88% af lesendum dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu á aldurs- bilinu 18-49 ára lesa Fréttablaðið daglega allan ársins hring *meðallestur þeirra sem lesa bara Fréttablaðið og þeirra sem lesa Fréttablaðið og Morgunblaðið. Heimild: Prentmælingar Gallup apr. - júní og júlí - sept. 2019. – mest lesna dagblað landsins, líka á sumrin Landsmenn lesa Fréttablaðið allan ársins hring 88% S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 3 0 . J Ú L Í 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.