Fréttablaðið - 30.07.2020, Qupperneq 34
Tónlistarhátíðin Berjadagar hefst í dag, fimmtudaginn 30. júlí kl. 20.00, og stendur til sunnudagskvölds 2. ágúst. Nokkrir af
fremstu tónlistarmönnum lands
ins koma fram í Ólafsfjarðarkirkju
og Menningarhúsinu Tjarnarborg.
Leikin verður tónlist eftir íslensk
og erlend tónskáld. Þarna verður
óperutónlist, kammertónlist og
ljóðasöngur. Hátíðin er nú haldin
í 22. skiptið og listrænn stjórnandi
frá 2014 er sellóleikarinn Ólöf Sigur
sveinsdóttir.
„Til að hægt sé að halda úti svona
hátíð þurfa margir þættir að koma
saman. Á Ólafsfirði er guðs græn
náttúran, jurtirnar, yndisleg hljóm
hús og fjórtán dalir. Sviðið er því til
búið þegar ég mæti,“ segir Ólöf.
Heimspeki í skíðaskála
Fjöldi listamanna kemur fram á
hátíðinni, rúmlega fimmtíu og
hafa aldrei verið fleiri. Þar á meðal
er Hrólfur Sæmundsson baríton.
„Hann starfar í tónleikahúsinu í
Aachen í Þýskalandi við mjög góðan
orðstír. Hann átti upphaf lega að
syngja í Ástralíu á þessum tíma, en
vegna COVID varð ekki af því. Hann
kemur nú norður til að syngja, þar
á meðal með Sigrúnu Pálmadóttur,
sem var aðalsöngkona óperunnar í
Bonn um langt skeið.“
Á hátíðinni verður haldið upp á
250 ára ártíð Beethovens. „Við sem
störfum við tónlist verðum öll fyrir
áhrifum frá Beethoven. Flutningur
á hluta af sellósónötu eftir Beet
hoven verður í höndum okkar Þor
steins Gauta Sigurðssonar píanó
leikara sem hefur ekki komið fram
á stórum tónleikum í langan tíma.
Heimspeki kemur einnig við sögu
vegna þessa fæðingarafmælis Beet
hovens, en Jón Thoroddsen verður
með heimspekikvöld í skíðaskál
anum þar sem er einstakt útsýni
yfir allan Ólafsfjörð.“
Staðföst stefna
Ólafsfjörður á 75 ára kaupstaðaraf
mæli í ár. „Þar er hópur fólks sem
vill fyrir alla muni halda upp á
afmælið á sama tíma og Berjadagar
eru haldnir, sem gerir hátíðina sér
staka. Á laugardaginn verður grill
og kaffi úti við, opnun Pálshúss og
myndlistarsýningar, en síðast en
ekki síst leiksýning sem vísar til
söguannáls. Þetta er sýning sem
Guðmundur Ólafsson skapaði árið
1995, Horfðu glaður um öxl og félag
ar úr Leikfélagi Fjallabyggðar sjá um
flutninginn,“ segir Ólöf.
Hún segist vera afar þakklát
stefnu Fjallabyggðar þegar kemur
að svona starfsemi. „Það er staðföst
stefna Fjallabyggðar að styðja Berja
daga tónlistarhátíð og fyrir hverja
og eina hátíð er mér þakklæti efst
í huga. Þessi stefna Fjallabyggðar
hefur orðið til þess að einkaaðilar
og fyrirtæki vilja einnig gera leiðina
greiða fyrir hátíðina til að vaxa og
dafna, sem og er raunin síðustu ár.
Þess njóta listamenn sem koma
árlega.“
Nánar má lesa um viðburði og tíma-
setningar á heimasíðu hátíðarinnar
www.berjadagar-artfest.com og á
www.facebook.com/berjadagar.
Hátíð sem vex og dafnar
Tónlistarhátíðin Berjadagar hefst í dag og stendur til sunnudagskvölds. Rúmlega
fimmtíu listamenn koma þar fram. Ólöf Sigursveinsdóttir er listrænn stjórnandi.
Ólöf Sigursveinsdóttir hefur verið listrænn stjórnandi hátíðarinnar frá árinu 2014. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Fertugsafmælis Harry Potter er víða fagnað, þar á meðal í Reykjavík og á Akureyri.
Pott erhátíðin mikla hófst í gær,
miðvikudag, á Amtsbókasafninu á
Akureyri og stendur áfram í dag og
föstudag. Boðið verður upp á leiki
og fjör í anda Harry Potter og félaga:
f lóttaherbergi, galdrakústasmiðju,
Quidditch og ýmislegt f leira.
Stórafmælinu er einnig fagnað í
Borgarbókasafninu í Kringlunni.
Hugdjarfir geta leitað helkrossa,
forvitnir geta komist að því í hvaða
vist þeir eru eða tekið myndir af
nýsloppnum Azkabanföngum. Hægt
er að föndra öskrara fyrir þá sem
þurfa orð í eyra eða hjálpa Harry að
föndra Hedwig og ferðatösku til þess
að hann komist í skólann.
Á sjálfan afmælisdag Harry Pott
ers, föstudaginn 31. júlí, nær fögn
uðurinn síðan hámarki á báðum
bókasöfnunum.
Stórafmæli heimsfrægs galdrastráks
Potter-lestrarhestar.
ÞAÐ ER STAÐFÖST
STEFNA FJALLA-
BYGGÐAR AÐ STYÐJA BERJA-
DAGA TÓNLISTARHÁTÍÐ OG
FYRIR HVERJA OG EINA HÁTÍÐ
ER MÉR ÞAKKLÆTI EFST Í HUGA.
Á tónleikum Orgelsumars í Hallgrímskirkju í dag, fimmtudaginn 30. júlí kl. 12.30, leikur
Tómas Guðni Eggertsson organisti
við Seljakirkju hið fræga Adagio
eftir Albinoni, Tokkötu og fúgu í d
moll og sálmforleikinn O Mensch,
bewein' dein' Sünde groß eftir Bach,
ásamt kafla úr verkinu L’Ascension
eftir Messiaen.
Tómas Guðni hefur starfað sem
píanókennari, blásarakennari og
organisti og hefur verið tónlistar
stjóri Seljakirkju frá árinu 2009.
Hann kemur reglulega fram sem ein
leikari eða meðleikari með kórum,
söngvurum og hljóðfæraleikurum
úr ólíkum tónlistarkimum.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur fyrir
fullorðna, ókeypis fyrir félaga í List
vinafélaginu og börn yngri en 16 ára.
Miðasala er við innganginn.
Tómas leikur
Albinoni
Orgelið hljómar í Hallgrímskirkju.
Flæði er yfirskrift sýningar Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur í Einkasafninu í Eyjafjarðar
sveit. Aðalheiður vinnur með
timbur og tengir það flæði líðandi
stundar og því sjálfsprottna sem
fyrir er.
Sýningin er opin laugardaginn 1.
ágúst og sunnudaginn 2. ágúst frá
14.0017.00.
Einkasafnið er 10 km sunnan
Akureyrar og stendur við syðri
afleggjara þjóðvegar 822, Kristnes
vegar.
Flæði Aðalheiðar
Verk á sýningu Aðalheiðar.
3 0 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING