Fréttablaðið - 30.07.2020, Síða 38

Fréttablaðið - 30.07.2020, Síða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is ÞETTA KOM MÉR BARA SKEMMTILEGA Á ÓVART. ÉG ER BARA BÚINN AÐ LIGGJA VEIKUR MEÐ NÝRNA- STEINA OG FÉKK SÍÐAN SKILA- BOÐ FRÁ UMBOÐSMANNI MÍNUM Í AMERÍKU Í GÆR MEÐ ÞESSUM FRÉTTUM. Tó n l i s t a r m a ð u r i n n og tónskáldið Ólafur Arnalds hefur verið tilnefndur til Emmy-v e r ð l a u n a f y r i r titillagið í sjónvarps- þáttunum Defending Jacob en til- kynningarnar voru opinberaðar síðastliðinn þriðjudag. Sjálfur bjóst hann ekki við tilnefningu þar sem hann vissi ekki til þess að tónlistin úr þáttunum hefði verið send inn. „Ég vissi í rauninni ekki að ég væri gjaldgengur þannig þetta kom mér bara skemmtilega á óvart. Ég er bara búinn að liggja veikur með nýrnasteina og fékk síðan skilaboð frá umboðsmanni mínum í Amer- íku í gær með þessum fréttum“ segir Ólafur léttur í bragði og bætir við að fréttirnar hafi vissulega gert daginn töluvert betri. Vakti strax athygli Aðspurður um hvernig verkefnið kom til segir Ólafur að þeir sem standa að baki þáttunum hafi óskað eftir honum vegna vinnu hans við tónlistina í bresku sjón- varpsþáttunum Broadchurch, sem hann hlaut meðal annars BAFTA- verðlaun fyrir. Hann hafi ákveðið að taka við verkefninu eftir að hafa lesið handritið fyrir um ári síðan og til stóð að hann myndi alfarið semja tónlistina í þáttunum. „Svo breyttust aðeins aðstæður hjá mér og ég þurfti sem sagt að hætta við á miðri leið. Atli Örv- arsson tók við af mér og samdi að lokum tónlistina við þættina en ég var búinn að klára þetta þema, svona titillagið í þáttunum, og þau héldu því,“ segir Ólafur. Þættirnir, sem eru sýndir á Apple TV+, eru alls átta talsins en þeir hafa notið mikilla vinsælda frá því að þeir komu út síðastliðinn apríl og segir Ólafur viðtökurnar hafa verið mjög góðar. „Þetta þema vakti strax mikla athygli sem er gaman að sjá. Ég tók eftir því bara á samfélags- miðlum að það væri mikið af fólki að deila því.“ Stór nöfn tilnefnd Ólafur hefur unnið til fjölda verð- launa á sínum ferli, til að mynda verðlauna bresku kvikmynda- og sjónva r psþát t aa k ademíu nna r BAFTA, en hann segir þetta vera í fyrsta sinn sem hann er tilnefndur til stórra verðlauna í Ameríku. „Ég er yfirleitt svona frekar rólegur, alla vega til að byrja með, en þetta eru auðvitað bara mjög ánægjulegar fréttir.“ Auk Ólafs eru tónskáldin Nathan Barr, Antonio Gambale og Laura Karpman tilnefnd fyrir besta titil- lagið, sem og RZA, einn stofnandi hljómsveitarinnar Wu-Tang-Clan. Hann kippir sé þó ekki mikið upp við að vera tilnefndur ásamt öðrum stórum nöfnum í bransanum. „Þetta er bara eitthvað stöff á blaði þannig séð.“ Þá sé það óljóst hvernig verð- launaaf hendingin fari í rauninni fram, hvort hún verði með hefð- bundnu sniði eða í gegnum fjar- skiptabúnað vegna COVID-19 heimsfaraldursins, en stefnt er á að verðlaunahátíðin fari fram 20. sept- ember næstkomandi. „Það hefði verið gaman ef ég hefði fengið að sitja með þessum einstakl- ingum og fá að eyða kvöldi með þeim en ég held bara að þetta fari fram á Zoom eða eitthvað svoleiðis,“ segir Ólafur. „Þannig að þetta er allt kannski svona abstrakt.“ Von á nýrri tónlist Að sögn Ólafs hefur heimsfaraldur- inn sett ákveðið strik í reikninginn hjá honum sjálfum en hann þurfti að hætta við tónleikaferðalög í haust og af lýsa um 60 tónleikum. Hann hefur þó ekki setið auðum höndum heldur hafi hann nýtt tímann í að vinna í nýrri tónlist. „Ég fór bara að einbeita mér að því að búa til nýja tónlist og er búinn að vera að því allt árið og það fer að líða að því að eitthvað fari að koma út. Þannig að við erum bara að undir- búa það og gera okkur tilbúin,“ segir Ólafur að lokum. fanndis@frettabladid.is Nýtti heimsfaraldur í að skapa nýja tónlist Ólafur Arnalds vinnur nú að nýrri tónlist en hann var á dögunum tilnefndur til Emmy-verðlauna fyrir titillagið í sjónvarpsþáttunum Defending Jacob. Hann segir fréttirnar vera mjög ánægjulegar. Ólafur hefur unnið til fjölda verðlauna en hann var í vikunni tilnefndur til Emmy-verðlauna. MYND/HERRY SANTOSA Þættirnir eru sýndir á Apple TV+. 3 0 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Hvort sem þig vantar inni eða útimálningu þá finnur þú gríðarlegt litaúrval hjá okkur. Kíktu við og finndu draumalitinn þinn. Hvaða litur er þinn draumalitur?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.