Fréttablaðið - 06.08.2020, Page 1

Fréttablaðið - 06.08.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 7 1 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 P Y L S U R hafðu þær með á grillið í sumar B ES TA MAT ARPYLSA N ÁRIÐ 2020 VIÐSKIPTI Alvotech og alþjóðlegi lyfjarisinn Teva Pharmaceuticals hafa gert samstarfssamning um þróun, framleiðslu og markaðssetn- ingu fimm líftæknilyfja í Banda- ríkjunum en hann tryggir íslenska fyrirtækinu tekjur upp á hundruð milljarða á næstu tíu árum. „Við gerum ráð fyrir því að Bandaríkin skili okkur um 500 milljarða króna tekjum á næstu tíu árum. Þessi samningur er stór hluti af því,“ segir Róbert Wessm- an, stofnandi Alvotech, við Frétta- blaðið. Þau lyf sem Alvotech hefur nú í þróun eru meðal annars notuð til meðferðar á sjúkdómum eins og gigt og krabbameini og eru öll í hópi söluhæstu lyfja heims í dag. Með samkomulaginu hefur Teva tryggt sér markaðsleyfi fyrir lyf Alvotech er þau koma á markað á næstu árum. Lyfin verða framleidd í hátæknisetri fyrirtækisins á Íslandi. Alvotech stefnir að frekari vexti hér á landi og býst við að ráða allt að 70 vísindamenn og sérfræðinga til viðbótar við þá 480 sem starfa nú þegar hjá fyrirtækinu. Aðspurður segir Róbert að samn- ingurinn við Teva sé sá stærsti sem Alvotech hefur gert til þessa, hann sé líklega sá stærsti sem hafi verið gerður í þeim geira sem fyrirtækið starfar. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er umræddur viðskipta- samningur á meðal þeirra stærstu ef ekki sá stærsti sem íslenskt fyrir- tæki hefur gert. Þróun og framleiðsla líftækni- lyfja gæti orðið ein af burðarstoð- um íslensks útf lutnings að sögn Róberts. „Við sjáum fyrir okkur að bæði Alvotech og Ísland geti verið í leiðandi hlutverki á sviði líftækni á heimsvísu og samhliða því verði til ný atvinnugrein hér á landi. Það eru ekki mörg fyrirtæki í heiminum eins og Alvotech vegna þess að þekkingin, sem lyfjaþróun af þessu tagi krefst og við erum að byggja upp hér á landi, er vandfundin,“ segir Róbert. – þfh / sjá síðu 10 Sömdu um risaupphæð Samningur Alvotech við Teva hleypur á hund­ ruðum milljarða króna. Einn stærsti samningur íslensks fyrirtækis í sögunni. Líftæknilyf geta orðið ein af burðarstoðum íslensks útflutnings. Við gerum ráð fyrir því að Bandaríkin skili okkur um 500 millj- arða króna tekjum á næstu 10 árum. Þessi samningur er stór hluti af því. Róbert Wessman, stofnandi Alvotech Krakkar úr Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna '78 og Tjarnarinnar tóku upp söngatriði í Gamla bíói í gær. Það verður meðal atriða í sérstökum skemmtiþætti RÚV á laugardagskvöld. Tuttugu ár eru nú frá því að Gleði- gangan var gengin fyrst. Eins og kunnugt er var hin formlega ganga slegin af þetta árið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LÍBANON Að minnsta kosti 135 létu lífið er hrikalegar sprengingar urðu við höfnina í Beirút, höfuðborg Líb- anon, á þriðjudaginn. Yfir fimm þúsund manns eru slasaðir og að auki er hundraða enn saknað. Gríðarlegur skortur er á sjúkragögnum og laskað heilbrigð- iskerfi ræður illa við fjölda slasaðra. Eyðileggingin í borginni er gífurleg og um þrjú hundruð þúsund manns eru talin hafa misst heimili sín. Evrópusambandið og fjölmörg lönd, þar á meðal Bretland, Tyrk- land og Rússland, brugðust hratt við og sendu mannskap og hjálpargögn til landsins. Íslensk stjórnvöld hafa heitið aðstoð og Rauði krossinn hérlendis efnir til neyðarsöfnunar fyrir hrjáða íbúa Beirút. – bþ / sjá síðu 8 Þrjú hundruð þúsund án heimilis eftir sprengingar Maður í húsarústum. MYND/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.