Fréttablaðið - 06.08.2020, Side 2

Fréttablaðið - 06.08.2020, Side 2
Ég held hún haldi að hún sé hundur og hundar eru ekkert mikið að fljúga. Veður Sunnan 8-13 m/s en heldur hægari á austanverðu landinu. Víða skúrir og hiti 8 til 13 stig, en bjart með köflum norðaustan til og hiti að 18 stigum á þeim slóðum. SJÁ SÍÐU 18 Hversdagslíf á Hverfisgötu Með hjálp tækninnar styttu þessir menn sér stundir á Hverfisgötunni í gær. Ólíkt höfðust þeir þó að. Annar var í símanum og hinn að hlusta. Annar sat og beið eftir strætó en hinn gekk sinn veg. Veggurinn fagurblái skýlir fyrirhuguðu byggingarsvæði að baki Stjórnarráðinu. Mynd­ skreytingar prýða vegginn og þar eru einnig gluggar sem hægt er að skyggnast inn um og fylgjast með hvernig verkinu miðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SAMFÉLAG Ferðamálafrömuðurinn Jóhann Helgi Hlöðversson og hrafn­ inn Dimma hafa að undanförnu slegið í gegn á samfélagsmiðlum. Óhætt er að fullyrða að Jóhann sé sannkallaður hrafnahvíslari, enda er Dimma ekki fyrsti hrafninn í hans eigu. Þegar Dimma fannst köld og hrakin sem ungi á Selfossi í júní var leitað til Jóhanns. „Dýralæknar Suðurlands höfðu samband eftir að hún fannst á íþróttasvæðinu á Selfossi og spurðu hvort ég væri ekki til í að taka hana að mér,“ segir Jóhann. Hann birtir reglulega myndbönd á Facebook af Dimmu sem vekja mikla athygli, þar sem meðal ann­ ars má sjá hana að leik með hundi Jóhanns. Jóhann er þúsundþjalasmiður og segir að hrafnadýrkunin sé til­ komin eftir að það kreppti að í efnahag fjölskyldunnar árið 2008. Hann stofnaði gistiheimili að Vatns­ holti í Flóa ásamt eiginkonu sinni, Margréti Ormsdóttur, en Eyjafjalla­ jökull setti strik í reikninginn. „Við opnuðum 2010 og svo fór að gjósa um leið og við opnuðum og þá komu engir gestir inn. Þá varð maður að gjöra svo vel að hafa allar klær úti og finna sér einhverja vinnu,“ segir Jóhann. „Eitt af því var að dunda sér í þessu og ég hef fengið töluvert af verkefnum í kvik­ myndum og auglýsingum og ýmsu. Ég hef til dæmis unnið fyrir Dalai Lama, Annie Leibowitz, í Vikings­ þáttunum og í íslenskum sjónvarps­ auglýsingum og fyrir f leiri aðila.“ Hann segir hrafna með gáfuðustu dýrum í heimi og segir þá veita ein­ stakan félagsskap. Dimma er eini hrafn Jóhanns nú og í miklu uppá­ haldi. Hún mun koma til með að leika í sjónvarpsauglýsingu í næstu viku, sem leynd hvílir yfir. „Hún er alveg einstaklega ljúf. Þeir eru yfirleitt mjög ljúfir fyrsta árið og svo verða þeir svolítið sjálf­ stæðari og uppivöðslusamari og erfiðara að eiga við þá. En hún er ekki alveg orðin f leyg hjá mér. Ég held hún haldi að hún sé hundur og hundar eru ekkert mikið að fljúga. Hún samt flögrar aðeins og ef ég set hana á grein og henni fer að leiðast þá flýgur hún yfir á næstu.“ Ótrúleg myndbönd af Jóhanni og Dimmu má sjá á vefnum frettabla­ did.is. odduraevar@frettabladid.is Féll úr hreiðrinu en er nú orðin að stórstirni Jóhann Helgi Hlöðversson bjargaði hrafninum Dimmu eftir að hún féll úr hreiðri sínu. Hann segir hana einstaklega ljúfa og fljótari að læra en hundur. Hún kemur til með að leika í alþjóðlegri sjónvarpsauglýsingu í næstu viku. Dimma er í uppáhaldi hjá Jóhanni og er hún einstaklega ljúf. MYND/AÐSEND Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 PREN TU N .IS NÝBAKAÐ BRAUÐ ALLA DAGA ....................................... www.bjornsbakari.is COVID-19 Katrín Jakobsdóttir for­ sætisráðherra segir framtíðar­ fyrirkomulag vegna viðbragða stjórnvalda við kórónaveirunni í undirbúningi. „Þar munu sitja ólíkir aðilar til að tryggja sem best samhæfingu innan og utan stjórnkerfisins. Þá eru haldnir samráðsfundir ólíkra aðila vegna faraldursins daglega í stjórn­ kerfinu um þessar mundir, rétt eins og á vormánuðum,“ útskýrir Katrín. „Eins og áður hefur komið fram er heilbrigði almennings forgangsmál stjórnvalda en hér eftir sem hingað til þarf að taka tillit til efnahagslegra og samfélagslegra áhrifa og tryggja að samfélagið geti gengið sem eðli­ legast fyrir sig þrátt fyrir heims­ faraldur,“ heldur ráðherrann áfram. „Til að ná þeim markmiðum þarf einmitt að tryggja samhæfinguna sem ég nefndi hér áðan.“ Karl Gústaf Kristinsson, yfirlækn­ ir á sýkla­ og veirufræðideild Land­ spítalans, sagði við frettabladid.is í gær að deildin væri við þolmörk. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskr­ ar erfðagreiningar, útilokaði ekki að fyrirtækið kæmi aftur að skimun við landamærin. Spurning sé hvort skynsamlegt sé að láta fólk streyma inn í landið í stríðum straumum. „Við erum að takast á við faraldur sem er að vega að lífsháttum okkar í þessu samfélagi sem við erum hluti af og auðvitað erum við opin fyrir þeim möguleika að leggja okkar af mörk­ um til að takast á við það.“ – bdj, eþá Samfélagið sé sem eðlilegast Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK LÖGREGLUMÁL Ólíklegt er að rann­ sókn verði lokið að fullu á brun­ anum á Bræðraborgarstíg þegar gæsluvarðhald yfir hinum grunaða rennur út 11. ágúst. Að óbreyttu verður gæsluvarðhaldið framlengt, samkvæmt upplýsingum frá lög­ reglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eftir að hafa verið handtekinn var hinn grunaði vistaður á geðdeild í ríflega þrjár vikur. Þegar gæsluvarð­ haldið var fyrst framlengt þann 15. júlí hafði ekki verið hægt að ræða við hinn grunaða „sökum andlegs ástands“, eins og það var orðað í úrskurðinum. Beðið er niðurstaðna úr tækni­ rannsóknum á vettvangi brunans. Fram hefur komið að bruninn er rann sakaður sem mann dráp. – thg Í haldi áfram að öðru óbreyttu Eftir handtökuna var hinn grunaði vistaður á geðdeild í þrjár vikur. 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.