Fréttablaðið - 06.08.2020, Side 4

Fréttablaðið - 06.08.2020, Side 4
JEEP® GRAND CHEROKEE jeep.is UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 VERÐ FRÁ: 11.690.000 KR. • 3.0 V6 250 HÖ. DÍSEL, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING • 570 NM TOG • HÁTT OG LÁGT DRIF • RAFDRIFIN LÆSING Í AFTURDRIFI • LOFTPÚÐAFJÖÐRUN AÐ FRAMAN OG AFTAN • HLÍFÐARPLÖTUR UNDIR VÉL, KÖSSUM OG SKIPTINGU • BI-XENON LED FRAMLJÓS MEÐ ÞVOTTAKERFI • RAFDRIFIN OPNUN Á AFTURHLERA • ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI • BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ • FJARLÆGÐASKYNJARAR AÐ FRAMAN OG AFTAN • BLINDHORNSVÖRN STAÐALBÚNAÐUR M.A.: Á ALVÖRU JEPPA MEÐ ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIFI FERÐASTU UM ÍSLANDALLT BÍLL Á MYND: JEEP® GRAND CHEROKEE TRAILHAWK 35” BREYTTUR BANDARÍKIN Yfirvöld í Washington tilkynntu í gær að heilbrigðisráð- herrann, Alex Azar, muni heim- sækja Taívan á næstu dögum. Dylst engum að þetta er gert til þess að ögra Kínverjum í stigmagn- andi deilum ríkjanna tveggja, meðal annars í Suður-Kínahafi. Þetta er veigamesta heimsókn bandarísks fulltrúa til eyjarinnar síðan 1979, þegar Jimmy Carter forseti undirritaði yf irlýsingu um að opinberum samskiptum ríkjanna tveggja væri slitið og að Bandaríkin litu svo á að alþýðu- lýðveldið væri hið eina sanna Kína. Síðan þá hafa öll samskipti Bandaríkjanna við Taívan verið undir öðrum formerkjum en sem samskipti við sjálfstæð ríki. Til að mynda er sendiráð sem ber heitið Ameríska stofnunin í Taívan. Ástæða heimsóknarinnar er sögð vera að styrkja samskipti Bandaríkjanna og Taívan og einnig til að takast á við COVID-19. „Taív- anar hafa farið fram með miklu gegnsæi og stuðlað að samvinnu í heilbrigðismálum á heimsvísu á tímum COVID-19, og löngu fyrir þann tíma,“ sagði Azar í yfirlýsingu sem birt var á vef stofnunarinnar. Dagsetning heimsóknarinnar hefur ekki verið ákveðin en Azar mun funda með ráðherrum, far- aldssérfræðingum og f leiri aðilum. Talið er að stjórnvöld í Peking bregðist nær örugglega við heim- sókninni á einhvern hátt. – khg Donald Trump og Azar. MYND/GETTY Taívanar hafa farið fram með miklu gegnsæi og stuðlað að samvinnu í heilbrigðis- málum á heimsvísu á tímum COVID-19, og löngu fyrir þann tíma Alex Azar heilbrigðisráðherra Bandaríkjamenn ögra Kínverjum með heimsókn til Taívan MENNING Útgjöld hins opinbera til menningarmála námu tveimur og hálfu prósenti af heildarútgjöldum árið 2018 og var hlutur Íslands til málaflokksins sá þriðji hæsti í Evr- ópu samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Einungis Ungverjaland og Lett- land vörðu stærri hlut til menningar sama ár, Ungverjar 2,7 prósentum og Lettar 2,8 prósentum. Ef litið er til síðustu tíu ára má sjá að hlutdeild til menningar hefur verið svipuð á Íslandi síðasta áratug- inn en hæst var hún árið 2013, eða 2,6 prósent og lægst árið á undan, 2,2 prósent. Á verðlagi ársins 2018 voru útgjöld til menningarmála rúmir 29 milljarðar, en lægst fór upphæðin niður í rúma 25 milljarða árið 2013. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir töl- urnar endurspegla þá miklu áherslu sem lögð sé á menningu á Íslandi. „Við leggjum mikla áherslu á menn- ingu hér á landi og munum halda áfram á þeirri leið, vegna þess að menningin skiptir Íslendinga miklu máli. Það sjáum við meðal annars í aðsókn að menningarviðburðum.“ Þá segir hún tölurnar og stöðu Íslands miðað við önnur lönd sýna mikilvægi menningar á Íslandi. Sé litið til hinna Norðurlandanna megi sjá að hluti opinberra útgjalda til menningar sé undir meðallagi í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi. Hlutur til menningar í Finnlandi er lægstur á Norður- löndum, einungis tæpt eitt prósent. Kórónaveirufaraldurinn hefur haft mikil áhrif á bæði menningu og listir hér á landi og í skýrslu um áhrif COVID-19 á íslenskan tón- listariðnað, sem unnin var af Félagi íslenskra hljómlistarmanna, Félagi hljómplötuframleiðenda, Samtök- um flytjenda og hljómplötufram- leiðenda, STEF, Tónlistarborginni Reykjavík og Útf lutningsstofu íslenskrar tónlistar, kemur fram að áhrifin hafi verið mest fyrir það tónlistarfólk sem reiði sig alfarið á tónlistina sem fyrirvinnu. Áhrifin sjáist til að mynda í óafturkræfum kostnaði fyrir tón- listarfólk, offramboði og mikilli samkeppni, af bókunum og lægri launum. Í aðgerðaáætlun ríkis- stjórnarinnar vegna COVID-19 var gert ráð fyrir 750 milljónum króna til að bregðast við þeim áhrifum sem faraldurinn hefur á listir, menningu, íþróttir og æsku- lýðsmál. Og segir Lilja að einnig sé uppi umræða um sérstakar aðgerðir varðandi tónlistarfólk. „Við erum í samstarfi við lykilað- ila í tónlistargeiranum að skoða sér- stakar aðgerðir varðandi tónlistar- fólk,“ segir Lilja og bætir við að miklu máli skipti að menningartengd starf- semi geti hafist sem fyrst að nýju. „Það sást til að mynda um versl- unarmannahelgina að þetta er mikil skellur fyrir stóran hóp fólks sem vinnur að tónlist,“ segir hún. Þá segir Lilja að mikilvægast sé þó að ná stjórn á veirunni. „Það er númer eitt, tvö og þrjú, því að við vitum að þetta er ekki eins og venjuleg inf lúensa. Fólk veikist mismikið og við höfum ekki séð slíkan faraldur í áratugi. Til þess að samfélagið okkar blómstri þurfum við að ná stjórn á honum.“ birnadrofn@frettabladid.is Útgjöld Íslands til menningar þriðju hæstu í Evrópulöndum Útgjöld hins opinbera til menningarmála námu 2,5 prósentum af heildarútgjöldum árið 2018. Einungis tvö önnur lönd í Evrópu vörðu stærri hlut til menningar. Lilja Alfreðsdóttir segir þetta endurspegla þá áherslu sem lögð er á menningu hér, en að mikilvægt sé að menningarstarfsemi hefjist sem fyrst að nýju. Ekki hefur farið mikið fyrir stórum tónleikum í ár, líkt og á Menningarnótt, vegna COVID-19. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Við erum í sam- starfi við lykilaðila í tónlistargeiranum að skoða sérstakar aðgerðir varðandi tónlistarfólk. Lilja Alfreðsdótt- ir, mennta- og menningarmála- ráðherra SJÁVARÚTVEGUR Verð á af laheim- ildum á þorski hefur hækkað um 37 prósent frá miðju sumri, að því er kemur fram í tölum Fiskistofu. Heildaraflamark þorsks lækkar um 6 prósent frá fyrra ári samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðherra, sem fór eftir ráðgjöf Hafrannsókna- stofnunar við ákvörðun aflamarks. Aflamark næsta árs er því tæplega 257 þúsund tonn. Meðalverð í viðskiptum með aflaheimildir fyrstu tvær vikur júlí- mánaðar var rétt tæplega 195 krón- ur á kílóið. Síðari hluta mánaðar var meðalverðið komið upp undir 231 krónu fyrir kílóið og fyrstu fimm daga ágústmánaðar stendur meðal- verð viðskipta með af laheimildir fyrir þorsk í 268 krónum á kíló. – thg Hækkun verðs á þorskkvóta Verð á þorskkvóta hefur hækkað skarpt frá miðjum júlí. MYND/GVA COVID -19 Í gær höfðu á undan- gengnum sólarhring greinst 1.772 ný CO VID-19 tilfelli á Spáni sem er það mesta á einum degi síðan í júní . Í frétt í The Guar dian í gær sagði að dauðs föll á Spáni vegna CO VID- 19 væru 28.499. Fjölgunin valdi því að far þega sem ferðast frá Spáni bíði nú víða að fara í sótt kví. Síðast greindu yfir völd í Sviss frá því að far þegar frá Spáni þyrftu að fara í tíu daga sótt kví við komu, nema þeir komi frá Kanarí eyjum eða Mall or ca. Bret land, Ír land og Noregur höfðu fyrr til kynnt að far þegar frá Spáni þyrftu að fara í sótt kví. – eþá COVID-19 sækir fram á Spáni 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.