Fréttablaðið - 06.08.2020, Page 8
Efnahagsástandið í
Líbanon hefur verið afar
bágborið undanfarin
misseri og landið í raun
rambað á barmi fjárhagslegs
hengiflugs.
Hin virtu norrænu neytendasamtök Kuluttaja (finnsk), Råd & Rön (sænsk) og
Tænk (dönsk) hafa gert úttektir á bakstursofnum frá ýmsum framleiðendum.
Siemens ofnarnir komu best út og fengu toppeinkunn fyrir almenn gæði sín. Bravó!
Af því tilefni bjóðum við nokkra framúrskarandi ofna á tilboðsverði.
Gildir til og með 31. ágúst eða á meðan birgðir endast.
Bakstursofn BakstursofnBakstursofn
HB 578ABS0S, iQ500 HB 672GBS1S, iQ700HR 675GBS1S, iQ700
Orkuflokkur A. Brennslusjálfhreinsun.
Átta ofnaðgerðir.
Orkuflokkur A+. Brennslusjálfhreinsun.
Átta ofnaðgerðir.
Orkuflokkur A+. Með gufu.
Brennslusjálfhreinsun. 13 ofnaðgerðir.
Fullt verð: 169.900 kr. Fullt verð: 189.900 kr.Fullt verð: 249.900 kr.
Tilboðsverð: Tilboðsverð:Tilboðsverð:
129.900 kr. 149.900 kr.189.900 kr.
OrkuflokkurOrkuflokkur
Bakstursofnarnir hjá
Smith & Norland eru
sannkallaðir sigurvegarar.
Orkuflokkur
1. sæti 2. sæti
BEIRÚT Að minnsta kosti 135 ein-
staklingar létu lífið þegar gríðarleg
sprenging varð við hafnarsvæði
Beirút, höfuðborgar Líbanons, á
þriðjudaginn. Yfir fimm þúsund
eru slösuð og að auki er hundraða
enn saknað sem er vísbending um
að tala látinna hækki enn frekar
þegar frá líður.
Gríðarlegur skortur er á sjúkra-
gögnum auk þess sem laskað heil-
brigðiskerfi landsins ræður illa við
þann fjölda sem þarf aðhlynningu
þegar í stað. Evrópusambandið og
fjölmörg lönd, þar á meðal Bretland,
Tyrkland og Rússland, brugðust
hratt við og sendu mannskap og
hjálpargögn til landsins.
Enn er á huldu hvað olli spreng-
ingunni í vörugeymslunni en í gær
var greint frá því að þar hefðu um
2.750 tonn af ammoníumnítrati
verið geymd undanfarin sex ár.
Hefur sú staðreynd valdið mikilli
reiði meðal almennings í Líbanon.
Forseti Líbanons, Michel Aoun,
hefur heitið því að einhverjir verði
dregnir til ábyrgðar fyrir með-
ferðina á hinu stórhættulega efni
og muni hinir sömu þurfa að þola
þyngstu mögulegu refsingu. Þá
hefur yfirmaður tollamála í Líb-
anon, Badri Daher, greint frá því
að hann hafi sent sex minnisblöð
til stjórnvalda um hættuna sem
gæti skapast af geymslu efnisins á
þessum stað án þess að gripið hafi
verið til aðgerða.
Hringurinn utan um hina meintu
sökudólga þrengist því hratt en
greint hefur verið frá því að nokkrir
stjórnendur hafnarinnar í Beirút
sæti nú stofufangelsi á meðan málið
verður rannsakað.
Ljóst er að sprengingin hrikalega
í Beirút er afar þungt högg fyrir
þjóð sem mátti ekki við miklum
áföllum í viðbót. Efnahagsástandið
í Líbanon hefur verið afar bágborið
undanfarin misseri og landið í raun
rambað á barmi fjárhagslegs hengi-
f lugs.
Aðeins er tæpt ár síðan þáverandi
forsætisráðherra Líbanons, Saad
Hariri, sagði af sér embætti eftir
mótmælaöldu í landinu. Litlu mátti
muna að styrjaldarástand brytist út
því að lögregla og her voru sökuð
um að hafa beitt óhóflegu valdi til
þess að kveða niður hörðustu mót-
mælin.
Í tvo mánuði var ekki starf hæf
ríkisstjórn í landinu en þá var Hass-
an Diab skipaður forsætisráðherra
nýrrar stjórnar. Diab var háskóla-
kennari sem einnig hafði gegnt
embætti menntamálaráðherra en
til þess að lægja öldurnar í landinu
var ríkisstjórn hans skipuð sér-
fræðingum sem stjórnmálaflokkar
höfðu lagt blessun sína yfir.
Það dugði þó ekki til þess að
lægja öldurnar meðal almennings
því mótmæli hafa verið tíð það sem
af er ári. Eins og heimsbyggðin öll
hefur Líbanon átt fullt í fangi með
að glíma við kórónaveirufaraldur-
inn.
Alls hafa 65 dauðsföll verið skráð
í landinu en áhrif faraldursins eru
ekki síst efnahagsleg, enda treystir
Líbanon mjög á ferðaþjónustu.
bjornth@frettabladid.is
Máttu ekki við þessum hörmungum
Hundruð manna létust í sprengingunni í Beirút á þriðjudaginn. Yfir fimm þúsund eru slasaðir og skortur er á sjúkragögnum. Mikill
órói hefur verið í landinu undanfarið ár vegna bágborins efnahags sem hefur versnað enn frekar vegna kórónaveirufaraldursins.
Eyðileggingin í Beirút er nær alger og ljóst að hreinsunar- og uppbyggingarstarf mun taka langan tíma. MYND/ EPA
Hassan Diab
6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð