Fréttablaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 12
Frá degi til dags Halldór Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Sigríður sagði hluti sem skipta miklu máli og mikil- vægt er að hafa í heiðri á tímum eins og þessum. En það getur orðið okkur dýrt að spara okkur út úr þessari kreppu. Ríkisstjórn og sóttvarnayfirvöld hljóta að gera sér grein fyrir því að harðar aðgerðir vegna kórónafaraldursins leiða til gjald­þrota og atvinnuleysis og skapa auk þess kvíða og ala á ótta hjá einstaklingum. Aðgerðirnar eru einnig til þess fallnar að skerða mannréttindi fólks. Vegna alls þessa mega aðgerðir ekki vera harðari en nauðsyn ber til. Þær þarf líka að rökstyðja vel hverju sinni, eins og sjálfsagt er að gera þegar verið er að hefta frelsi fólks. Fólk er ekkert sérstaklega að velta fyrir sér mann­ réttindum sínum á kórónatímum. Hlýðum Víði var slagorð sem hljómaði ágætlega svona í byrjun kórónafaraldurs, en blind hlýðni er samt ekki af hinu góða. Þegar þrengt er að mannréttindum fólks, undir þeim formerkjum að það sé því sjálfu fyrir bestu, þá þurfa einstaklingar einmitt að halda vöku sinni. Blessunarlega virðist Víðir Reynisson sjálfur gera sér grein fyrir þessu og af málflutningi hans hefur mátt ráða að hann telji að ýmis höft sem hafi verið sett á eigi alls ekki að festast hér í sessi. Það er sannarlega ekki sjálfgefið að maður í hans stöðu tali þannig. Fyrir það skal honum þakkað. Of fáir tala á sama hátt. Á dögunum mælti hin ætíð óhrædda Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gegn hertum aðgerðum til að hefta kórónaveiruna. Um leið skapaðist gósentíð hjá æstum netverjum, því nú gafst sannarlega tilefni til að fara hamförum, hneykslast og bölsótast. Þannig líður netsóðunum nefnilega lang­ best. Formælingum rigndi yfir Sigríði og henni var vitanlega ráðlagt að drepa sig. Sigríður sagði hluti sem skipta miklu máli og mikilvægt er að hafa í heiðri á tímum eins og þessum. Flokkssystir hennar, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, hefur talað á líkum nótum. Vonandi halda þær áfram að standa vaktina og vara við því að höft fari að teljast sjálfsögð. Aðrir stjórnmálamenn virðast ekki hafa sérlega mikinn áhuga á þessum sjónarmiðum, sem eru samt svo mikilvæg. Af einhverjum ástæðum á þetta sérstaklega við um stjórnmálamenn á vinstri vængnum. Í pistli sínum varaði Sigríður sömuleiðis við hræðsluáróðri. Jafnvel harðhausar sem taka kóróna­ faraldrinum af mikilli ró og eru einbeittir í því að láta hann ekki trufla líf sitt, vita af einstaklingum sem þjást af kvíða og ótta og eru sumir nánast óstarfhæfir vegna þessa. Sóttvarnayfirvöld og ríkisstjórn hljóta einnig að vita af þessum hópi. Það skiptir verulegu máli hvernig hlutir eru sagðir. Vitanlega eiga yfirvöld að vera raunsæ, en verða um leið að gefa fólki von – enda ætti það ekki að vera sérlega erfitt. Enn skal vikið að Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni sem í nýlegu viðtali á Bylgjunni sagði pistil Sigríðar Á. Andersen vera áhugaverðan. Hann sagði hjálplegt þegar bent væri á hluti á málefnalegan hátt og bætti við að hættulegt væri ef allir væru sammála þeim sem eru í krísustjórnun, eins og hann er. Svo sannarlega gæti þjóðin verið óheppnari með yfirlögregluþjón. Höft og ótti ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Nú þegar verslunarmannahelgin er að baki og fólk snýr aftur til vinnu eftir sumarleyfi verður manni hugsað til þeirra þúsunda Íslendinga sem hafa misst eða eru að missa vinnuna. Á meðan síðasta efnahagskreppa kom við fjárhag flestra Íslendinga, þó með ólíkum hætti væri, bitnar núverandi kreppa mjög misilla á fólki, þó allir verði vissulega fyrir óþægindum vegna sóttvarna. Sumir finna varla fyrir efnahagslegum áhrifum á meðan tugþúsundir Íslendinga verða fyrir miklu tekjutapi vegna atvinnumissis. Ég hef áhyggjur af því fólki. Við þurfum að leita allra leiða til að örva atvinnulífið á nýjan leik og draga úr þeim félagslega vanda sem hlýst af tekjumissi vegna atvinnuleysis, veikinda eða annars konar röskunar vegna heimsfaraldursins. Það þarf að hindra með öllum ráðum að ójöfnuður aukist í þessu ástandi og í kjölfar þess. Þess vegna þarf að vernda vel­ ferðarkerfið, helsta öryggisnetið okkar, þegar áfall ríður yfir. Heilbrigðiskerfið, sem hefur verið undir sérstöku álagi, verður að fá nægt rekstrarfjármagn til að tryggja áfram fyrirtaks þjónustu við almenning. En með Sjálfstæðisflokkinn við stjórnvölinn er hætta á að vandinn magnist. Formaður Sjálfstæðis­ flokksins talar um í fjölmiðlum að „ekki sé svigrúm fyrir nýjum rekstrarútgjöldum“, varaformaður Sjálf­ stæðisflokksins gerði hagræðingu að umtalsefni á síðasta Eldhúsdegi og sagði okkur „einfaldlega ekki hafa efni á því að reka stóru kerfin okkar með óbreytt­ um hætti“. Allt orðrétt upp úr uppskriftabók hægri manna. Og varaformaður fjárlaganefndar, sem einnig er þingmaður Sjálfstæðisflokksins, bætti svo við fyrir stuttu að ólíklegt væri að Landspítalinn fengi meira fé og talaði um „tækifæri til hagræðingar“. Við þekkjum allt of vel að niðurskurðarhnífurinn er nærtækasta verkfæri hægri manna í efnahagsþreng­ ingum. En það getur orðið okkur dýrt að spara okkur út úr þessari kreppu. Við þurfum að beita ríkissjóði og vinna okkur gegnum hana á lengri tíma; fjárfesta í heilbrigði, félagslegu öryggi og af bragðs menntun, tryggja aukinn jöfnuð og búa allri þjóðinni tækifæri til velsældar og hamingju til lengri tíma. Dýrt að spara Logi Einarsson formaður Sam- fylkingarinnar Tímapantanir á opticalstudio.is og í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Sjónmælingar eru okkar fag Rendurnar Guðmundur Franklín er slyngur að láta eins og það sé endalaus eftirspurn eftir honum. Nú síðast í gær á Facebook þegar hann hélt því fram að símtölin streymdu til sín og áhuginn væri slíkur á pólitískri þátttöku hans að færri kæmust að en vildu. Að nýfenginni reynslu er líklegt að fyrrverandi forsetafram- bjóðandi ofmeti samt lengd biðraðarinnar. „Menn breyta ekkert röndunum á sér,“ sagði hann. Þetta hefur líklega verið áður en Guðmundi barst til eyrna að Jón Arnór Stefánsson körfuboltamaður fór í gær úr sinni röndóttu KR-treyju og smeygði sér í fagurrauða Vals- treyjuna. Heitt og kalt Sagðar voru fréttir af því í vik- unni að nýliðinn júlímánuður hefði verið með þeim kaldari á öldinni hérlendis. Meðalhitinn í borginni slefaði næstum í 11 gráður en var nærri 13,5 í fyrra. Þetta kom ofan í áralanga umræðu um hamfarahlýnun, bráðnun jökla og hækkun yfirborðs sjávar hennar vegna. Það getur stundum verið erfitt að skilja móður jörð, en er til of mikils mælst að hún ákveði hvort hún er að hlýna eða kólna? Það er dálitlum vand- kvæðum bundið að velja sér baráttumál í loftslagsmálum í þessum hringlanda. 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.