Fréttablaðið - 06.08.2020, Síða 13
AF KÖGUNARHÓLI
Þorsteinn
Pálsson
Höft á sparnað launafólks í lífeyris-sjóðum endurspegla vel veikleika krónunnar. Ísland er eina landið,
sem þurft hefur að grípa til gjaldeyrishafta
vegna efnahagsáhrifa kórónuveirunnar.
Ranglæti er jafnan fylgifiskur hafta. En
þetta er í fyrsta sinn, sem ranglætið er ein-
vörðungu látið bitna á launafólki.
Saga krónunnar byrjaði í alþjóðlegu
myntsamstarfi. Í gegnum tíðina hafa
stjórnvöld svo leitast við að tengja hana
við aðra gjaldmiðla eða taka þátt í fjöl-
þjóðlegu myntsamstarfi. Nýju höftin eru
áminning um þennan óleysta vanda.
Norræna myntsambandið
Nú er því stundum haldið fram að sjálf-
stæð mynt sé nauðsynlegur hluti full-
veldis. Fyrir öld litu menn aftur á móti svo
á að stöðug mynt væri mikilvægari fyrir
efnahagslegt sjálfstæði landsins en sjálf-
stæð mynt.
Sú hugsun var svo almenn að aðild að
Norræna myntsambandinu var skrifuð
inn í sjálf fullveldislögin.
Árið 1955 stóð Samband íslenskra
samvinnufélaga fyrir ráðstefnu í Háskóla
Íslands. Þangað var stefnt helstu hag-
fræðingum Norðurlanda til þess að ræða
mögulega endurreisn Norræna myntsam-
bandsins.
Bretton Woods, ECU og Evra
Viðreisnarstjórn Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks undir forystu Ólafs Thors,
Bjarna Benediktssonar og Jóhanns Haf-
stein virkjaði aðild Íslands að Bretton
Woods gjaldmiðlasamstarfinu frá 1944.
Það fól í sér skuldbindingar til að fylgja
fjölþjóðlegum reglum á sviði ríkisfjármála
og peningamála.
Haustið 1991 samþykkti ríkisstjórn
sömu flokka undir forystu Davíðs Odds-
sonar, að Ísland skyldi innan tveggja ára
tengjast evrópsku mynteiningunni ECU,
sem var undanfari evrunnar.
Í tilefni þessarar ákvörðunar um
evrópsku mynteininguna sagði Jóhannes
Nordal Seðlabankastjóri: „Fastgengis-
stefna í einu eða öðru formi er eini grund-
völlur stöðugleika í efnahagsmálum, sem
raunhæft er að nota.“
Ríkisstjórn VG og Samfylkingar undir
forystu Jóhönnu Sigurðardóttur sam-
þykkti sumarið 2012 samningsmarkmið
í peningamálum vegna viðræðna við
Evrópusambandið. Þar er því lýst yfir að
Ísland stefni að upptöku evru svo fljótt
sem aðstæður leyfa.
Afstaða flokka á þessari öld
Á þessari öld hefur Samfylkingin einarð-
lega fylgt línu gamla Alþýðuflokksins um
aðild að Evrópusambandinu og upptöku
evru. Framsóknarflokkurinn undir for-
ystu Halldórs Ásgrímssonar gerði aðild
að Evrópusambandinu og upptöku evru
einnig að stefnuskrármáli.
Á allra síðustu árum hefur Viðreisn
tekið forystu á miðjunni um aukið Evr-
ópusamstarf og upptöku evru.
Sjálfstæðisflokkurinn var einnig opinn
fyrir gjaldmiðilsumræðunni, eins og fram
kom í ályktun landsfundar 2015 þar sem
sagði: „Kanna skal til þrautar upptöku
myntar, sem gjaldgeng er í alþjóðavið-
skiptum í stað íslensku krónunnar.“
VG hefur ekki ályktað um gjaldmiðils-
breytingu á landsfundum, en samþykkti
án fyrirvara í ríkisstjórn yfirlýsingu
Íslands um upptöku evru.
Lausn Björns Bjarnasonar
Af þessari sögu má ráða að á öllum tímum
hefur verið víðtækur skilningur á mikil-
vægi fjölþjóðlegs myntsamstarfs.
Á þessari öld hefur evran verið raun-
hæfasti kosturinn í þeim efnum.
Ísland hefur í meira en aldarfjórðung
verið aðili að efnahagslegum og pólitísk-
um kjarna Evrópusambandsins. Eigi að
síður vefst fyrir mörgum að stíga loka-
skrefið til fullrar aðildar, þó að það sé í
raun minna en það fyrra.
Sumarið 2008 setti Björn Bjarnason
þáverandi dómsmálaráðherra fram lög-
fræðilega ígrundaða hugmynd um að
Ísland gæti sótt um aðild að evrópska
myntsambandinu á grundvelli aðildar að
innri markaði Evrópusambandsins en án
fullrar aðildar.
Hugmyndinni um þessa millileið var þá
ýtt út af borðinu, jafnt af fylgjendum sem
andstæðingum fullrar aðildar.
Ástæða til að ræða hugmyndina
Vitað er að embættismenn framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins hafa ekki
verið áhugasamir um slíka lausn. En dýpið
hefur aldrei verið lóðað í pólitískum við-
ræðum.
Nú þegar höftin hafa verið endurvakin
með skaðvænlegri langtímaáhrifum en
áður er ærin ástæða til að ræða þessa hug-
mynd í fullri alvöru.
Á næstu árum stendur Ísland andspænis
mestu áskorunum í efnahagsmálum í
áratugi. Við þær aðstæður „getur íslenska
krónan í höftum ekki verið framtíðar-
gjaldmiðill þjóðarinnar“, eins og segir í
aðeins fimm ára gamalli ályktun lands-
fundar Sjálfstæðisflokksins.
Möguleg millileið
Ranglæti er jafnan fylgifiskur
hafta. En þetta er í fyrsta sinn, sem
ranglætið er einvörðungu látið
bitna á launafólki.
Með vísan til laga nr. 145/1994 um bókhald,
er fyrirhugað að halda próf til viðurkenn-
ingar bókara 2020 sem hér segir:
• Prófhluti I: Reikningshald og upplýsinga-
tækni mánudaginn 12. október 2020 –
prófið hefst kl. 13 og stendur til kl. 16. Ein-
dagi greiðslu prófgjalds er 1. október 2020.
• Prófhluti II: Skattskil mánudaginn 16. nóv-
ember 2020 – prófið hefst kl. 13 og stendur
til kl. 16. Eindagi greiðslu prófgjalds er 5.
nóvember 2020.
• Prófhluti III: Raunhæft verkefni laugar-
daginn 12. desember 2020 – prófið hefst
kl. 13 og stendur til kl. 18. Eindagi greiðslu
prófgjalds er 1. desember 2020.
Skráningu í öll próf fer fram samtímis
(allir prófhlutar) og lýkur þann 9. september
2020. Skiptir ekki máli hvort próftaki ætlar
að taka eitt próf eða öll. Ekki er hægt að
skrá sig í próf eftir að skráningarfresti lýkur.
Próftakar bera sjálfir ábyrgð á því að skrá sig
í próf.
Um efnissvið prófanna vísast til 3. gr. reglu-
gerðar nr. 649/2019 um próf til viðurkenning-
ar bókara og til prófefnislýsingar prófnefnd-
ar viðurkenndra bókara. Í henni er jafnframt
útlistað hvaða hjálpargögn eru leyfileg í
einstökum prófum. Prófnefnd mun útvega
próftökum leyfileg hjálpargögn í einstökum
prófum. Prófefnislýsinguna má nálgast á
vefsvæði prófnefndar viðurkenndra bókara
á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytisins: https://www.stjornarradid.is/
verkefni/atvinnuvegir/vidskipti/bokhald/
vidurkenndir-bokarar/
Einkunnir í einstökum prófum eru gefnar í
heilum og hálfum tölum frá 0-10. Lágmarks-
einkunn til að standast einstaka prófhluta
er 5,0. Til þess að standast fullnaðarpróf
þarf próftaki að hljóta a.m.k. 7,00 í vegna
meðaleinkunn (lokaeinkunn) úr öllum próf-
hlutum.
Próftökugjald fyrir hvert próf er kr. 37.500.
Eigi er skylt að standa fyrir prófi nema a.m.k.
30 þátttakendur hafi skráð sig í próf.
Ef próftökugjald er ekki greitt á eindaga þá
fellur niður próftökuréttur.
Við skráningu skal staðfest að fullnægt sé
skilyrðum 43. gr. laga nr. 145/1994 um að
próftaki sé lögráða og hafi forræði á búi sínu
(að búið hafi ekki verið tekið til gjaldþrota-
skipta).
Væntanlegir próftakar skulu skrá sig til prófs
á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytisins www.anr.is eða á heimasíðu
framkvæmdaraðila prófanna
www.promennt.is
Reykjavík, 24. júní 2020
Prófnefnd viðurkenndra bókara
Auglýsing um skráningu
og próf til viðurkenningar
bókara
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F I M M T U D A G U R 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0