Fréttablaðið - 06.08.2020, Side 21
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Fimmtudaginn 13. ágúst gefur Fréttablaðið út sérblaðið
SKÓLAR &
NÁMSKEIÐ
Laugardaginn 15. ágúst gefur Fréttablaðið út sérblaðið
NETVERSLUN
Að vanda er boðið upp á fjölmargar fróðlegar greinar og viðtöl.
Allir sem eru að velta fyrir sér námi
fá góða yfirsýn yfir það sem er í boði í blaðinu.
Blaðið er mjög vinsæll valkostur fyrir
menntastofnanir, einkaskóla og fyrirtæki
til að auglýsa eða kynna það sem þau hafa upp á að bjóða.
Flestöll fyrirtæki hérlendis bjóða upp á netverslun
og er hún í örum vexti jafnt hér á landi og erlendis.
Við viljum bjóða þeim sem reka verslun á netinu
og einnig þeim sem eru að setja upp netverslun
að taka þátt í þessu skemmtilega blaði.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Áhugasamir auglýsendur geta haft samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson, markaðsfulltrúa Fréttablaðsins.
Netfang: jonivar@frettabladid.is – Beinn sími: 550-5654
Áhugasamir auglýsendur geta haft samband við:
Arnar Magnússon, markaðsfulltrúa Fréttablaðsins.
Netfang: arnarm@frettabladid.is – Beinn sími: 550-5652
Claudia á óvenju langan feril að baki sem fyrirsæta og hefur verið ljósmynduð af
frægustu ljósmyndurum í heimi.
Hún er 49 ára, verður fimmtug
25. ágúst næstkomandi. Claudia
er fædd og uppalin í Þýskalandi og
býr núna ásamt fjölskyldu sinni á
Englandi. Hún segir að þakka beri
þennan farsæla feril því að hún
hafi alltaf lagt hart að sér í vinnu
og ekki hafnað verkefnum sem
henni hafa verið boðin.
„Ég hætti við að fara í sumarfrí ef
það kom gott starf upp í hendurn-
ar á mér. Ég kaus vinnuna,“ segir
hún í samtali við sænska kvenna-
blaðið Damernas Värld. Hún hefur
unnið fyrir öll helstu tískumerki
í heimi. Claudia var uppgötvuð
aðeins sautján ára og var fljótlega
komin á forsíðu franska Elle og
breska Vogue. Skömmu síðar var
hún orðin andlit Chanel eftir að
Karl Lagerfeld bauð henni starf.
Claudia segir að tískubransinn
í dag sé fagmannlegur, þetta séu
viðskipti. „Fyrirsæturnar mæta
í vinnu og fara síðan. Á níunda
áratugnum var mikið um partí
og gleðskap í kringum starfið. Í
dag er það ekki svo. Tímapressan
er meiri í dag og tískusýningar
byrja ekki of seint eins og gerðist
hér áður fyrr. Gamli tíminn var
skemmtilegur en ég kann betur
við að vinna á fagmannlegum
nótum þar sem allt er á réttum
tíma.“
Hún bætir við að hugmyndir
um útlit á fyrirsætum hafi verið
aðrar. „Það var mikið lagt í hár
og förðun. Þurrsjampó var lífs-
nauðsynlegt og hárið sett upp og
túperað. Nú vilja tískuhönnuðir
að útlitið sé látlaust og frjálslegt.
Ég var með sítt, þykkt hár og það
var hluti velgengninnar. Ég hef
mikið unnið fyrir fyrirtæki sem
selja húð- og hárvörur. Þegar
maður vinnur auglýsingar fyrir
sjónvarp er nauðsynlegt að líta út
sem maður geisli af heilbrigði. Ég
hef alltaf passað mjög vel upp á
hár og húð,“ segir hún.
„Ég vil líta náttúrulega út og
farða mig samkvæmt því. Nota
krem gegn öldrun húðar og síðan
andlitsmaska þrisvar til fjórum
sinnum í viku. Síðan drekk ég
mikið af vatni, tek vítamín og
drekk nýpressaðan safa á hverjum
morgni. Best þykir mér að blanda
saman spínati, eplum, ananas og
selleríi. Ég hef ekki farið í lýta-
aðgerðir. Ég vil eldast á sama hátt
og Lauren Hutton og Jane Birkin.
Ég fer oft í sund, labba úti í fersku
lofti og hlusta á tónlist. Ég kvíði
því ekki að eldast,“ segir hún.
Eftir misheppnað samband
við David Copperfield giftist
Claudia kvikmyndaleikstjór-
anum Matthew Vaughn árið 2002.
Þau eiga þrjú börn. Claudia hefur
leikið í nokkrum kvikmyndum,
þar á meðal Love Actually þar sem
hún lék Carol.
Leyndarmál Claudiu Schiffer
Ofurfyrirsætan Claudia Schiffer hefur starfað við fagið í rúm 30 ár. Hún þykir lík hinni frægu Brig
itte Bardot. Claudia hefur prýtt flestar forsíður tískublaða samkvæmt Heimsmetabók Guinness.
Ofurfyrirsætan Claudia Schiffer verður fimmtug 25. ágúst. MYND/GETTY
Ég hef mikið
unnið fyrir fyrir-
tæki sem selja húð- og
hárvörur. Þegar maður
vinnur auglýsingar fyrir
sjónvarp er nauðsynlegt
að líta út sem maður
geisli af heilbrigði. Ég
hef alltaf passað mjög
vel upp á hár og húð.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 F I M MT U DAG U R 6 . ÁG Ú S T 2 0 2 0