Fréttablaðið - 06.08.2020, Síða 27

Fréttablaðið - 06.08.2020, Síða 27
Flokkar bíla verða sífellt fjöl- breyttari og bílar með jepp- lingslagi mikil söluvara erlend- is. Þar hafa þeir verið kallaðir SUV (Sport Utility Vehicle) sem þýða matti sem sportnotkun- arfarartæki. Nýjasta nafnbótin er svo Crossover eins og bíllinn sem hér er fjallað um. Jepplingsheilkennið ætlar að festast við marga bíla um þessar mundir og sá síðasti til að falla undir þá skilgreiningu er ný útgáfa Jazz sem kallast Crosstar. Reyndar eru það helgispjöll að setja nafn með orðinu jeppi við bíl sem þennan, enda aðeins um bíl með framdrifi að ræða. Að vísu er hann með meiri veghæð en hefð- bundinn Jazz og eitthvað er búið að eiga við útlitið til að gera hann sportlegri, með meira plasti og þakbogum. Stærri að utan en ekki innan Þótt að í grunninn sé hér Honda Jazz er bíllinn örlitið stærri en áður. Hann er 30 mm hærri enda búið að hækka hann á fjöðrun um 37 mm. Hann er 31 mm breiðari og 46 mm lengri vegna plasthlífanna sem utan á honum eru. Að innan er bíllinn nánast alveg eins. Að vísu eru sætin með öðrum efnum sem auðvelda hreinsun og það er komið betra hljómkerfi. Upp- lýsingakerfið er nýtískulegt og er einfalt í notkun og býður bæði upp á Apple CarPlay og Android Auto. Þrátt fyrir að í grunninn sé þetta smábíll er Crosstar furðu rúm- góður og þar sem að hann er hærri en hefðbundinn Jazz er þægi- Bíllinn er verk- legri á vegi og aukin veghæðin greinileg eins og sjá má. MYNDIR/ TRYGGVI ÞOR- MÓÐSSON Farangursrými er tæpir 300 lítrar og aðvelt er að fella niður sæti . Vél og rafmótorar gefa samtals 253 newtonmetra tog sem er allgott. Eins og sjá má veldur aukin veghæð því að bíllinn leggst meira á hornin en samt er hann furðu stöðugur í akstri. Mælaborðið er stílhreint og þá sérstaklega notendavænn upplýsingaskjárinn. Reynsluakstur Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is KOSTIR OG GALLAR Honda Jazz Crosstar Grunnverð: 4.490.000 kr. Hestöfl: 108 Tog: 253 newtonmetrar Eigin þyngd: 1.325 kg 0-100 km: 9,9 sek. Hámarkshraði: 172 km/klst. CO2-gildi: 110 g/km Eyðsla í bl. akstri: 3,9 l L/B/H: 4.090/1.725/1.556 mm Hjólhaf: 2.520 mm Farangursrými: 298 l Rúmtak: 1.498 rsm. n Upplýsingakerfi n Höfuðrými n Útsýni n Pláss fyrir miðjufarþega n Verð KOSTIR GALLAR BÍLAR Smábíll fyrir íslenskar aðstæður legra að umgangast hann. Hurðir opnast vel og það þarf ekki að setjast mikið niður í bílinn. Hann er rúmgóður að innan fyrir bíl í þessum flokki og munar þar mest um höfuðrými. Margar sniðugar útfærslur eru í innanrými, eins og tvöfalt hanskahólf og glasahöldur við A-bita í stað þess að vera að flækjast fyrir í miðjustokki. Sem betur fer er ennþá hægt að taka upp setuna í aftursætum Jazz sem að getur auðveldað flutninga á stærri hlutum. Vel fer um tvo full- orðna í aftursætum, en sá þriðji má ekki vera stór til að komast fyrir á bríkinni milli þeirra. Liggur vel þrátt fyrir veghæð En hvernig er að keyra Jazz Cros- star með sinni auknu veghæð? Hann liggur ágætlega þrátt fyrir að leggjast aðeins á hornin eins og búast mátti við. Upptakið er allgott vegna góðs togs e.HEV- blendingsútfærslunnar. Veghljóð er nokkuð og einnig hvinur frá vélinni þegar hún er komin á snúning. Stýri og önnur stjórntæki gefa góða tilfinningu fyrir bílnum sem að svarar mjög vel. Bíllinn skiptir á milli blendingsaksturs og annaðhvort vélar eða rafmagns- mótora eingöngu og skilar þannig betri nýtingu og minni eldsneytis- notkun. Fáir keppinautar Eins og er á Honda Jazz Crosstar fáa sem enga nána keppinauta hérlendis þar sem að Ford Fiesta Active er ekki í boði hjá Brimborg þótt stóri bróðir Focus Active sé það. Crosstar er aðeins boðinn í EX-útfærslu og kostar nokkra summu, eða 4.490.000 kr. sem er 240.000 kr. meira en Jazz í EX- útfærslu. Hvort fólk er tilbúið að borga þá upphæð fyrir meiri veg- hæð og þakboga er svo annað mál. Jazz er með mjög tryggan kaup- endahóp enda kaupa 60% eigenda Jazz sér annan Jazz aftur, og þá því ekki Crosstar? 19F I M M T U D A G U R 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.