Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Blaðsíða 2
Sjálfstraustsfeldurinn
S varthöfði hefði haldið að tveir metrar gætu ekki orðið tilefni til rökræðu,
en annað er nú komið á daginn.
Vesalings þríeykið neyddist til
að leggjast undir feld og hugsa
sinn gang bróðurpart vikunnar
enda tókst því á einum fundi
að rugla svo hressilega í land
anum að margir töldu jafnvel
fært að halda fermingarveislur
að nýju. Virðist þríeykið hafa
verið að safna kjarki til þess að
segja fólki að halda í sér sem
mest af partístandi og bæla
niður útlandablæti sitt.
Svarthöfði er þó á því að
það eru ekki almannavarnir
sem beri sökina í þessu öllu
saman. Við þjóðin erum bæði
að garga eftir hertari reglum
en á sama tíma viljum við ekki
reglur sem hefta frelsi okkar.
Við viljum eiga kökuna okkar
(heilbrigðið) og éta hana líka
(frelsið).
Hvað er það líka nákvæm
lega sem ráðherrann með langa
nafnið og titilinn á að hafa unn
ið sér til saka? Hitt vini án þess
að fá samþykki frá þjóðinni
fyrir því fyrst? Mikið eru allir
fljótir að verða heilagir þegar
svona kemur upp. Allt í einu
er öll þjóðin orðin að sérfræð
ingum í tveggja metra reglum
og sóttvörnum. Jafnvel leyfir
þjóðin sér að hrópa upp að sótt
varnalæknir viti ekkert hvað
hann syngur, þjóðin viti klár
lega betur hvað hann meinti
með tveggja metra reglu.
Aumingja Þórólfur gat ekki
einu sinni skýrt sína eigin
reglu út og þurfti að taka sér
vikuna í að endurhugsa hana.
Hvernig í fjandanum getur
þjóðin þá vitað upp á hár hvað
í henni felst? Bull og vitleysa.
Ef það er eitt stef sem við
ættum að hafa lært í þessum
faraldri þá er það að hlusta á
sérfræðingana og hlusta extra
vel þegar sérfræðingarnir
segjast þurfa að kynna sér
málin betur.
Verstu gagnrýnina telur
Svarthöfði vera þá að Þórólfur
hafi endurskilgreint regluna til
að ráðherra kæmist út úr klíp
unni. Það er alvarleg atlaga að
trúverðugleika og starfsheiðri
manns sem er búinn að standa
sig eins og sprittuð hetja í þess
um faraldri.
Það sem má samt skamma
ráðherra fyrir eru viðbrögð
hennar við þessu öllu saman.
Hún byrjar á að réttlæta
gjörðir sínar og telur ekkert
saknæmt hafa átt sér stað, svo
biðst hún afsökunar á mynd
unum sem voru teknar á vin
konudjamminu, að lokum biðst
hún afsökunar á öllu saman.
Þetta sendir nokkuð leiðinleg
og öfug skilaboð ofan í okkur.
Svarthöfði hefur séð þetta
stef endalaust oft í þjóðfélag
inu. Byrja á að neita – reyna
svo að draga í land – biðjast
svo afsökunar. Ætli menn séu
enn reiðir þess vegna? Því
ráðherra ákvað að bíða og sjá
hvort að æstur lýðurinn myndi
strax snúa sér að næsta drama
kasti eða hvort þetta yrði
áfram stórmál. Þjóðin eins og
hún leggur sig er nefnilega
með brútal ADHD og missir
fljótt fókus.
Hins vegar er rólegt að gera
í samfélaginu og lítið að frétta
svo þjóðin hélt fókus.
Ráðherra hefur því líklega
séð sér þann kost vænstan að
biðjast afsökunar. Hvað kvitt
anadramað varðar hlýtur
það að liggja í augum uppi að
manneskjan borgaði snerti
laust.
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Af DV og konum
S
íðan ég tók við hafa komið út 20 tölublöð
af helgarblaði DV með nýjum áherslum og
efnistökum. Ef litið er á forsíður þessara
blaða má sjá 13 forsíðuviðtöl við áhuga
verðar konur. Þar af eru eitt blað með
tveimur konum á forsíðu og annað með
þremur konum á forsíðunni. Að því sögðu hefur
reynst erfiðara að fá konur í forsíðuviðtöl en karl
menn. Þær virðast gagnrýna sig og ritskoða í meiri
mæli en karlmenn.
Við höfum tekið forsíðuviðtöl við fjölbreyttan
hóp merkiskvenna, svo sem ráðherra, forsetafrú,
verkfræðing, rithöfunda, kvikmyndagerðarkonur,
fjölmiðlakonu, íþróttakonur, samkynhneigðar, gagn
kynhneigðar, fjölskyldukonur, einhleypar konur og
baráttukonur.
Að því sögðu er líka mikilvægt að ræða við karl
menn því lokatakmarkið hlýtur að vera jafnræði.
Fyrir rúmum áratug sat ég fund hjá Fé
lagi fjölmiðlakvenna. Fyrir svörum sat
Reynir Traustason, þáverandi ritstjóri
DV. Ein kvennanna spurði af hverju
það væru ekki fleiri konur að vinna
á DV.
„Þær sækja ekki um,“ svaraði
Reynir.
„Af hverju finnur þú þær ekki?“
kallaði þá einhver.
Ég gat ekki á mér setið og kallaði
á móti: „Hefur einhver af ykkur
sótt um starf á DV og ekki
fengið viðtal?“
Engin svaraði.
„Geta þær sem hafa sótt
um starf á DV rétt upp
hönd,“ bætti ég þá við.
Engin rétti upp hönd.
Flestar konurnar vildu
nefnilega að það störfuðu
fleiri konur á DV – bara
ekki þær sjálfar. Það er
eitt að vilja fleiri konur í
valin störf en þær verða að vilja
það sjálfar. Það er ekki hægt
að ætlast til þess að kvótar séu
fylltir hér og þar ef áhuginn
fyrir starfinu er ekki til staðar
hjá þeim, sem æskilegt er að sæki um.
Í dag er sem betur fer staðan allt önnur.
Hjá DV og dv.is er meira jafnvægi í kynjaskipt
ingu en gengur og gerist á flestum fjölmiðlum í
landinu. Ritstjóri DV, fréttastjóri og sú sem brýtur
um blaðið eru konur. Próförkin hjá DV skartar
einungis konum. Forstjóri Torgs, sú er stýrir mann
auðsmálum og fjármálastjóri eru konur. 50% rit
stjórnarinnar eru konur.
Ég fæ reglulega gagnrýni á að það sé verið að upp
hefja karlmenn á kostnað kvenna á miðlinum sem ég
stýri.
Samfélagið í heild þarf sannarlega að rétta stöðu
kvenna – en það er mikilvægt að velja sér orrustur
svo að þær missi síður marks og það er enginn í
stríði gegn konum hér. Þvert á móti.
Ég sem er ritstjóri blaðsins á tvær ungar stúlkur.
Í hvaða heimi myndi ég reyna að ýta undir samfélag
þar sem hallar enn frekar á þær?
Það er óþarfi að sparka í þann sem hleypur þér við
hlið með útrétta hönd. Það er leitt þegar þörfin fyrir
baráttuna er meiri en fyrir heildstæðan árangur. n
UPPÁHALDS
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir
RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Ruth Bergsdóttir, ruth@dv.is
PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing | DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
5 UPPÁHALDS
SNYRTIVÖRUR
Kolbrún Pálína Helgadóttir
fjölmiðlakona og fyrrver
andi fyrirsæta er fagur
keri mikill. Hvort sem það
snertir eigin útlit eða heimil
ið þá kann Kolbrún Pálína öll
bestu ráðin.
1 .Bioeffect 30 day
treatment
Meðferðin er mín mesta
uppáhalds og húðin verður
afar þakklát að henni lokinni
og skartar sínu fegursta.
2 . Kollagen
Ég set kollagen
út í kaffið mitt á
morgnana, eða út
í bústið og finn
áþreifanlegan
mun þegar ég er
dugleg að taka
það inn.
3 . Eilíf æska – Húðolía
Þessi dásamlega olía er í
sundtöskunni minni allt
árið um kring en um er að
ræða olíukenndan áburð sem
hentar á þurra húð og sem
nuddolía.
4 .Rejuvenating Eye
Cream
Vörurnar frá Bláa lóninu
hafa lengi verið í snyrtitösk
unni minni. Þetta endurnær
andi augnkrem er í miklu
uppáhaldi.
5 .Eucerin Hyaluron-
Filler
Ég stunda mikið sund og sjó
böð og henta þessi krem mér
því afar vel. Svo er verðið á
þeim mjög gott og þau fást í
öllum apótekum.
2 21. ÁGÚST 2020 DV