Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR 21. ÁGÚST 2020 DV
sundlaugar fengju að opna á
ný í vor en ekki líkamsræktar
stöðvar. Var Ágústa gagnrýnd
fyrir að senda bréfið þar sem
hún væri gift ráðherra en af
rit af bréfinu var sent á ríkis
stjórnina.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
mitt nafn er dregið inn í póli
tískt þras. Í rauninni er þetta
mál svo kjánalegt. Ég ásamt
12 öðrum forsvarsmönnum
líkamsræktarstöðva óska eftir
þessum fundi með Þórólfi til
að átta okkur á hverju við
eigum von á varðandi opnanir
á líkamsræktarstöðvunum.
Einn úr hópnum bendir á að
hann hafi fengið ábendingu
frá ráðherra um að senda af
rit á ríkisstjórnina.“
Í kjölfarið birti Björn Ingi
Hrafnsson blaðamaður brot
úr bók sem hann er að skrifa
í tengslum við COVID19 far
aldurinn hérlendis, þar sem
ýjað er að því að ónefndur ráð
herra í ríkisstjórn hafi vænt
Ágústu um dómgreindarbrest
fyrir að senda bréfið. „Þetta
var opinbert bréf. Þarna var
ekki verið að beita neinum
þrýstingi heldur aðeins óska
eftir fundi, sem við svo feng
um. Ef einhver annar en ég
hefði sent bréfið þá hefði þetta
ekki verið neitt mál.
Mér fannst leiðinlegt að
þurfa að hlusta á það að ein
hver af kollegum mannsins
míns hefði haft þau orð um
mig að ég hefði sýnt dóm
greindarskort. Ég hef rekið
líkamsræktarstöð í 37 ár. Sá
kafli í mínu lífi spannar mun
lengri tíma en hjónaband mitt
við Guðlaug Þór. Ég tala nú
ekki um að vera ráðherrafrú,
það eru bara einhver örfá ár.
Að ýja að því að ég sé að nýta
mér aðstöðu mína er bara
galið.“ Ágústa segist vel fær
um að reka sitt fyrirtæki án
aðkomu eiginmannsins enda
hafi hún gert það frá því að
hún var rétt rúmlega tvítug.
Sofnaði á verðinum
Hnýtt hefur verið í tengsl
Ágústu og Guðlaugs við Bláa
lónið í gegnum tíðina en
Ágústa á 3% hlut í Bláa lóninu.
Grímur Sæmundsen, forstjóri
Bláa lónsins, er einnig einn af
aðaleigendum Hreyfingar. Að
spurð hvernig hún takist á við
það þegar hennar persónulegu
fjármál séu til umfjöllunar
í fjölmiðlum segist hún stolt
af því sem hún hefur byggt
upp. „Ég byrjaði á algerum
núllpunkti og hef byggt mitt
fyrirtæki upp frá núlli. Ég
er stolt og hreykin af því. Ég
skammast mín ekki fyrir það
sem ég á. Þetta er botnlaus
vinna og ég hef aldrei fengið
neitt upp í hendurnar,“ segir
Ágústa. Hún segir það að
standa við orð sín og að vera
sjálf á staðnum vega þungt í
velgengni sinni.
„Þú byggir ekkert upp til
langs tíma nema að hafa
mikinn áhuga og vera tilbúin
í að eyða í það miklum tíma.
Ég eignaðist fjögur börn og
hnoðaðist alltaf í vinnu með
fram því. Ég hef aldrei tekið
mér almennilegt fæðingar
orlof.“
Hún segir velgengnina
meðal annars stafa af því
að áhugi á því sem hún var
að gera hafi ýtt henni út í
rekstur. „Það kemur manni
ótrúlega langt í byrjun. Svo
lærir maður ótrúlega fljótt af
mistökunum. Ég var nánast
búin að keyra fyrirtækið í
gjaldþrot snemma á ferlinum.
Ég var orðin kærulaus og var
upptekin við að skemmta mér.
Ég var kornung, búin að reka
fyrirtækið í tvö eða þrjú ár,
peningarnir rúlluðu inn og ég
bara sofnaði á verðinum. Ég
áttaði mig svo á því reikning
arnir höfðu safnast upp og ég
varð að bregðast hratt við og
læra mína lexíu.
Það þarf alltaf að vera á
tánum, vera á staðnum og
halda utan um hlutina. Í
grunninn hef ég alltaf farið
vel með peninga og er var
kár í viðskiptum, en lykillinn
að öllu er áhugi á því sem þú
ert að gera. Það smitar út frá
sér. Mér finnst alltaf gaman
að mæta í vinnuna og ég hef
aldrei gengið í gegnum tímabil
þar sem ég nenni þessu ekki
lengur.“
Ekki þræla sér út alls staðar
Aðspurð um andlega heilsu
og líðan sína segist Ágústa
ekki vera mikið tilfinninga
búnt þótt hún sé vissulega
ekki tilfinningalaus. „Ég hef
mikið jafnaðargeð og reyni að
vera jákvæð. Það er eitthvað
jákvætt við allt. Núna hefur
aukinn tími með fjölskyldunni
verið það jákvæða í þessu
þjóðfélagsástandi.“
Hún segist vissulega vilja
hafa áskoranir í lífi sínu en
þær séu af öðrum toga en áður
og það sé enginn listi með
tindum til að toppa á hennar
borði. „Það að finna jafnvægi
í einkalífi og vinnu er full
nægjandi fyrir mig.“ Hún seg
ist ekki hafa neina þörf fyrir
það að hlaupa maraþon eða
klífa hæstu fjöllin. Hennar
áskoranir og sigrar liggi ann
ars staðar.
„Ég hef til dæmis ekki
áhuga á að opna stöðvar úti
um allan bæ. Þá ertu búin
að missa stjórnina á litlu
hlutunum. Ég hef viljað vera
innan um viðskiptavinina og
sjá sömu andlitin í áratugi og
fylgjast með fólki ná árangri
frekar en að vera að leita að
nýju húsnæði og innrétta.
Ég hef haldið fast í gleðina í
því sem ég er að gera og gæti
þess að stilla mig af. Ég næ
að forgangsraða og láta frá
mér verkefni. Þetta snýst um
að finna gleðina í hlutunum
og þræla sér ekki út alls stað
ar. Virkja heimilisfólkið og
starfs fólkið svo maður sé ekki
einn að atast í öllu.“
Heilsurækt forvörn
í faraldri
Ágústa segir að heilsan sé
aldrei mikilvægari en á
tímum sem þessum og nú
þurfi allir að horfa í eigin
barm. „Mér finnst vanta inn
í umræðuna um COVID19 að
partur af lausninni er heilsu
ræktin. Það sem við höfum
lært er að fólk með undirliggj
andi sjúkdóma, lífsstílssjúk
dóma eins og sykursýki tvö,
háþrýsting, offitu og annað
slíkt, á erfiðara með að glíma
við COVID19 sjúkdóminn.
Vissulega viljum við forð
ast smit en megum ekki loka
okkur af, það þarf að sinna
heilsunni, hún má aldrei sitja
á hakanum. Það þarf að hugsa
heilsurækt sem forvörn.“
Ágústa á ekki í vandræðum
með að segja hlutina eins og
þeir eru. „Við megum ekki
gleyma stóru myndinni í for
vörnum, við þurfum að byggja
upp mótstöðu líkamans. Hver
og einn þarf að hugsa fyrir
sig, hvernig líður mér með
mig? Hvernig er orkan mín
og heilsan? Þarf ég að gera
eitthvað í mínum málum? Það
er ótal margt sem fólk getur
gert. Ég er ekki að tala um út
lit heldur heilbrigði.“
Ágústa bendir á að þótt heil
brigði snúist alls ekki um kíló
sé það oft leiðin til að fá fólk
til að takast á við heilsubresti
sína. „Frá því að ég byrjaði í
þessum bransa hefur það ver
ið segin saga að ef Hreyfing
auglýsir námskeið með texta á
borð við „Viltu missa 10 kíló?“
þá stoppar ekki síminn, en ef
það er orðað án kílóa, til dæm
is „Viltu byggja upp heilsuna
og auka hreysti?“ þá hringja
kannski fimm eða tíu í stað
tvö hundruð. Ef við tölum um
að grennast í auglýsingum þá
kemur fólk þó og bætir heils
una í leiðinni.
Ég er fyrsta manneskjan
sem er til í að breyta þessu í
hugum fólks en þessi „diet“
iðnaður á heimsvísu veltir
skrilljónum og það virðast
margir tilbúnir til að fara
stystu leiðina til að líta vel út.
Hvatinn til að byrja í ræktinni
tengist því gjarnan að vilja
missa kíló, það ætti auðvitað
alls ekki að vera þannig. Það
að tala um að styrkja hjarta
og æðakerfið sitt ætti að duga.
Það er heilsan sem skiptir
máli, ekki að allir séu settir
í sama form,“ segir Ágústa
og segist bjartsýn á að lands
menn taki nú til óspilltra
málanna við að efla sínar
eigin varnir með því að setja
heilsuna í fyrsta sæti. n
Ég hef til dæmis
ekki áhuga á að
opna stöðvar úti
um allan bæ. Þá
ertu búin að missa
stjórnina á litlu
hlutunum.
Ágústa og Guðlaugur eiga fjögur börn, eitt barnabarn og hund svo það er oft líf og fjör á heimilinu MYND/SIGTRYGGUR ARI