Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Blaðsíða 36
36 STJÖRNUFRÉTTIR 21. ÁGÚST 2020 DV
Heilsuráð
stjarnanna
Stjörnurnar hafa margar hverjar
mikinn áhuga á heilbrigðu líferni.
Þær eru duglegar að deila heilsu-
venjum sínum í viðtölum og á
samfélagsmiðlum. Hér gefur að
líta nokkur heilsuráð stjarnanna.
Meghan Markle
HEITT VATN MEÐ SÍTRÓNU
Uppáhalds millimál Meghan
Markle er ristað heilhveiti
súrdeigsbrauð með avókadó,
salti og pipar og smá ólífuolíu
samkvæmt Women’s Health
Magazine. Hún byrjar alla
morgna á heitu vatni með
sítrónu og hafragraut með
banana og agavesírópi.
Selena Gomez
EKKI SPÁ OF MIKIÐ Í VIGTINA
Til að forðast þráhyggju sleppir Selena Gomez vigtinni
og segist bara fylgjast með gallabuxunum. Ef hún tekur
eftir því að uppáhalds gallabuxurnar passa ekki eins
og venjulega þá er kannski tími til að hreyfa sig aðeins
meira eða borða minna salt.
Busy Phillips
BYRJAÐU DAGINN Á KRÖFTUGUM KAFFIBOLLA
Busy Phillips byrjar daginn á Bulletproofkaffi sem
samanstendur af kaffi, tveimur matskeiðum af smjöri
eða smjörolíu, matskeið af Brain Octane Oil og tveimur
skeiðum af kollagenpróteindufti. Hún segir drykkinn
hjálpa meltingunni og halda húðinni hreinni.
Gabrielle Union
VÖKVI, VÖKVI, VÖKVI
Heilsuráð Gabrielle er einfalt.
Drekka nægan vökva. Hún reynir
að drekka um tvo lítra af vatni á
dag. Ef henni fer að leiðast vatnið
kreistir hún smá sítrónu út í það.
Gwyneth Paltrow
PRÓTEINRÍKUR ÞEYTINGUR
Í þætti af Harper‘s Bazaar‘s Food
Diaries sagði Gwyneth Paltrow
frá því að hún fær sér prótein
ríkan þeyting á hverjum degi og
hnetusmjörsstangir í millimál. Til
að byrja daginn skolar hún munn
inn með lífrænni kókosolíu.
Jenna Dewan
SÚPERÞEYTINGUR
Leikkonan og dansarinn Jenna
Dewan byrjar alla daga á hollum
og grænum þeytingi. Hún setur
meðal annars kóríander, stein
selju og spírulínu í hann. „Þetta
er eins og súperfæða fyrir blóðið
þitt og frumurnar. Alveg ótrúlegt,“
sagði hún í viðtali við WH.
Goldie Hawn
HAFÐU HUGANN VIÐ MATINN
Goldie Hawn er sjötug. Hennar
mikilvægasta heilsuráð er að vera
með hugann við það þegar þú ert
að borða. Vera í núinu, hlusta á
líkamann og þekkja tilfinninguna
þegar þú ert svöng eða södd.
Jennifer Aniston
EKKI NEITA ÞÉR UM HUGGUNARMAT
Þó svo að Jennifer Aniston fylgi nokkuð hollu og
ströngu mataræði, þá neitar hún sér ekki um huggun
armat (e. comfort food), eins og pasta. En venjulega
borðar hún „einhvers konar grænmeti eða salat með
próteini“, sagði hún í viðtali við Elle.
Kourtney Kardashian
SVINDLAR Á KETÓ
Raunveruleikastjarnan fylgir ketó
mataræði en segir að lykillinn sé
að svindla á því tvisvar á dag. „Ég
svindla tvisvar á dag með ein
hverju sætu eftir hádegismat og
kvöldmat,“ sagði hún á vefsíðu
sinni Poosh.com.
Ellie Goulding
PLÖNTUMIÐAÐ FÆÐI
Söngkonan hefur verið vegan í þó
nokkur ár. „Því meira sem ég læri
um mannslíkamann, því meira vil
ég hugsa um hann,“ segir hún.
Hún stundar einnig hreyfingu af
kappi.
Jessica Alba
ALLAR MÁLTÍÐIR Í JAFNVÆGI
Leikkonan passar að hver máltíð
innihaldi prótein, fitu, trefjar og
grænt grænmeti. Hún byrjaði að
tileinka sér þessa aðferð eftir
að fá aðstoð frá heilsuþjálfanum
Kelly LeVeque.
MYNDIR/GETTY