Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Page 36
36 STJÖRNUFRÉTTIR 21. ÁGÚST 2020 DV Heilsuráð stjarnanna Stjörnurnar hafa margar hverjar mikinn áhuga á heilbrigðu líferni. Þær eru duglegar að deila heilsu- venjum sínum í viðtölum og á samfélagsmiðlum. Hér gefur að líta nokkur heilsuráð stjarnanna. Meghan Markle HEITT VATN MEÐ SÍTRÓNU Uppáhalds millimál Meghan Markle er ristað heilhveiti­ súrdeigsbrauð með avókadó, salti og pipar og smá ólífuolíu samkvæmt Women’s Health Magazine. Hún byrjar alla morgna á heitu vatni með sítrónu og hafragraut með banana og agave­sírópi. Selena Gomez EKKI SPÁ OF MIKIÐ Í VIGTINA Til að forðast þráhyggju sleppir Selena Gomez vigtinni og segist bara fylgjast með gallabuxunum. Ef hún tekur eftir því að uppáhalds gallabuxurnar passa ekki eins og venjulega þá er kannski tími til að hreyfa sig aðeins meira eða borða minna salt. Busy Phillips BYRJAÐU DAGINN Á KRÖFTUGUM KAFFIBOLLA Busy Phillips byrjar daginn á Bulletproof­kaffi sem samanstendur af kaffi, tveimur matskeiðum af smjöri eða smjörolíu, matskeið af Brain Octane Oil og tveimur skeiðum af kollagen­próteindufti. Hún segir drykkinn hjálpa meltingunni og halda húðinni hreinni. Gabrielle Union VÖKVI, VÖKVI, VÖKVI Heilsuráð Gabrielle er einfalt. Drekka nægan vökva. Hún reynir að drekka um tvo lítra af vatni á dag. Ef henni fer að leiðast vatnið kreistir hún smá sítrónu út í það. Gwyneth Paltrow PRÓTEINRÍKUR ÞEYTINGUR Í þætti af Harper‘s Bazaar‘s Food Diaries sagði Gwyneth Paltrow frá því að hún fær sér prótein­ ríkan þeyting á hverjum degi og hnetusmjörsstangir í millimál. Til að byrja daginn skolar hún munn­ inn með lífrænni kókosolíu. Jenna Dewan SÚPERÞEYTINGUR Leikkonan og dansarinn Jenna Dewan byrjar alla daga á hollum og grænum þeytingi. Hún setur meðal annars kóríander, stein­ selju og spírulínu í hann. „Þetta er eins og súperfæða fyrir blóðið þitt og frumurnar. Alveg ótrúlegt,“ sagði hún í viðtali við WH. Goldie Hawn HAFÐU HUGANN VIÐ MATINN Goldie Hawn er sjötug. Hennar mikilvægasta heilsuráð er að vera með hugann við það þegar þú ert að borða. Vera í núinu, hlusta á líkamann og þekkja tilfinninguna þegar þú ert svöng eða södd. Jennifer Aniston EKKI NEITA ÞÉR UM HUGGUNARMAT Þó svo að Jennifer Aniston fylgi nokkuð hollu og ströngu mataræði, þá neitar hún sér ekki um huggun­ armat (e. comfort food), eins og pasta. En venjulega borðar hún „einhvers konar grænmeti eða salat með próteini“, sagði hún í viðtali við Elle. Kourtney Kardashian SVINDLAR Á KETÓ Raunveruleikastjarnan fylgir ketó mataræði en segir að lykillinn sé að svindla á því tvisvar á dag. „Ég svindla tvisvar á dag með ein­ hverju sætu eftir hádegismat og kvöldmat,“ sagði hún á vefsíðu sinni Poosh.com. Ellie Goulding PLÖNTUMIÐAÐ FÆÐI Söngkonan hefur verið vegan í þó nokkur ár. „Því meira sem ég læri um mannslíkamann, því meira vil ég hugsa um hann,“ segir hún. Hún stundar einnig hreyfingu af kappi. Jessica Alba ALLAR MÁLTÍÐIR Í JAFNVÆGI Leikkonan passar að hver máltíð innihaldi prótein, fitu, trefjar og grænt grænmeti. Hún byrjaði að tileinka sér þessa aðferð eftir að fá aðstoð frá heilsuþjálfanum Kelly LeVeque. MYNDIR/GETTY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.